Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Elísabet vígir bátinn Hrafn Jökulsson á laugardaginn:„Ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum“

Elísabet vígir bátinn Hrafn Jökulsson á laugardaginn:„Ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum“
Hrafn Jök­uls­son SI. Mynd: Facebook

Strand­hreinsi­bát­ur­inn Hrafn Jök­uls­son verður vígður á laug­ar­dag­inn. Bubbi Morthens samdi ljóð fyrir Elísa­betu Jök­uls­dóttur af því til­efni.

Á laug­ar­dag­inn mun Elísabet Jök­uls­dóttir vígja bát sem skýrður var í höf­uðið á bróður hennar, Hrafni heitnum Jök­uls­syni en athöfnin fer fram á Siglu­firði klukkan 14:00. Af því til­efni hringdi Elísabet í Bubba Morthens og spurði hann hvort hann ætti ekki til fal­leg ljóð um hafið en nokkrum mín­útum síðar hringdi hann til baka og var þá búinn að semja ljóð. Mun Elísabet lesa það við athöfn­ina.

„Ég á að vígja bát­inn og það verður frum­flutt ljóð eftir Bubba Morthens og ný sjó­ferð­ar­bæn eftir Snorra Ásmunds­son, þannig að þetta verður heil­mik­ill við­burður,“ segir Elísabet í sam­tali við Mannlíf. Og hún hélt áfram: „Þannig að þetta verður Bubbi, Snorri og ég. Ég flyt ljóðið hans Bubba, Bubbi er í útlöndum.“

Segist Elísabet hafa hringt í hann um dag­inn og spurt hann hvort hann væri með eitt­hvað ljóð um hafið. „Ég hrindi í hann og sagði „veistu um eitt­hvað ljóð um hafið, það á að fara að vígja bát?“ og hann sagði „Já, ég skal finna ljóð fyrir þig“. Og svo hafði hann sam­band fimm mín­útum seinna og sagði „Hér er ljóðið, ég var að yrkja það“.“

Samkvæmt Elísa­betu eru það Ver­ald­ar­vinir sem sjá um að reka bát­inn en Róbert Guð­finns­son útgerð­ar­maður sér um pen­inga­lega hlið­ina á rekstri báts­ins.

Hrafn Jök­uls­son, rit­höf­undur og aðgerð­ar­sinni, sem lést í sept­em­ber 2022, var síð­ustu ár sín ansi dug­legur að hreinsa fjörur á Ströndum og vakti mjög mikla athygli á mik­il­vægi þess að halda fjörum lands­ins hreinum af rusli. Báturinn Hrafn Jök­uls­son mun því halda minn­ingu og mál­efnum Hrafns á lofti um ókomna tíð.

Hrafn Jök­uls­son að hreinsa fjörur á Ströndum.

Á hóp­síðu Ver­aldra­vina á Facebook birt­ist nýverið ljós­myndir og mynd­skeið af bátnum glæsi­lega og eft­ir­far­andi texti: „Hrafn Jök­uls­son SI fluttur til Akur­eyrar með Sam­skipum og fer síðan til Siglu­fjarðar sem er hans heima­höfn. Róbert Guð­finns­son fær sér­stakar þakkir fyrir hans fram­lag til þessa verk­efnis. Þetta fal­lega fley mun gagn­ast okkur vel við hreinsun strand­lengj­unnar. Við höfum saknað vinar okkar Hrafns frá því að hann féll frá og ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum hvert sem hann fer. Laug­ar­dag 13 júlí kl. 14.00 verður ver­ald­ar­vina­dagur og hátíð á Siglu­firði. Ég hvet ykkur til þess að mæta ef þið hafið tök á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil