Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“.

Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn 41 árs gamli So seg­ist hafa tekið eftir því að þil­farið hall­aði í „45 gráðu horn“ og byrj­aði að taka upp dramat­ískt mynd­band af örvænt­ing­ar­fullum far­þegum sem halda fast í veggi og borð.

Í mynd­band­inu má sjá má staf­ræna aug­lýs­inga­töflu renna um gólfið og lenda á einum skelk­uðum far­þega sem ýtti henni frá sér áður en hann tók í hönd konu og hljóp í burtu. Dan seg­ist hafa haldið „að hann myndi deyja“ þar sem skipið hafi legið í gríð­ar­legum halla í „um það bil þrjár mín­útur“ en hann var svo sann­færður um örlög sín að hann sendi jafn­vel kveðju­skila­boð til vinnu­fé­laga sinna.

Skipið hafði lent í stormi undan strönd Tenerife á Spáni og Royal Carribean-fyr­ir­tækið segir að einn gest­anna hafi slasast. Annað mynd­skeið sem tekið var eftir að skipið hafði náð jafn­vægi sýnir hluti í einni af versl­unum á þil­fari skips­ins á víð og dreif um gólfið, þar sem ein kona virð­ist vera að ríf­ast við starfs­fólk.

Dan, sem er stofn­andi tækni­sprota­fyr­ir­tæk­is­ins Bookeeping.ai, segir að það hafi verið „mik­ill léttir“ þegar þrautin var yfir­staðin og telur að þetta sé merki um að lofts­lags­breyt­ingar hafi áhrif á sjó­ferðir. Sagt er að 12 nátta sigl­ingin hafi neyðst til að taka ófyr­ir­séð stopp í Las Palmas á Spáni, svo slas­aðir gestir gætu farið frá borði en hún er nú aftur komin af stað.

Dan, sem er frá Toronto í Kanada, sagði: „Þegar ég fór út af kránni heyrði ég öskur, glös féllu um og skipið var farið að hall­ast. Maður sá heilt aug­lýs­inga­skilti lenda á strák og hann bjargar sér og grípur kærust­una sína. Hann var í losti. Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri eðli­legur hlutur en því meira sem ég heyrði fólk öskra þá varð ég hræddur og varð að slökkva á mynd­band­inu. Í mynd­band­inu sést ekki fullur halli á skip­inu, heldur bara hálfur halli. Þetta var eins og Titanic. Ein­hverjir sögðu mér að koma til þeirra svo við héldum hvort öðru og stól­unum í kringum okkur. Ég hafði haldið að þetta gæti verið enda­lokin og skipið væri að sökkva í sjó­inn. Ég tók upp sím­ann minn og sendi sam­starfs­mönnum mínum skila­boð um að ég vissi ekki hvað myndi ger­ast og að fara vel með sig.“

Hann hélt áfram: „Ég var að skrifa síð­ustu skila­boðin með það í huga að ég myndi deyja. Venju­lega vaggar skipið í öldu­gang­inum en í þetta skipti hall­aði það á annarri hlið­inni í  fimm mín­útur. Það hélt stöðu sinni í um það bil þrjár mín­útur. Þegar það hall­aði aftur var það mik­ill léttir og ég átt­aði mig á því að við höfðum lifað af eitt­hvað stórt. Ég fæ hroll við að horfa á mynd­bandið og núna finnst mér ég hafa fengið nýtt líf því við héldum að við værum að deyja. Þetta sýnir að lofts­lags­breyt­ingar eru að valda ein­hverju sem jafn­vel reyndir skip­stjórar hafa ekki séð.

Talið er að skipið hafi lent í sjáv­ar­skafli, sem er skyndi­legur stormur sem oft verður á sjó, og vindur þess velt skip­inu. Dan seg­ist hafa íhugað að hætta við skemmti­sigl­ingu sína, nótt­ina sem óveðrið átti sér stað en hann hefur notið ferð­ar­innar og telur nú að hann muni halda bók­un­inni.

Þetta var í fyrsta skipti sem Dan fór í skemmti­sigl­ingu en hann full­yrðir að hann hafi talað við far­þega sem höfðu siglt í 30 ár og þeir hefðu aldrei upp­lifað neitt svipað. Hann merkti TikTok mynd­bandið sitt með eft­ir­far­andi orðum „Skemmti­ferða­skip lenti í sjó­skafli í Atl­ants­hafi og hall­aði í 45 gráður“.

Haft hefur verið sam­band við Royal Caribbean til að fá við­brögð. Tals­maður Royal Caribbean sagði í skrif­legu svari: „Í óvæntum vind­hviðum nálægt Tenerife á Spáni fór skip í einni af ferðum okkar á skyndi­lega hreyf­ingu. Einn gestur slas­að­ist og þurfti á frek­ari lækn­is­að­stoð að halda, sem leiddi til þess að skipið kom við á Las Palmas á Spáni til að fara með hinn slas­aða frá borði. Við komum þessum breyt­ingum á ferð­inni beint á fram­færi við gesti okkar.“

Hér má sjá mynd­bandið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco