Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sigríður setur kennaraverkfallið í samhengi: „Svona ástand er streituvaldandi“

Sigríður setur kennaraverkfallið í samhengi: „Svona ástand er streituvaldandi“
Sigríður Eir Zophoníasardóttir kenn­ari vill sann­girni – Mynd: Facebook

Und­an­farnar vikur hafa átt sér miklar umræður í íslensku sam­fé­lagi um verk­fall kenn­ara en nokkrir skólar á mis­mun­andi skóla­stigum eru í verk­falli í stað þess að allir kenn­arar séu í verk­falli á sama tíma eins og venjan er. Ekki eru allir sáttir með aðgerðir kenn­ara og gengur illa hjá við­semj­endum að kom­ast að sátt í deil­unni.

Sigríður Eir Zophoníasardóttir kenn­ari birt í gær áhuga­verðan pistil um málið þar sem hún reynir að setja það í sam­hengi.

„Ég er stoltur kenn­ari. Lengst af hef ég verið kenn­ari í leik­skóla en ég hef líka komið við á grunn­skóla­stig­inu, sinnt stunda kennslu í háskóla og vinn nú sem leik­list­ar­kenn­ari í Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ. Ég er búin að fylgj­ast með umræð­unni í þess­ari kjara­bar­áttu og langar að gera til­raun til að setja hlut­ina aðeins í sam­hengi.

Við erum öll sam­mála um það að verk­föll kenn­ara bitna á börnum en við erum líka öll sam­mála um að verk­föll eru alltaf örþrifa­ráð og kannski gott að við rifjum upp hvers vegna er verið að grípa til þess­ara aðgerða núna. Það er vegna þess að það er ekki búið að efna gefna samn­inga en þær efndir stranda ekki á kenn­urum, það strandar á sveita­fé­lögum og ríki. Við erum líka sam­mála um að svona ástand er streitu­vald­andi fyrir börn og for­eldra en það væri ekk­ert betra að vera í streitu og multi-taski í dög­unum með börnin heima og vinn­una á bak­inu ef öll börn væru skóla­laus. Því bið ég ykkur kæru for­eldrar sem eruð að bug­ast yfir ástand­inu að beina reiði ykkar þangað sem hún á heima. Ekki beina reið­inni að fólk­inu sem sinnir börn­unum ykkar alla daga af alúð og kær­leika á allt of lágum launum við aðstæður og álag sem fæst ykkar myndu láta bjóða ykkur í ykkar störfum. Leggj­umst ekki jafn lágt og frétta­konan gerði á dög­unum í við­tali við for­mann Kenn­ara­sam­bands­ins þegar hún svo­leiðis missti kúlið og gerð­ist þar með hold­gerv­ingur þess sem rót vand­ans snýst einmitt um; virð­ing­ar­leysi á virð­ing­ar­leysi ofan gagn­vart þess­ari stétt og þeirri vinnu sem við vinnum,“ skrif­aði kenn­ar­inn.

Krefj­andi vinnu­að­stæður

Sigriður segir að verk­föll bitni vissu­lega á börnum en það ein­fald­lega þurfi að hækka laun kenn­ara. Það sé mikil starfs­manna­velta og kenn­arar brenni út og krakkar þurfi stöð­ug­leika. Hún segir að gefin lof­orð um laun hafi ekki verið efnd og það bitni á börnum. Ekki sé hægt að gera kenn­ara ábyrga fyrir því.

„Að vera kenn­ari snýst um að inn­ræta sam­kennd

Að vera kenn­ari snýst um að kenna sam­skipti

Að vera kenn­ari snýst um að æfa til­finn­inga­læsi

Að vera kenn­ari snýst um að byggja upp trú ein­stak­lings­ins á sjálfu sér

Að vera kenn­ari snýst um að grípa mann­eskjur áður en þær leið­ast út í sjálfs­skaða

Að vera kenn­ari snýst um að hlúa að sálum sem eru þungar eða týndar

Að vera kenn­ari snýst um að hugga fólk

Að vera kenn­ari snýst um að hjálpa for­eldrum að vinna saman í upp­eldi

Að vera kenn­ari snýst um að koma auga á krumpið í hjört­unum og hjálpa til við að slétta úr því

Að vera kenn­ari snýst um að hafa trú á hverjum ein­asta ein­stak­lingi sem við sinnum og kveikja á ljós­inu í hjart­anu því þegar við höfum trú á mann­eskju þá getur hún risið upp úr hverju sem er og jafn­vel sigrað heim­inn.

Og þetta gerum við dag eftir dag á of lágum launum, oft á tíðum í mjög krefj­andi vinnu­að­stæðum, streitu, hávaða og und­ir­mönnun en samt göngum við til vinnu alla daga vegna þess að við brennum fyrir einmitt þessum börnum sem nú þurfa því miður sum að sitja heima til þess að und­ir­strika mik­il­vægi okkar því þetta mik­il­vægi virð­umst við stöðugt þurfa að minna á þvert á okkar löngun. Við erum flest í þessu giggi vegna brenn­andi ástríðu á starf­inu okkar, vegna þeirrar ábyrgðar sem við finnum til gagn­vart börnum og ung­lingum, vegna þess að okkur langar til að gera heim­inn að betri stað. Svo ekki setja þá ábyrgð á okkur núna að við séum að bregð­ast börnum þegar við stöndum upp fyrir okkur og stétt­inni okkar. Við erum að berj­umst fyrir betri kjörum til að geta enst í þessu starfi, til þess að geta gert enn betur og til þess einmitt að bregð­ast engum börnum. Að hlúa að kenn­urum og búa þeim mann­sæm­andi vinnu­að­stæður og launa­kjör er mesta for­varn­ar­starf sem sam­fé­lag getur nokkru sinni unnið,“ heldur Sigríður áfram.

Hún vill að fólk muni hvar ábyrgðin liggur. Hún vill að fólk beini orðum sínum að þeim sem hafa völd til að binda endi á ástandið því að þetta snú­ist ein­fald­lega um sann­girni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag