Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bjarkey elskar að dansa – Fyndnasta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn

Bjarkey elskar að dansa – Fyndnasta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir. Mynd: Facebook

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra er undir stækk­un­ar­gleri Sjóarans. Hún hefur alla jafna í mörg horn að líta og seg­ist eiga það til að ofhugsa hlut­ina. Hún segir ískalt fjalla­vatn vera besta drykk­inn og er lítið fyrir kók og pepsí. Bjarkey Olsen er að eigin sögn rök­föst Excel-kona.

Fjöl­skyldu­hagir? Afskap­lega vel gift honum Helga mínum Jóhanns­syni. Börnin okkar eru Tímon Davíð, Klara Mist og Jódís Jana og svo eigum við barna­barnið og gull­mol­ann, hann Tristan Amor sem er 13 ára.

Menntun/atvinna? Ég er kenn­ari og náms- og starfs­ráð­gjafi að mennt og starf­aði sem slík fram til þess að ég var kjörin á þing 2013. Mat­væla­ráð­herra í dag.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Ókei – fréttir og veð­ur­fréttir – ann­ars alvöru hasar og nor­rænar glæpa­ser­íur.

Upp­á­halds­leik­ari? Hinn breski Jason Statham er alltaf frá­bær.

Upp­á­halds­rit­höf­undur? Eva Björg Ægis­dóttir.

Bók eða bíó? Alltaf bók – Þúsund bjartar sólir.

Besti matur? Naut Wellington „made by me“.

Besti drykkur? Ískalt fjalla­vatn.

Nammi eða ís? Ís.

Kók eða pepsí? Hvorugt – lítið í gos­inu, en Collab kemur endrum og sinnum inn.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Stórurð Borg­ar­firði eystri.

Hvað er skemmti­legt? Lífið og allar þær áskor­anir sem það færir mér, en svona eitt­hvað eitt – að vera með Helga mínum í ein­hvers konar úti­vist.

Hvað er leið­in­legt? Na – almennt það sem ég kalla nöldur. Annars vel ég yfir­leitt að horfa jákvætt á verk­efni dags­ins og þess vegna er ekki alveg val­kvætt að eitt­hvað sé almennt leið­in­legt. En ókei, fólk sem nennir ekki að sjá fjöl­breyti­leika lífs­ins – mér þykir það stundum leið­in­legt.

Hvaða skemmti­staður? Í dag er það ekki ein­hver skemmti­staður – mið­aldra ég. En mér þykir gaman að dansa og þar sem stuðið er hverju sinni og ég er stödd – þá er ég geim.

Kostir? Ég er kona mála­miðl­ana og lausna. Mér þykir almennt vænt um fólk og þykir gott að faðma og knúsa. Ég vil hafa skipu­lagið í lagi og er rök­föst Excel-kona.

Lestir? Ég á það kannski til að ofhugsa oft hlut­ina og verð því óþarf­lega stressuð.

Hver er fynd­inn? Svandís Svavars og Ari Eldjárn.

Hver er leið­in­legur? Öll þau sem nenna ekki að finna leiðir út úr leið­ind­unum.

Mestu von­brigðin? Ekki upp­lifað þau enn.

Hver er draum­ur­inn? Að við Helgi eld­umst fal­lega saman.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Ekki búin að afreka það enn.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Ónei – í sumar eru mörg mark­mið ekki síst í hlaupum.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég færði Helga mínum gulu rós­irnar í afgreiðsl­unni í spari­sjóðnum þar sem hann var að vinna og hann hik­aði.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Mitt elsku besta fólk – Helgi minn, krakk­arnir og ömmul­ing­ur­inn.

Stækk­un­ar­gler þetta birt­ist í nýjasta Sjó­ara­blaði Mannlífs sem má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu