Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Maðurinn á bakvið Super Size Me látinn, 53 ára: „Þetta var sorglegur dagur“

Maðurinn á bakvið Super Size Me látinn, 53 ára: „Þetta var sorglegur dagur“
Morgan Spurlock

Leik­stjór­inn Morgan Spurlock er lát­inn eftir harða bar­áttu við krabba­mein. Hann var aðeins 53 ára.

Morgan Spurlock sló í gegn fyrir tveimur ára­tugum með heim­ild­ar­mynd­ina Super Size Me, þar sem hann skoð­aði áhrif þess fyrir heilsu sína, að borða mat frá McDonald´s skyndi­bita­keðj­unni í heilan mánuð.

Fjöl­skylda leik­stjór­ans stað­festi að hann hefði lát­ist í New York í gær, eftir veik­indi.

„Þetta var sorg­legur dagur, þegar við kvöddum Morgan bróður minn,“ sagði bróðir hans og  sam­starfs­maður Craig Spurlock í yfir­lýs­ingu sem NBC News fékk senda í dag. „Morgan gaf svo mikið með list sinni, hug­myndum og örlæti. Heim­ur­inn hefur misst sannan skap­andi snill­ing og sér­stakan mann,“ hélt hann áfram. „Ég er svo stoltur af því að hafa unnið með honum.“

Morgan vakti gríð­ar­lega athygli eftir að Super Size Me kom út í maí 2004, þar sem hann sagði frá heilsu­ferð sinni þegar hann borð­aði McDonald’s mat í mánuð. Verk­efnið, sem varpar ljósi á áhyggjur af skyndi­bita­iðn­að­inum, hlaut ósk­ar­stil­nefn­ingu fyrir bestu heim­ild­ar­mynd­ina og var síðar fylgt eftir með Super Size Me 2: Holy Chicken! árið 2017.

Morgan lætur eftir sig börnin Laken, 17 ára, sem hann á með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, Alex Jamieson og Kallen, 8 ára, sem hann á með maka sínum Söru Bern­stein.

Þó að Morgan hafi að mestu haldið sig frá kast­ljós­inu árin fyrir and­lát hans, var síð­asta Instagram færsla hans til­einkuð elsta syni hans.

„Til ham­ingju með afmælið Laken!“ skrif­aði hann í des­em­ber 2022. „Ég elska þá skap­andi, hvetj­andi og ástríðu­fullu mann­eskju sem þú ert orð­inn (svo ekki sé minnst á að vera svona epískur stóri bróðir). Við erum svo heppin að hafa þig í lífi okkar – fáðu nú öku­leyfið þitt svo þú getir keyrt mig um!“

Aft­ur­hvarf Morgan úr hinu opin­bera lífi kom í kjöl­farið af því að hann skrif­aði opið bréf í des­em­ber 2017 þar sem hann við­ur­kenndi kyn­ferð­is­brot.

„Þegar ég sit og horfi á hetju eftir hetju, mann eftir mann falla vegna for­tíð­ar­brota þeirra, sit ég ekki hjá og velti fyrir mér „hver verður næstur?“ Ég velti því fyrir mér, „hvenær munu þeir sækja mig?“,“ skrif­aði hann á sínum tíma og vís­aði til fyr­ir­sagna um vafa­sama hegðun í Hollywood. „Sjáðu til, ég skil, eftir mán­uði af þessum opin­ber­unum, að ég er ekki ein­hver sak­laus áhorf­andi, ég er líka hluti af vanda­mál­inu.“

Í kjöl­far játn­ing­ar­innar ákvað hann að yfir­gefa fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sitt, Warrior Poets.

Eins og sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins Jeremy Chilnick og Matthew Galkin sögðu E! News á þeim tíma: „Fyrir hönd Warrior Poets höfum við sem sam­starfs­að­ilar alltaf stutt fyr­ir­tækið okkar og við­leitni þess. Frá og með deg­inum í dag mun Morgan Spurlock láta af störfum þegar í stað. Við munum halda áfram að leiða fyr­ir­tækið sem jafnir sam­starfs­að­ilar og fram­leiða, dreifa og skapa frá sjálf­stæða fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu okkar.“

E! News sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco