Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimsókn í Akureyrarkirkju -gluggi með merkilega sögu

Heimsókn í Akureyrarkirkju -gluggi með merkilega sögu
Mynd fengin af vef visitak­ur­eyri.is

Ein þekktasta og jafn­framt ein fal­leg­asta kirkja lands­ins er Akur­eyr­ar­kirkja; klár­lega eitt af þekkt­ustu kenni­leitum Akur­eyrar. Kirkjan var vígð í upp­hafi síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar, árið 1940. Það var eng­inn annar en Guðjón Sam­ú­els­son, þáver­andi húsa­meist­ari rík­is­ins, sem hann­aði þessa gull­fal­legu kirkju. Verk húsa­meist­ar­ans Guðjóns má finna víða á Ísland, en hönnun Akur­eyr­ar­kirkju er eitt af bestu og mestu lista­verkum sem eftir hann liggja, og er þá mikið sagt.

Gluggi með sér­staka sögu

Kirkjan stendur á áber­andi góðum og fal­legum útsýn­is­stað, og eitt er víst að útsýnið yfir fal­lega bæinn Akureyri og nágrenni er eitt­hvað sem allir kunna að meta.

Það er skemmti­legt að heim­sækja kirkj­una – ekki bara vegna útsýn­is­ins – því það eitt og sér að skoða bygg­ing­una sjálfa að utan og innan er nán­ast eins og að fara á glæsi­lega lista­sýn­ingu; þar sem fal­leg hönnun fer saman við frá­bæra stað­setn­ingu, og þá er umhverfið í kringum kirkj­una afar fal­legt og gleður og end­ur­nærir lík­ama og sál.

Mynd fengin af vef Akur­eyr­ar­kirkju.

Það má geta þess að í Akur­eyr­ar­kirkju er meðal ann­ars að finna mjög sér­stakan glugga; lengi vel var talið að hann hefði upp­haf­lega verið í dóm­kirkj­unni í Coventry í Englandi. Seinni tíma rann­sóknir hafa þó leitt í ljós að það sé lík­legra að glugg­inn sér­staki sé úr kirkju í höf­uð­borg Englands – en það breytir litlu varð­andi þennan glugga sem gaman er að skoða gaum­gæfi­lega.

Einstök lista­verk

Og það hafa fleiri lista­menn en Guðjón Sam­ú­els­son komið að því vel heppn­aða lista­verki sem Akur­eyr­ar­kirkja óneit­an­lega er að utan og innan.

Til dæmis má sjá á svölum kirkju­skips­ins lág­myndir eftir Ásmund Sveins­son – sem var einn af frum­kvöðlum íslenskrar högg­mynda­listar; var lista­maður á heims­mæli­kvarða.

Þriðji lista­mað­ur­inn sem nefndur er hér í tengslum við Akur­eyr­ar­kirkju er Bertel Thor­vald­sen – sem var dansk-íslenskur mynd­höggv­ari – en skírn­ar­fontur kirkj­unnar er gerður eftir fyr­ir­mynd hans.

Mynd fengin af vef Akur­eyr­ar­kirkju.

Það eru margar fal­legar kirkjur á Íslandi öllu sem gaman er að skoða og það á svo sann­ar­lega við um Akur­eyr­ar­kirkju; kirkjan er ekki bara eitt af kenni­leitum Akur­eyrar og Íslands alls, heldur ein­fald­lega ein fal­leg­asta, tign­ar­leg­asta og glæsi­leg­asta kirkja lands­ins, og er í raun og veru eitt stórt lista­verk sem svo sann­ar­lega er þess virði að skoða, upp­lifa og njóta.

Akur­eyr­ar­kirkja er opin sem hér segir: 2. júní – 28. Ágúst frá klukkan 10-16.
Þó skal bent á að kirkjan er nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust lokuð þegar athafnir fara fram í henni eins og skilj­an­legt er; skal athygli vakin á því að kirkjan er lokuð þegar útfarir eða aðrar athafnir fara fram og er það að sjálf­sögðu aug­lýst sér­stak­lega á kirkju­dyr­unum.

Fyrir áhuga­sama er hægt að nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar á heima­síðu kirkj­unnar akur­eyr­ar­kirkja.is, Hægt er að hafa sam­band í síma 462-7700 eða á net­fangið [email protected].

Og ekki má gleyma „Eyja­kirkj­unum“ svoköll­uðu; Gríms­eyj­ar­kirkju og Hrís­eyj­ar­kirkju, en allar þessar kirkjur eru svo sann­ar­lega þess verðar að skoða í krók og kima ásamt stóra áður­nefnda bróður – Akur­eyr­ar­kirkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur