Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ungmenni héldu vöku fyrir þúsundum í Keflavík: „Ég hef aldrei heyrt önnur eins yfirþyrmandi læti“

Ungmenni héldu vöku fyrir þúsundum í Keflavík: „Ég hef aldrei heyrt önnur eins yfirþyrmandi læti“
Reykja­nes­bær

Ungmenni af Suð­ur­nesjum héldu vöku fyrir Kefl­vík­ingum árið 1989.

„Það hvein og söng í bænum. Ég hef aldrei heyrt önnur eins yfir­þyrm­andi læti. Þetta eru furðu­leg­ustu aðgerðir sem ég hef séð þótt ég hafi verið í tengslum við umferð­ina í ára­tugi. Fyrst hélt ég að ein­hverjar stór­fram­kvæmdir væru í gangi en komst svo að því að verið var að loka rúnt­inum. Eins og raun bar vitni þýddi nú lítið að beina umferð krakk­anna út í íbúð­ar­hverfin. Krakka­mir náðu sér heldur betur á strik og alltaf lengd­ist flaut­andi bíla­lestin,“ sagði Steindór Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi í Njarðvík, í sam­tali við DV árið 1989.

Forsaga máls­ins að bæj­ar­yf­ir­völd ákváðu að loka Hafn­ar­göt­unni en gatan var vin­sæl til að „keyra rúnt­inn“ og ákváðu ung­menni á Suð­ur­nesjum að mót­mæla þeim aðgerðum. Talið er að hund­ruðir ung­menna hafi þanið flautur bíla víðs vegar um Keflavík og að ómögu­legt hafi verið fyrir fólk að sofna fyrr en hálf 4 um nótt­ina. 

„Mér skilst að fjöldi bíla hafi flautað fyrir utan heim­ili mitt í nótt. En það var eng­inn heima þannig að eng­inn var til að svara þeim,“ sagði Guð­finnur Sig­ur­vins­son, bæj­ar­stjóri í Keflavík, í sam­tali við DV um málið. „Mér sýn­ist að það sé ekki sé hægt að leysa þetta mál nema skapa ein­hverja aðstöðu fyrir krakk­ana. Þetta eru vel aldir og þrótt­miklir krakkar af Suð­ur­nesjum og það þýðir ekk­ert að fara í stríð við þá. Að vísu er einn og einn ung­lingur sem verður til vand­ræða. T.d. voru rúður brotnar fyrir þrjú hund­ruð þús­und krónur fyrir tveimur vikum. Það var skipuð nefnd til að kanna hvað hægt væri að gera en það virð­ist vera erfitt að finna út hvað er best. Við þurfum að ræða við krakk­ana, t.d. við nem­enda­ráð Fjöl­brauta­skól­ans og Holta­skóla,“ sagði Guð­finnur.

„Þeir réðu ekki við neitt enda við við svo marga að kljást. Lög­reglu­menn læstu bara að sér á lög­reglu­stöð­inni og drógu fyrir glugg­ana á tíma­bili. Bílarnir keyrðu bara eins og hver vildi, á móti ein­stefnu með blikk­andi gulum við­vör­un­ar­ljósum og litu ekki við stöðv­un­ar­skyldu. Öllum hindr­un­ar­búkk­unum var bara rutt í burtu og nokkrir keyrðu svo upp eftir,“ sagði 18 ára gam­all drengur úr Keflavík í sam­tali við DV. „Ég hefði ekki viljað hafa alla þessa bíla flaut­andi fyrir utan glugg­ann hjá mér – það hefur varla nokkur getað sofið í bænum á meðan á þessu stóð. Það voru örugg­lega hund­rað bílar sem flaut­uðu. En þetta eru und­ar­legar aðgerðir. Það voru brotnar rúður í bænum fyrir skömmu en ég get ekki skilið hvers vegna öku­menn eiga að gjalda þess. Þetta eru asna­legar aðgerðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni