Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024 hafa verið gerðar opinberar.
Kvikmyndaverðlaun Eddunnar hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni frá árinu 1999 en hátíðin í ár markar þáttaskil, samkvæmt fréttatilkynningu sem birtist á Facebook-síðu verðlaunanna, þar sem kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum hefur verið skipt upp og verða Kvikmyndaverðlaun Eddunnar 2024 afhent 13. apríl næstkomandi. Sjónvarpsverðlaunin verða afhent á haustmánuðum.
Alls verða 20 verðlaun veitt á hátíðinni í apríl, til kvikmyndaverka sem voru frumsýnd á 1. janúar 2023 til 31. desember 2023.
Heiðursverðlaun ÍKSA verða einnig veitt, auk tveggja nýrra verðlauna: Erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð og Uppgötvun ársins en þau eru veitt einstaklingi sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.
Alls voru send inn 39 verk til kvikmyndaverðlauna Eddunnar og 132 innsendingar til fagverðlauna. Heimildamyndir voru 8, heimildastuttmyndir 7, kvikmyndir 7 og stuttmyndir 11. 8 valnefndir, 41 einstaklingur sat í valnefndunum fyrir hina 20 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.
Kvikmyndaverðlaun Eddunnar verða veitt þann 13. apríl næstkomandi í beinni útsendingu á RÚV.
Tilnefningar eru sem hér segir:
BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINSKonniSætur (Felt Cute)
Þið kannist við…
ERLEND KVIKMYND ÁRSINSAnatomy of a Fall (Fallið er hátt)Fallen LeavesKillers of the Flower MoonOppenheimer
Past Lives
HEIMILDAMYND ÁRSINSHeimaleikurinnSkuld
Smoke Sauna Sisterhood
HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINSKonniSuper Soldier
Uppskrift: lífið eftir dauðann
KVIKMYND ÁRSINSÁ ferð með mömmuTilverur
Villibráð
STUTTMYND ÁRSINSDunhagi 11Sorg etur hjarta
Sætur (Felt Cute)
BRELLUR ÁRSINSDavíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon & Rob Tasker fyrir NapóleonsskjölinJean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort
Atli Þór Einarsson fyrir Óráð
BÚNINGAR ÁRSINSHelga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmuHelga Rós V. Hannam fyrir Kulda
Arndís Ey fyrir Tilverur
GERVI ÁRSINSKristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmuKristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð
HANDRIT ÁRSINSHilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmuErlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda
Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð
HLJÓÐ ÁRSINSMatis Rei fyrir Á ferð með mömmuBjörn Viktorsson fyrir Northern Comfort
Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood
KLIPPING ÁRSINSGunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir NapóleonsskjölinHendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Ivor Šonje fyrir Tilverur
KVIKMYNDATAKA ÁRSINSÓttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmuÁrni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin
Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKIÞröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmuÞröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur
Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKIÓlafur Darri Ólafsson fyrir NapóleonsskjölinHilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKIKristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmuElín Hall fyrir Kulda
Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKIHalldóra Geirharðsdóttir fyrir KuldaSelma Björnsdóttir fyrir Kulda
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð
LEIKMYND ÁRSINSHeimir Sverrisson fyrir NapóleonsskjölinHulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort
Heimir Sverrisson fyrir Villibráð
LEIKSTJÓRI ÁRSINSHilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmuAnna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð
TÓNLIST ÁRSINSTönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmuDaníel Bjarnason fyrir Northern ComfortEðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood































Athugasemdir