Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Minnst 18 látin eftir árekstur herþyrlu og farþegaflugvélar í Washington – 49 saknað

Minnst 18 látin eftir árekstur herþyrlu og farþegaflugvélar í Washington – 49 saknað
Frá slys­stað. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Minnst 18 eru látnir eftir að far­þega­flug­vél hrap­aði ofan í Potomax-á nærri Reagan-flug­velli í Washington D.C., eftir árekstur við her­þyrlu.

Slysið varð klukkan níu í gær­kvöldi að stað­ar­tíma en að sögn yfir­valda rakst her­þyrlan á far­þega­þot­una. Samkvæmt flug­fé­lag­inu American Airlines voru 60 far­þegar um borð og fjögra manna áhöfn. Í þyrl­unni, af gerð­inni Black Hawk, voru þrír banda­rískir her­menn.

Samkvæmt RÚV héldu yfir­völd blaða­manna­fund í morgun en þar komu engar upp­lýs­ingar fram um slys á fólki eða hvort ein­hverjir hefðu fund­ist látnir. Tveir heim­ild­ar­menn NBC segja að á annan tug líka hafa fund­ist í ánni en björg­un­ar­að­ilar vinna í kappi við tím­ann við að finna fólk á lífi í ánni.

Slökkvi­liðs­stjóri í Washington D.C., John Donnelly, segir aðstæður til björg­un­ar­leitar erf­iðar, það sé dimmt og fá ljós til að lýsa upp ánna. Sagði hann báta vera mætta að flaki flug­vél­ar­innar en vissi ekki um hvort ein­hverjir hefðu lifað af.

„Við gerum ráð fyrir að halda aðgerðum áfram í ein­hverja daga.“

RÚV segir frá því að CBS-frétta­stofan í Banda­ríkj­unum hafi eftir heim­ild­ar­manni innan lög­regl­unnar að minnsta kosti 18 lík hafi fund­ist í ánni og að enn hafi engir eft­ir­lif­endur fund­ist.

Vegna flug­slyss­ins hefur Reagan-flug­velli í Washington D.C. verið lokað og verður haldið lok­uðum í dag en slysið hefur að sögn Icelandair ekki áhrif á flug­á­ætlun þar sem flug­fé­lagið not­ast við Dulles-flug­völl. Þá býst Play einnig við að áætlun flug­fé­lags­ins haldi, í ljósi þess að flug­fé­lagið flýgur til Baltimore.

Bandarísk og rússnesk listskautarar í flugvélinni

Fram kemur í frétt RÚV að félagar í list­skautaliði Banda­ríkj­anna hafi verið í flug­vél­inni, sem var að koma frá Wichita í Kansas-fylki. Var þar verið að halda lands­mót og þjálf­urn­ar­búðir fyrir list­skaut­ara en í yfir­lýs­ingu frá List­skauta­fé­lagi Banda­ríkj­anna kemur fram að fjöl­margir íþrótta­menn, þjálf­arar og fjöl­skyldu­með­limir hafi verið í flug­vél­inni.

„Við erum nið­ur­brotin vegna þessa sorg­lega atburðar og hugsum til aðstand­enda fórn­ar­lambanna. Við höldum áfram að fylgj­ast með mál­inu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir rúss­neski fjöl­mið­ill­inn TASS að tveir rúss­neskir list­skaut­arar og þjálf­arar þeirra hafi einnig verið um borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco