Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Marinó þekktasti svindlari landsins lést á Filippseyjum: „Setti bara smá vodkalögg á kaffibrúsann“

Marinó þekktasti svindlari landsins lést á Filippseyjum: „Setti bara smá vodkalögg á kaffibrúsann“

Marinó Ein­ars­son var lit­ríkur karakter sem rataði í ítekað fréttir vegna svika­mála á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Hann kynnti sig meðal ann­ars sem dönsku­kenn­ara, heila­skurð­lækni og bróður hins marg­verð­laun­aða hesta­manns, Sig­ur­björns Bárð­ar­sonar.

Marinó fædd­ist árið 1961 og ólst upp í Hafn­ar­firði. Ungur lenti hann upp á kant við skóla­kerfið og var far­inn að selja áfengi og sígar­ettur á svarta mark­aðnum. Hafði hann orðið sér úti um varn­ing­inn um borð í erlendum skip í höfn­inni. Hann stund­aði síðar sjó­mennsku og þótti hörku­dug­legur til vinnu.

Vodkalögg á kaffibrúsann

Ekki leið á löngu þar til Marinó fór að sýna á sér fleiri hliðar. Eitt haustið réði hann sig sem dönsku­kenn­ara í grunn­skóla á Suð­ur­landi, kvaðst vera Dani og bar danskt nafn. Marinó varð strax hrókur alls fagn­aðar. Skóla­ganga Marinós hafði aftur á móti verið með stysta móti og hafði hann vart lokið grunn­skóla. Það vakti athygli hvað Daninn káti hafði náð góðum tökum á íslensk­unni en dönsku­kunn­áttan var ekki á pari. Reyndar þóttu nem­endur Marinós lipr­ari í tungu­mál­inu.

Aðspurður síðar um reynsl­una af kennslu kvað Marinó hana verið góða. „Þetta gekk mjög vel, þakka þér fyrir, ég setti bara smá vod­ka­lögg á kaffi­brús­ann.“

Guðhræddi Færeyingurinn

Marinó tók eina ver­tíð í Ólafsvík og kynnti sig þar sem guð­hræddan Færeying. Kvaðst hann vera með svarta beltið í karate og sér­fræð­ing í sigl­inga­fræði. Sitthvað þótti þó vanta upp á fær­eysk­una svo og kunn­átt­una í sigl­inga­fræði. Fjótlega sáu heima­menn í gegnum hann en þó ekki allir eins og Alfons Finnsson sagði í sam­tali við Helg­ar­póst­inn árið 1995: „Hann var alveg kostu­legur og ég get svarið það að faðir minn, sem er Fær­ey­ingur, stendur enn á því að Marinó sé landi hans.“

Alfons sagði í sama við­tali sögu af því þegar Marinó hugð­ist sýna sam­starfs­fé­laga úr Ólafsvík hús sitt á Arn­ar­nesi. „Það er ekki að því að spyrja, hann ók upp að flottasta hús­inu, en þegar þeir voru á leiðnni inn kveðst hann allt í einu hafa gleymt lyklunum hjá móður sinni í Færeyjum.“

Sterkefnaði skipstjórinn

Á tíma­bili kynnti Marinó sig sem sterk­efn­aðan skip­stjóra á einum afla­hæsta tog­ara lands­ins. Í bók­inni Sérstæða saka­mál, sem Jóhanna S. Sig­þórs­dóttir, skráði segir að Marinó hafi sagt fólki, einkum konum, að þrátt fyrir riki­dæmið hefði lífið ekki alltaf verið honum auð­velt. Með tárin í aug­unum sagði hann konu sína hafa ekið ásamt barni þeirra í Vest­manna­eyja­höfn. Hefði hann náð að bjarga barn­inu en kona hans farist.

Marinó náði með sög­unni að heilla konu sem var dóttir hjóna sem ráku þjón­ustu­fyr­ir­tæki fyrir sjáv­ar­út­veg. Hann plat­aði þau til fram­leiðslu á dýrum tog­ara­hlerum en þegar honum var til­kynnt að þeir væru til­búnir flúði hann heim­ilið með þeim orðum að hann væri að fara í kvöld­verð með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.

Hinum raun­veru­lega skip­stjóra á umræddum tog­ara, Benóný Ben­ón­ýs­syni, var ekki skemmt þegar fjöldi kvenna sem Marinó hafði svikið hafði sam­band við hann. „Þetta finnst mér ekki mik­ill heiður,“ sagði Benóný aðspurður.

Marinó hafði þá flutt upp á Skaga þar sem hann hélt leiknum áfram áður en upp um hann komst. Fór hann þá vestur á firði og end­ur­tók leik­inn þar til upp um hann komst.

Guðmundur heilaskurðlæknir verður til

Marinó breytti sög­unni í kjöl­farið fór að kynna sig sem mik­inn hesta­mann og eig­anda fjölda gæð­inga. Á hesta­mótum erlendis kynnti hann sig sem bróður Sig­ur­björns Bárð­ar­sonar og voru honum allar dyr opnar í hesta­við­skiptum í kjöl­farið. Ferð­að­ist hann um sveitir lands­ins og keypti hesta til útflutn­ings.

Sig­ur­björn Bárð­ars­son þurfti að leita til lög­reglu til að sverja af sér all­ann skyld­leika við Marinó.

Ekki löngu eftir það hafði norska lög­reglan sam­band við Sig­ur­björn og spurði hann út í heila- og tauga­skurð­lækn­inn Guðmund Ólafsson sem væri að kaupa hesta sem nýta ætti til end­ur­hæf­inga­starfs fyrir sjúk­linga í Noregi. Þar var Marinó á ferð og hafði enn notað nafn Sig­ur­björns í svindlinu. Fljót­lega vakn­aði þó grunur um að ekki væri allt með feldu og hafði einn hesta­maður sam­band við Lækna­fé­lagið sem til­kynnti honum að eini íslenski lækn­ir­inn með þessu nafni væri lát­inn.

Fékk tár í augun og allt

Í dag­blöðum frá þessum tíma er að finna fjölda frá­sagna ein­stak­linga af kynnum sínum við Marinó. Í Helg­ar­póst­inum árið 1995 er að finna frá­sögn Kristen M. Svenson, banda­rískrar konu sem hafði aug­lýst eftir hestum til kaups. „Í for­stof­unni á leið­inni út fór hann svo allt í einu að útskýra af hverju hann, þessi frá­bæri reið­maður, hefði sést svona lítið á hesta­manna­mótum. Ástæðuna kvað hann þá að hann hefði misst son sinn úr hvít­blæði – hann fékk tár í augun og allt.“

Fjöldi ein­stak­linga hafði bæði ama og kostnað af svindli Marinós. Aðrir munu hafa haft gaman af lyga­sögum hans og höfðu ein­hverjir á orði að hann ætti Ósk­arsverð­laun skilið, svo fær var Marinó í að spinna sögur.

Marinó lenti í alvar­legu vinnu­slysi í Noregi áður en hann flutti til Fil­ipps­eyja þar sem hann veikt­ist hast­ar­lega og lést langt um aldur fram árið 2011.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 5. maí 2021 og skrif­aði Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir hann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni