Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sjónvarpsstjóri sakaður um að hafa skotið verðmætan veiðihund: „Sorg fyrir mig og fjölskyldu mína“

Sjónvarpsstjóri sakaður um að hafa skotið verðmætan veiðihund: „Sorg fyrir mig og fjölskyldu mína“

Í októ­ber 1993 birt­ist frétt í Press­unni þar sem sjón­varps­stjóri Stöðvar 2 og und­ir­maður hans voru vændir að því að hafa skotið verð­mætan veiði­hund til bana á gæsa­veiðum í Húna­vatns­sýslu, í mis­gripum fyrir gæs. Nokkrir aðrir fjöl­miðlar fylgdu svo í kjöl­farið.

Pressan sagði að þeir Páll Magn­ús­son, þáver­andi sjón­varp­s­tjóri Stöðvar 2 og Ólafur Jóhanns­son, þáver­andi frétta­maður á sömu stöð, hefðu orðið fyrir þeirri „óskemmti­legu reynslu“ að skjóta verð­mætan veiði­hund sem þeir höfðu fengið að láni, hald­andi að tíkin væri særð gæs. Ekki gat Pressan upp­lýst um það hvor þeirra hefði tekið í gikk­inn en Ólafur Jóhanns­son ját­aði að lokum að hafa verið sá óheppni veiði­maður, sem skotið hefði tík­ina.

Hér má lesa frétt Pressunnar í heild sinni:

Sjón­varps­menn skjóta hund

Hrein glæp­a­starf­semi að dand­al­ast með skot­vopn í myrkri, segir varð­stjór­inn á Blöndu­ósi

Sam­starfs- og veiði­fé­lag­arnir Páll Magn­ús­son, sjón­varps­stjóri Stöðvar 2, og Ólafur Jóhanns­son urðu fyrir þeirri óskemmti­legu reynslu 6. októ­ber sl. að skjóta verð­mætan veiði­hund, sem þeir höfðu fengið að láni, í mis­gripum , fyrir gæs. Þessi atburður átti sér stað í myrkri, að kvöldi til í Húna­vatns­sýslu, nánar til­tekið á jörð­inni Þing­eyrum. Höfðu veiði­fé­lag­arnir eins og oft áður verið við skot­veiðar á þessu svæði frá því snemma morg­uns ásamt þeim Ásgeiri Heiðar veiði­hunda­þjálf­ara, (sem var hvergi nærri þegar skotið reið af) og Hermanni Ingasyni, bónda á Þing­eyrum, sem að eigin sögn fylgir ávallt þeim veiði­mönnum sem hann hleypir inn á land­svæði sitt.

Labrador­tíkin sem drapst bar nafnið Assa og var í eigu Einars Páls Garð­ars­sonar, eig­anda Veiði­húss­ins, eða Palla í Veiði­hús­inu eins og hann er oft­ast nefndur. Var tíkin talin einn besti veiði­hundur lands­ins og mjög vel þjálfuð, svo vel að hún hlýddi ávallt þeim sem hún gekk með úr húsi, hver sem það var. Engan veg­inn er hægt að meta hund­inn til fjár, en tíkin hafði verið í þjálfun hjá eig­anda sínum und­an­farin átta ár. Hafði einn við­mæl­anda PRESSUNNAR á orði að tíkin væri ekki minna en einnar millj­ónar króna virði.

Vítavert kæru­leysi

Assa var þekkt meðal veiði­manna og hunda­rækt­enda, enda „starf­aði“ hún dags­dag­lega í Veiði­hús­inu ásamt eig­anda sínum á milli þess sem hann tók hana með sér í veiði­ferðir.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir fékkst ekki upp­lýst hvor þeirra það var sem hleypti voða­skot­inu af. Í sam­tali við PRESSUNA vildi Ólafur ekki segja „orð“ um málið og ekki náð­ist í Pál Magn­ús­son þar sem hann er staddur erlendis.
Þrátt fyrir að hér væri um óvilja­verk að ræða þykir málið hneisa í alla staði. Ástæðan er að „góðir“ veiði­menn skjóta ekki út í loftið í niða­myrkri. Það er ein af gullnum reglum góðs veiði­manns. Sagt er að slíkt voða­skot hjá vönum veiði­manni eigi sér engin for­dæmi hér á landi. “víta­vert kæru­leysi,“ sagði kunnur veiði­maður sem þekkir vel til máls­ins í sam­tali við PRESSUNA.
Þór Gunn­laugs­son lög­reglu­varð­stjóri á Blöndu­ósi hafði ekk­ert fengið um málið í sínar hendur, enda var það ekki kært. Hann hafði að vísu lesið um það í DV að veiði­hundur hefði verið skot­inn á gæsa­veiðum en grun­aði ekki að skot­inu hefði verið hleypt af innan síns umdæmis. Hann er vanur að fast við skot­veiði­menn á þessu svæði: „Það er alveg út í hött að vera að vafra um með skot­vopn og sjá ekki glóru. Vanir veiði­menn eru komnir af stað síðla nætur og bíða eftir birt­ingu til að skjóta. Þeir skjóta ekki þegar dimma tekur! Það er alveg sitt­hvað að vera að dand­al­ast með skot­vopn um nótt í bika­myrkri. Það er bara hrein glæp­a­starf­semi. Maður hefði getað orðið fyrir skoti,“ sagði varð­stjór­inn.

Á sel­veiðum?

Hermann Ingason, stað­festi í sam­tali við PRESSUNA að slys hefði orðið en vildi heldur ekk­ert um málið segja annað en að það hefði verið orðið skugg­sýnt og haff hefði verið sam­band við alla hugs­an­lega dýra­lækna á Norð­ur­landi til þess að reyna að bjarga tík­inni. Fyrir neðan jörð­ina Þing­eyrar er Vatns­dalsá, sem rennur til sjávar þar aðeins utar. Án þess að hafa kom­ist að nákvæmri stað­setn­ingu slyss­ins hefur PRESSAN það eftir öruggum heim­ildum að annar hvor þeirra Stöðvar tvö manna hafi skotið í blindni á það sem skvamp­aði í vatn­inu, sem þeir töldu særðan fugl sem þeir voru nýbúnir að skjóta og þyrfti að aflífa. Grasið við bakk­ann var hátt og eins og fyrr segir var myrkur og þeim því ger­sam­lega byrgð sýn á bráð­ina. Eftir því sem PRESSAN kemst næst mun skotið hafa hæft hund­inn í fót­inn. Að sögn fróðra manna merkir það að tíkin hafi að mestu leyti staðið upp úr vatn­inu. Hún hefði því átt að vera sýni­leg, þ.e. í birtu.
„Voru þeir ekki bara á sel­veiðum? Fuglar skvampa ekki í vatni nema þetta hafi verið anda­veiðar. Það er svo mikið af sel einmitt þarna hjá Þing­eyrum í Vatns­dalsánni. Gæti ekki verið að þeir hefðu skotið hund­inn í mis­gripum fyrir sel?“ bætti varð­stjór­inn á Blöndu­ósi við.

Mikill missir

Sigurður H. Pét­urs­son, hér­aðs­dýra­læknir á Merkja­læk, var einn þeirra sem önn­uð­ust hund­inn eftir slysið. Hann vildi ekki frekar en aðrir tjá sig um málið þar sem um einka­mál væri að ræða á milli sín og skjól­stæð­inga sinna.
„Þetta er ómet­an­legur missir og sorg fyrir mig og fjöl­skyldu mína,“ sagði Einar Páll, eig­andi hunds­ins, en hann vildi ekki upp­lýsa PRESSUNA um hvað hann ætl­aði að gera í fram­hald­inu.
Einar er virkur veiði­maður og því harla ólík­legt að hann þiggi óþjálf­aðan hvolp í sára­bætur, þar sem það tekur langan tíma að þjálfa upp hund. Enn­fremur er talið ólík­legt að ein­hver hér á landi láti af hendi vanan veiði­hund, ekki síst vegna þess að menn eru oft­ast til­finn­inga­lega tengdir hundum sínum. Eftir því sem PRESSANkemst næst yrði lík­leg­asta leiðin til að bæta Einari Páli miss­inn sú að kaupa að utan grunn­þjálf­aðan hund, en þeir eru seldir mis­mun­andi mikið þjálfaðir af sér­stökum búgörðum. Inn­fluttur grunn­þjálf­aður hundur kostar hátt í hálfa milljón króna.

Eins og fram kemur í frétt­inni gat Pressan ekki stað­fest hver það hafi verið sem tók í gikk­inn og drap veiði­hund­inn en þrátt fyrir það full­yrti Alþýðu­blaðið að Páll Magn­ús­son hefði verið sá óheppni.

Hér má lesa þá stuttu frétt:

Sjón­varps­stjóri skýtur hund

Labrador­tíkin Assa, dýr­mætur veiði­hundur, féll fyrir kúlna­hríð Páls Magn­ús­sonar,sjón­varps­stjóra á Stöð 2,sam­kvæmt áreið­an­legum upp­lýs­ingum Alþýðu­blaðs­ins. Frá þessu máli greinir í síð­ustu Pressu. Veiði­menn fara nú trylltir um og skjóta sér til matar gæs og rjúpu, enda veitir ekki af á síð­ustu og verstu tímum að fylla mat­ar­kist­unnar. Það er talað um blóð­bað á veiðislóðum. Greini­legt er að allt kvikt er í hættu, ekki bara rjúpan og gæsin, heldur líka menn og hundar. Nánast allar reglur, skráðar sem óskráðar em sagðar bromar af byssu­mönnum. Máls­at­vik voru þau að tveir veiði­menn á Stöð 2 voru að leita gæsar í landi Þingeyra, en sú jörð er í eigu Ingi­mundar Sig­fús­sonar, stjórn­ar­for­manns Stöðvar 2. Héldu þeir áfram að skjóta eftir að rökkva tók. Það gera ekki góðir veiði­menn. Árang­ur­inn varð sá að veiði­hund­ur­inn Assa féll í val­inn, tek­inn í mis­gripum fyrir gæs. Pressan segir að tjónið sé upp á eina milljón króna.

Ólafur Jóhanns­son skrif­aði nokkru síðar langa grein í Morg­un­blað­inu, þar sem hann starfar í dag, en þar svarar lýsir hann atburða­rásinni sem varð til þess að tíkin Assa var skotin í mis­gripum fyrir særða gæs. Í stuttu máli sagði hann óvíst hver hefði skotið tík­ina en sagði þá alla bera ábyrgð, enda hefðu þeir verið sam­mála um að þar væri særð gæs á ferð. Þá var frétta­mað­ur­inn afar harð­orður í garð þeirra frétta­miðla sem fjöll­uðu um máli og kallað þá „sorp­s­nepla“. Harð­neit­aði hann að þeir félagar hefðu verið drukknir við veið­arnar og að um kolniða­myrkur hafi verið um að ræða.

Meðal þess sem Ólafur sagði í svar­grein sinni sem hann nefndi Hundur í sorp­s­neplum, var eft­ir­far­andi:

„Það vekur nokkra furðu mína og reyndar okkar allra sem að þessu máli komum, að nokkrir fjöl­miðlar skyldu telja það frétt að hundur hefði orðið fyrir skoti. Mér er t.d. kunn­ugt um að hundur hafi orðið fyrir skoti gæsa­veiði­manna í Þykkva­bænum í fyrra­haust og drep­ist og þrjá menn kann­ast ég við sem orðið hafa fyrir því að skjóta hund. I engu þess­ara til­vika var sögð frétt af atburð­inum. Þess vegna er eðli­legt að.draga þá ályktun að Pressan, Tíminn, Sviðs­ljós og Alþýðu­blaðið hafi talið frétt­ina fel­ast í því, hverjir hlut áttu að máli, ekki í því hvað var gert.“

Annars staðar í grein­inni segir hann:

Eftir þennan hörmu­lega atburð sem okkur féll öllum mjög þungt, var ákveðið að láta það liggja á milli hluta, hver það var sem var svo ólán­samur að taka í gikk­inn. Enda vorum við sam­mála um það, og þar efað­ist eng­inn, að þarna væri fugl á ferð. Töldum við að allir ættum við hlut að þessu máli og bæri hver um sig þar nokkra ábyrgð. Enda munum við allir taka þátt í því að bæta eig­anda tík­ur­innar tjón hans. Á þess­ari stundu grun­aði engan okkar hvað fylgja myndi í kjöl­farið í kjafta­sögum, slúðri, rógi og lygum í óvönd­uðum fjöl­miðlum. Nú er hins vegar svo komið að und­ir­rit­uðum þykir nóg um kjafta­gang­inn og upp­lýs­ist það hér með að það var sá sem þetta skrifar sem var svo ólán­samur að taka í gikk­inn kvöldið umrædda við Húnavatn.

Hag­mæltur Þing­ey­ingur samdi svo vísu um málið en Tíminn birti hana, auk Vík­ur­frétta:

Slysa­skot

Vegna blaða­skrifa um þann atburð þegar gæsa­veiði­menn skutu í mis­gripum veiði­tík skrif­aði Ólafur Jóhann­es­son frétta­maður á Stöð 2 grein í Morg­un­blaðið fyrir nokkrum dögum þar sem hann skýrði frá til­drögum þessa slyss og að hann hefði óvart skotið tík­ina í rökkri og verið ódrukk­inn. Af þessu til­efni orti hag­mæltur Þing­ey­ingur þessa vísu sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði Vík­ur­frétta á Húsavík:

Hausts í myrkri gæsin grá,
gjarnan friðar nýtur.
Illa fullur, einmitt þá
Ólafur hunda-skýtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni