Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenskur sölumaður spænskra fasteigna féflétti samlanda sína: „Maðurinn hefur mikinn sefjunarmátt“

Íslenskur sölumaður spænskra fasteigna féflétti samlanda sína: „Maðurinn hefur mikinn sefjunarmátt“
Spánn – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Balate Dorin / Getty Images/iStockphoto

Spánn hefur lengi verið vin­sæll áfanga­staður sól­þyrstra Íslend­inga og hafa margir gengið svo langt að flytja þangað á meðan aðrir hafa látið sér duga að eiga þar sum­ar­hús. Um mitt árið 1986 not­færði sér óprútt­inn sölu­maður vin­sældir Íslend­inga á land­inu með því að féflétta það.

Bak­sýn­is­speg­ill kvölds­ins fjallar um stór­felld fjár­svik sölu­manns fast­eigna á Spáni en fjöl­margir ein­stak­lingar voru dregnir á asna­eyr­unum af íslenskum sölu­manni sum­ar­húsa á Spáni.

Sölu­mað­ur­inn var umboðs­maður spænskra selj­enda en hann var kærður af Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins fyrir að standa ekki skil á um 600 þús­und króna greiðslu sem hann hafði mót­tekið af kaup­anda og átti að fara til spænksra aðila. Einnig fals­aði sölu­mað­ur­inn und­ir­skriftir Spán­verja í þeim til­gangi að geta afhent við­skipta­vinum sínum full­nægj­andi kvitt­anir.

DV, sem fjall­aði um málið 9. sept­em­ber 1986, sagð­ist hafa fyrir því áreið­an­legar heim­ildir að sölu­mað­ur­inn hafi féflett 13 aðila í heild­ina en í mis­mun­andi mæli. Hafi fjár­hæð­irnar sem hann hafði af fólki hljóðað upp á 30.000 til milljón króna, sam­tals um sex millj­ónir króna. Einn heim­ild­ar­manna DV sagði miðl­inum að mað­ur­inn hefði mik­inn „sefj­un­ar­mátt“ og að það væri líkt því að standa and­spæn­ist eit­urslöngu að tala við hann.

Hér má sjá umfjöllun DV um málið:

Stór­felld fjár­svik vegna fast­eigna­kaupa Islend­inga á Spáni:

Stal sex millj­ónum króna á hálfu ári

Fjöldi ein­stak­linga hefur verið dreg­inn á asna­eyr­unum varð­andi kaup á sum­ar­húsum á Spáni. íslenskur umboðs­maður spænskra selj­enda hefur nú verið kærður til Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins fyrir að hafa ekki staðið skil á um 600 þús­und króna greiðslu er hann hafði mót­tekið af kaup­anda og átti að fara til spænskra aðila. Þá mun sölu­mað­ur­inn hafa falsað und­ir­skriftir Spán­verja til að geta gefið við­skipta­vinum sínum full­nægj­andi kvitt­anir.

Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum DV er sum­ar­húsa­mál þetta umfangs­meira en þessi eina kæra gefur til kynna. Sölu­mað­ur­inn mun hafa féflett, svo vitað sé, 13 aðila í mis­mun­andi mæli, allt frá 30 þús­und krónum til einnar millj­ónar. Samkvæmt sömu heim­ildum nema þær upp­hæðir sam­tals um 6 millj­ónum króna. Við­skipti þessi fóru fram á tíma­bil­inu frá nóv­em­ber 1985 fram í maí á þessu ári.

Tvö starfs­manna­fé­lög hafa lent í klónum á sölu­mann­inum, Starfs­manna­fé­lag Garða­bæjar og Iðn­að­ar­manna­fé­lagið á Sauð­ár­króki. Þó svo full­trúar þess­ara félaga hafi komið að tómum hús­grunnum er þeir héldu til Spánar til að líta á greiddar eignir sínar hafa þeir ekki séð ástæðu til að kæra mann­inn. Hafa starfs­manna­fé­lögin látið sér nægja trygg­ingar er sölu­mað­ur­inn setti fyrir end­ur­greiðslu fjár­ins með því að selja íbúð sína. Aðrir aðilar, sem hér hafa verið sviknir, sjá sér ekki fært að kæra þar sem þeir keyptu sum­ar­húsin sem einka­að­ilar og það stríðir gegn gjald­eyr­is­lögum. Mun sölu­mað­ur­inn hafa sann­fært við­skipta­vini sína um að leikur einn væri að fara fram hjá þeim lögum. Eða eins og einn heim­ild­ar­manna DV orð­aði það: „Maðurinn hefur mik­inn sefj­un­ar­mátt. Að tala við hann er eins og að standa frammi fyrir eit­urslöngu. Ég veit um hjón sem hafa tekið hann í sátt, þó svo hann hafi stolið einni milljón af þeim.“

Sölu­mað­ur­inn rak til skamms tíma fyr­ir­tækið „Umboðs­sala Páls Jóns­sonar“ og á vegum þess voru svikin gerð. Áður hefur sölu­mað­ur­inn starfað í kjöt­verslun og reynt að selja hross­húðir á erlendan markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni