Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kosningafundur barna haldinn í Norræna húsinu

Kosningafundur barna haldinn í Norræna húsinu
Norræna húsið. Mynd: Salir.is

Ráð­gjaf­ar­hópur umboðs­manns barna efnir til sér­staks kosn­inga­fundar með full­trúum þeirra fram­boða sem bjóða fram til næstu alþing­is­kosn­inga. Fund­ur­inn verður hald­inn þann 20. nóv­em­ber kl. 16:00 í Norræna hús­inu, og mark­miðið er að vekja athygli á mál­efnum barna.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu er kosn­inga­fund­ur­inn hugs­aður sem vett­vangur fyrir börn til þess að beina spurn­ingum til fram­bjóð­enda um helstu áherslur flokk­anna í mál­efnum barna auk spurn­inga um þau mál­efni sem helst brenna á þeim. Fund­ur­inn verður tek­inn upp og gerður aðgengi­legur á vef­síðu umboðs­manns barna,

www.barn.is

, að honum loknum. Eingöngu börn og ung­menni verða í salnum, meðal ann­ars frá ung­menna­ráðum, og er nauð­syn­legt að skrá sig fyrir fram á fund­inn.

Spyrlar verða full­trúar frá ráð­gjaf­ar­hópi umboðs­manns barna og verður sam­tali við fram­bjóð­endur skipt í þrjá hluta, þar sem þrír til fjórir fram­bjóð­endur verða til svara hverju sinni. Ef tími gefst verður börnum í sal gefið tæki­færi á því að spyrja fram­bjóð­endur spurn­inga. Fundinum lýkur eigi síðar en kl. 17:15. Nákvæm dag­skrá fund­ar­ins verður birt af vef­síð­unni www.barn.is þegar nær dregur.

Í frétta­til­kynn­ing­unni er einnig vakin athygli á því að Krakk­aRÚV og umboðs­maður barna standa fyrir krakka­kosn­ingum í fjöl­mörgum grunn­skólum lands­ins og er þetta í sjö­unda sinn sem þær fara fram. Markmið krakka­kosn­inga er að kynna kosn­ing­arnar fyrir börnum og gefa þeim tæki­færi á því að láta skoð­anir sínar í ljós. Kosn­ing­arnar fara fram dag­ana 25.-27. nóv­em­ber. Nið­ur­stöður verða kynntar í upp­hafi kosn­inga­sjón­varps RÚV þann 30. nóv­em­ber nk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag