Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Quincy Jones er látinn: „Hvílíkt líf!“

Quincy Jones er látinn: „Hvílíkt líf!“
Blessuð sé minn­ing hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Quincy Jones, Grammy-verð­launa fram­leið­and­inn og tón­skáldið sem vann með ótelj­andi tón­list­ar­mönnum, þar á meðal Frank Sinatra og Michael Jackson, er lát­inn 91 árs að aldri, að því er Arnold Robinson, blaða­full­trúi hans, greindi frá í yfir­lýs­ingu í gær.

Jones lést á heim­ili sínu í Bel Air í Kali­forn­íu­ríki, sam­kvæmt Robinson og var hann umkringdur börnum sínum, systk­inum og öðrum nánum fjöl­skyldu­með­limum á dána­stundu.

„Í kvöld, með nið­ur­brotnum hjörtum, sem einnig eru full af ást, verðum við að deila fréttum af and­láti föður okkar og bróður Quincy Jones,“ sagði fjöl­skylda hans í yfir­lýs­ingu sem NBC News fékk. „Og þó að þetta sé ótrú­legur missir fyrir fjöl­skyldu okkar, þá fögnum við hinu frá­bæra lífi sem hann lifði og vitum að það verður aldrei annar eins og hann.“

„Hann er sann­ar­lega ein­stakur og við munum sakna hans sárt,“ hélt fjöl­skyldan áfram. „Við huggum okkur og erum gríð­ar­lega stolt af því að vita að ást­inni og gleð­inni, sem var kjarn­inn í til­veru hans, var deilt með heim­inum í gegnum allt sem hann skap­aði. Með tón­list sinni og tak­marka­lausri ást mun hjarta Quincy Jones slá um eilífð.“

Glæsi­legur fer­ill hins inn­fædda Chicago-búa sem útsetj­ari og tón­skáld hófst um miðjan fimmta ára­tug síð­ustu aldar og spann­aði yfir sjö ára­tugi í skemmt­ana­brans­anum og starf­aði hann við hlið fjöl­margra goð­sagna þar á meðal Ray Charles, Count Basie og Duke Ell­ington.

Jones, sem lætur eftir sig bróður, tvær systur og sjö börn, þar á meðal leikkon­urnar Kidada Jones og Rashida Jones, vann til fjölda verð­launa, þar á meðal 28 Grammy-verð­launa, sem varð til þess að hann var þriðji lista­mað­ur­inn til að hljóta flest Grammy-verð­laun. Þá fram­leiddi hann stóra smelli á borð við We Are The World frá 1985, upp­taka sem átti eftir að verða mest selda smá­skífan allra tíma.

Jones fram­leiddi einnig nokkrar af stærstu plötur tón­list­ar­sög­unnar, þar á meðal Off The Wall, Bad og Thriller eftir Michael Jackson, auk vin­sælla sjón­varps­þátta eins og The Fresh Prince of Bel Air, sem varð til þess að Jones varð einn far­sæl­asti fram­leið­and­inn í geir­anum.

Til við­bótar við fram­úr­skar­andi feril sinn sem tón­skáld, plötu­fram­leið­andi, sjón­varps­fram­leið­andi og útsetj­ari starf­aði Jones einnig sem kvik­mynda­fram­leið­andi, hljóm­sveit­ar­stjóri, fram­kvæmda­stjóri plötu­fyr­ir­tækis og við mann­úð­ar­störf. Árið 2018 tjáði Jones sig um það sem hann var stolt­astur af í gegnum tíð­ina.

„Að allt sem ég finn, get ég nótað tón­list­ar­lega,“ sagði hann við Vulture á sínum tíma. „Það geta ekki margir gert það. Ég get látið hljóm­sveit spila eins og söngv­ari syngur. Það er það sem útsetn­ing er og það er frá­bær gjöf.“

Jones benti á: „Allt var eitt­hvað til að vera stoltur af – algjör­lega. Þetta hefur verið ótrú­leg and­stæða teg­unda tón­listar. Síðan ég var mjög ungur hef ég spilað alls kyns tón­list: Bar mitzvah tón­list, Sousa mars, nekt­ar­dans­klúbbatón­list, djass, popp. Allt. Ég þurfti ekki að læra neitt til að gera Michael Jackson.“

Á þeim tíma sagði Jones einnig frá vinnu hans við ný verk­efni, þar á meðal streym­is­þjón­ustu sem snérist um djass. „Ég trúi því ekki að ég sé enn að taka þátt í svona hlutum,“ sagði hann við mið­il­inn. „Ég hætti að drekka fyrir tveimur árum og mér líður eins og ég sé 19 ára. Ég hef aldrei verið jafn skap­andi. Þetta er ótrú­legt maður, hví­líkt líf!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu