Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ellefu samsæriskenningar sem reyndust sannar – Leyndarhyggja, launmorð og siðlausar tilraunir

Ellefu samsæriskenningar sem reyndust sannar – Leyndarhyggja, launmorð og siðlausar tilraunir
Leyndó. Mynd: Caleb Oquendo – Pexels.com

Það eru fullt af sam­sær­is­kenn­ingum þarna úti sem hjálpa til við að ýta undir ímynd­un­ar­afl hins raun­veru­lega ofsóknaræðis. Sem dæmi má nefna þær kenn­ingar um að NASA hafi falsað tungl­lend­ing­una, Paul McCartney hafi verið lát­inn síðan 1967 og eðlu­fólk stjórni heim­inum. Þó að það gæti verið erfitt að afsanna til­vist eðlu­for­ingja okkar, falla flestar þessar sam­sær­is­kenn­ingar í sundur eftir aðeins snefil af rann­sóknum. En þó að flestar sam­sær­is­kenn­ingar séu ósannar, eru alltaf nokkar sem reyn­ast sannar.

Hér eru 11 þeirra en list­inn er alls ekki tæm­andi.

11. Tuskegee sárasóttartilraunin

Árið 1932 gerði banda­ríska lýð­heilsu­gæslan sam­komu­lag við Tuskegee stofn­un­ina um að búa til falska sára­sótt­ar­með­ferð. Til­raunin, sem fólst í því að ljúga að tæp­lega 400 afrísk-amer­ískum karl­mönnum sem höfðu verið greindir með sára­sótt, átti upp­haf­lega aðeins að standa yfir í sex mán­uði. Það var hins vegar ekki fyrr en 1972 að almenn­ingur fékk vit­neskju um rann­sókn­irnar og stjórn­völd neydd­ust til að rann­saka málið og leggja verk­efnið niður.

Í 40 ár voru þessir 400 menn oft gefin hættu­leg efni og boðið upp á sárs­auka­fullar og óþarfa lækn­is­að­gerðir, hald­andi að um raun­veru­legrar með­ferðir væri um að ræða. Sú stað­reynd að pensi­lín væri orðin þekkt lækn­ing við sára­sótt var falin fyrir sjúk­ling­unum, svo rann­sak­endur gætu lært meira um sjúk­dóm­inn. Stjórn­ar­nefnd taldi að lokum rann­sókn­ina „sið­ferði­lega óábyrga“ og árið 1974 var kom­ist að sam­komu­lagi utan dóm­stól­anna um að greiða eft­ir­lif­andi þátt­tak­endum rann­sókn­ar­innar 10 millj­ónir dala auk ævi­langra sjúkra­trygg­inga.

10. MKUltra: Hugarstjórnunarnverkefni CIA

Það er fimmta ára­tug­ur­inn og njósn­arar komm­ún­ista eru alls staðar. Kalda stríðið er að hitna og það lítur út fyrir að Sov­ét­ríkin geti náð yfir­hönd­inni á banda­rísku lýð­ræði. Hvað myndir þú gera? Með von um að finna „sann­leika­lyfi“ ákvað CIA að þeir þyrftu að skammta óaf­vit­andi banda­rískum og kanadískum rík­is­borg­urum LSD í leyni og síðan yfir­heyra og pynta þátt­tak­endur af og til.

CIA greiddi sjúkra­húsum, fang­elsum og háskólum fyrir þátt­töku þeirra og þöggun. Árið 1973 fyr­ir­skip­aði Richard Helms for­stjóri CIA að öllum skjölum tengdum MKUltra yrði eytt. Þó að sam­særið hafi að lokum verið afhjúpað, „mundi“ eng­inn sem tók þátt í verk­efn­inu neinar upp­lýs­in­garn og heildar tíma­lína atburða er enn ófull­nægj­andi.

9. Vitnisburður Nayirah 1990

Í októ­ber 1990 bar 15 ára stúlka að nafni Nayirah vitni frammi fyrir banda­ríska þing­inu þar sem hún sagði að hún hefði orðið vitni að því er íraskir her­menn tóku 15 kúveitska nýbura úr hita­kassa á sjúkra­húsi og skildu þau eftir á gólf­inu til að deyja. Þessi vitn­is­burður var sýndur á um 700 sjón­varps­stöðvum víðs­vegar um Banda­ríkin. George Bush eldri end­ur­tók sög­una að minnsta kosti 10 sinnum á næstu vikum til að reyna að sveifla almenn­ings­á­lit­inu í átt að stuðn­ingi við Persaflóa­stríðið.

Vanda­málið er að atburð­ur­inn sem Nayirah lýsti var algjör upp­spuni. CIA fór fram á að Nayirah fengi leik­list­ar­kennslu áður en hún bar vitni. Einnig kom í ljós að Nayirah var dóttir sendi­herra Kúveit í Banda­ríkj­unum sem vann með stjórn­völdum í Kúveit til að stuðla að þátt­töku Banda­ríkj­anna í Persaflóa­stríð­inu. Til að bregð­ast við þessum nið­ur­stöðum sak­aði Amnesty International Bush-stjórn­ina um „tæki­fær­is­mennsku á alþjóð­legri mann­rétt­inda­hreyf­ingu“.

8. Mjallhvítaraðgerðin: Vísindakirkjan gegn ríkisstjórn Bandaríkjanna

Á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar gerðu 5.000 leyni­legir full­trúar frá Vís­inda­kirkju L. Ron Hubbards sam­særi um að fram­kvæma stærstu inn­rás inn í Banda­ríkja­stjórn í sögu lands­ins. Kirkjan smeygði sér inn í 136 stofn­anir, þar á meðal Skattinn, Fíkni­efna­eft­ir­litið, erlend sendi­ráð og aðrar opin­berar stofn­anir. Þeir settu upp sím­hler­anir og stálu hund­ruðum skjala í þeirri von að vernda kirkj­una sína og sleppa við að borga millj­ónir doll­ara í skatta.

Banda­ríkja­stjórn barð­ist á móti. Í júlí 1977 skipu­lagði FBI áhlaup á ýmsa staði Vís­inda­kirkj­unnar þar sem 156 full­trúar tóku þátt. Árásin leiddi í ljós ólög­legar aðgerðir hóps­ins gegn stjórn­völdum sem og fleiri sam­særi gegn öðrum sem álitnir voru óvinir kirkj­unnar. Þann 6. des­em­ber 1979 lauk aðgerð­inni Mjall­hvít þegar Mary Sue Hubbard, eig­in­kona L. Ron Hubbard, og 10 aðrir hátt­settir vís­inda­menn fengu fimm ára fang­els­is­dóma. L. Ron Hubbard var áfram „óákærður sam­sær­is­maður“ og eyddi því sem eftir var ævinnar í felum.

7. Launmorð CIA

Árið 1975, eftir Watergate-hneykslið, hjálp­aði öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Frank Church að finna for­vera leyni­þjón­ustu­nefndar öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings. Almennt var hún nefnd Kirkju­nefndin en til­gangur hennar var að rann­saka CIA og FBI til að tryggja að þau störf­uðu innan laga. Nefndin komst fljótt að því að CIA hafði stofnað leigu­morð­ingja­fyr­ir­tæki.

CIA bar ábyrgð á morð­unum á Mossa­degh í Íran, Allende í Chile, auk ann­arra leið­toga og bylt­ing­ar­manna í Mið- og Suður-Ameríku, Afríku, Mið­aust­ur­löndum og Austur-Asíu. Þeir létu morð þeirra líta út eins og bílslys, sjálfs­víg, krabba­mein og hjarta­á­föll. Þegar „Hjarta­á­falls­byssan“ þeirra, sem leynd var aflétt af, var ekki nauð­syn­leg, skutu full­trúar CIA skot­mörk sín með raun­veru­legum skotum. Þó að allt þetta sé skjal­fest í gögnum þings­ins, þá er samt algengt að fólk hlæji að þessu og telji þetta klikk­aða sam­sær­is­kenn­ingu.

6. Viðskiptaplottið: Fasismi í Ameríku

Árið 1933 reyndi öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Prescott Bush, faðir George Bush eldri og afi George W. Bush, að koma á valdaráni hers­ins gegn Franklin D. Roosevelt for­seta og koma á fas­ista ein­ræð­is­stjórn í Banda­ríkj­unum. Meðal þeirra sem komu að sam­sær­inu voru auð­ugir kaup­sýslu­menn frá Chase Bank, Goodyear, Standard Oil, GM og Du Pont fjöl­skyld­unni. Smedley Butler hers­höfð­ingi land­göngu­liðs­ins var beð­inn um að leiða valdaránið. Svo virð­ist þó sem eng­inn hafi farið í bak­grunns­skoðun áður en þeir nálg­uð­ust hann.

Smedley Butler, sem var mik­ill stuðn­ings­maður for­set­ans, safn­aði sönn­un­ar­gögnum um sam­særið og kynnti það fyrir þing­nefnd. Allir sem voru bendl­aðir við sam­særið neit­uðu harð­lega að hafa átt hlut að máli og aldrei voru gefnar út ákærur. Nefndin stað­festi ásak­anir Butlers en var ánægð með að hafa stöðvað sam­særið áður en það hófst. Fólkið sem studdi við­skipta­á­ætl­un­ina hélt fjár­hags­legum tengslum við nas­ista Þýska­land þar til Ameríka hóf þátt­töku í seinni heims­styrj­öld­inni.

5. Hermikrákuaðgerðin: Áróðusvél CIA

Árið 1948 var Frank Wisner skip­aður for­stöðu­maður Skrif­stofu sér­verk­efna og sagt að búa til stofnun sem væri fær um að fram­leiða áróður og taka þátt í efna­hags­legum hern­aði sem hluta af hnatt­rænu stríði gegn sov­éskum komm­ún­isma. CIA tók við emb­ætt­inu á fimmta ára­tugnum og hélt uppi leyni­legri her­ferð til að hafa áhrif á fjöl­miðla um allan heim í næstum 25 ár.

Wisner „átti“ virta með­limi The New York Times, Newsweek, CBS og ann­arra fjöl­miðla. Um 1950 voru um 3.000 starfs­menn CIA og tugir stórra alþjóð­legra fjöl­miðla sem unnu að því að við­halda flók­inni áróð­urs­vél. Wisner, sem var alltaf að leita að nýjum leiðum til að sann­færa almenn­ing um hætt­urnar af komm­ún­isma, hjálp­aði að koma teikni­mynda­út­gáfu Hollywood á Animal Farm eftir George Orwell, á kopp­inn. Kirkju­nefndin afhjúpaði sam­særið árið 1975 og reikn­aði út að það að veita heim­inum rangar upp­lýs­ingar kost­aði skatt­greið­endur 265 millj­ónir doll­ara á ári.

4. COINTELPRO: Alríkislögreglan gegn aktivistum sjöunda áratugarins

Sjöundi ára­tugur síð­ustu aldar var tími rót­tækra sam­fé­lags­breyt­inga. Gagn­menn­ingin (e. counterculture) varð að algjöru fyr­ir­bæri gegn ráð­andi öflum, sem dreifð­ist um stóran hluta hins vest­ræna heim. Til að bregð­ast við vax­andi gagn­menn­ingu stofn­aði Alrík­is­lög­reglan COINTELPRO, eða gagnnjósn­a­á­ætl­un­ina, í þeim til­gangi að „vernda þjóðar­ör­yggi, koma í veg fyrir ofbeldi og við­halda núver­andi félags­legu og póli­tísku skipu­lagi. Með öðrum orðum, til­gangur þess var að trufla ólög­lega stjórn­mála­sam­tök innan Banda­ríkj­anna.

COINTELPRO var starf­andi á árunum 1956 til 1971. Samkvæmt gögnum FBI var 85 pró­sent af fjár­munum verk­efn­is­ins varið í að jað­ar­setja, svindla sér leið inn í og trufla hópa, eins og kven­rétt­inda­hreyf­ing­una, borg­ara­rétt­inda­hreyf­ing­una, ofbeld­is­lausa borg­ara­hreif­ing­una (e. non violent civil rights movem­ent), Kyn­þátta­jafn­rétt­is­þingið, Amerísk-indjána hreyf­ing­una, og önnur borg­ara­leg rétt­inda­sam­tök. For­stjóri FBI, J. Edgar Hoover, skip­aði full­trúum sínum að „afhjúpa, trufla, mis­beina, ófrægja eða á annan hátt hlut­leysa“ starf­semi þess­ara hreyf­inga og leið­toga þeirra.

3. Bréfa­klemmu­að­gerðin: Vís­inda­menn nas­ista fengu störf í Ameríku.

Árið 1945 fékk Joint Intelligence Objectives Agency (sem ég ætla ekki að reyna að þýða) heim­ild til að bjóða yfir 1.500 þýskum vís­inda­mönnum, tækni­mönnum og verk­fræð­ingum frá Þýska­landi nas­ista og öðrum löndum, starf í Ameríku. Truman for­seti sam­þykkti áætl­un­ina með þeim skýru fyr­ir­mælum að hún næði aðeins til þeirra sem ekki reynd­ust „hafa verið með­limir nas­ista­flokks­ins, og meira en nafn­greindur þátt­tak­andi í starf­semi hans, eða virkur stuðn­ings­maður hern­að­ar­stefnu nas­ista.

Þetta þýddi að Wernher von Braun, Arthur Rudolph og Hubertus Strug­hold, sem voru skráðir sem „ógn við öryggi her­afla banda­manna“, myndu ekki fá nýja vinnu í Ameríku. The Joint Intelligence Objectives Agency töldu að þessir menn væru mik­il­vægir fyrir þróun banda­ríska eld­flauga­á­ætl­un­ar­innar, og skap­aði falskar atvinnu- og póli­tískar ævi­sögur fyrir vís­inda­menn­ina og eyði­lagði algjör­lega öll sönn­un­ar­gögn sem tengdu þá við stríðs­vél nas­ista.

2. Northwood aðgerðin: Hvernig heyja skulí stríð við Kúbu

Banda­rísk stjórn­völd tóku þátt í nokkrum brjál­æð­is­legum sam­særum á fimmta og sjö­unda ára­tugnum. Northwoods-aðgerðin var senni­lega sú ljótasta af þeim öllum. Árið 1962 ætl­aði CIA að setja á svið hryðju­verka­árásir á banda­ríska borg­ara og hern­að­ar­leg skot­mörk í Miami og Washington, kenna kúbverskum stjórn­völdum um og sann­færa banda­rískan almenn­ing um að heyja stríð á Kúbu, sem hafði nýlega kom­ist undir stjórn komm­ún­ist­ans Fidels Casto.

Áætlunin fól í sér að drepa sak­laust fólk og her­menn, sprengja í loft upp banda­rísk skip og kúbverska flótta­manna­báta, ræna flug­vélum og koma fyrir fölskum sönn­un­ar­gögnum til að bendla kúbversku rík­is­stjórn­ina. Aðgerð Northwoods var sam­þykkt af hópi her­for­ingja og kynnt varn­ar­mála­ráð­herr­anum, Robert McNamara, áður en John F. Kennedy for­seti hafn­aði henni. Af öllu því frá­bæra sem JFK er minnst fyrir, ættu Banda­ríkja­menn að vera þakk­látir fyrir að hann hafði völdin til að stöðva þessa brjál­æð­is­að­gerð.

1. Bohemian Grove: Hinir ríku, hinu valda­miklu, og risa steinuglan

Leynd­ar­dóm­arnir í kringum Bohemian Grove í Mont Rio, Kali­forníu, hafa verið í upp­á­haldi hjá sam­sær­is­kenn­inga­smiðum í mörg ár. Sögurnar fela venju­lega í sér að ríkir og valda­miklir menn hitt­ast í skóg­inum á hverju ári, þar sem þeir taka þátt í heiðnum helgi­siðum og til­biðja risa­stóra steinuglu. Að sögn spilar uglan raddupp­tökur af Walter Cronkite, með­limi hóps­ins sem lést 2009. Hljómar frekar fyndið ekki satt? Jæja, það kemur í ljós að CBS, NBC og ABC hafa stað­fest til­vist Grove.

Bóhema­klúbb­ur­inn var stofn­aður árið 1872 og fékk fljótt athygli og fjár­mögnun frá auð­ugum kaup­sýslu­mönnum. Árið 1942 hélt Grove fund fyrir Man­hattan-verk­efnið sem leiddi til sköp­unar kjarn­orku­sprengj­unnar. Þó að það sé satt að vold­ug­ustu menn í heimi koma þangað og fram­kvæmi und­ar­lega helgisiði fyrir framan risa­stóra uglu, þá er það aðal­lega bara staður fyrir valda­mikla menn til að haga sér eins og drukknir mennt­skæl­ingar.

Grein þessi er unnin upp úr grein á vefnum howstuffworks.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco