Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eitthvað fyrir langflesta á Akureyri í sumar

Eitthvað fyrir langflesta á Akureyri í sumar
Ein með öllu 2019

Akureyri er líf­legur og fal­legur bær og þar er líf og fjör í allt sumar og ættu flestir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi hvort sem það eru heima­menn eða aðrir.

Bærinn fullur af fólki

N1-mót KA hófst mið­viku­dag­inn 30. júní og stendur til laug­ar­dags­ins 3. júlí og segir Davíð Rúnar Gunn­ars­son, eig­andi Við­burða­stofu Norð­ur­lands, að bær­inn sé þessa dag­ana fullur af fólki. Um 2000 krakkar eru skráðir á N1-mótið og þeim fylgja for­eldrar og í sumum til­fellum systk­ini þannig að um 7-8000 manns hafa komið í bæinn vegna móts­ins.

Pollamót Þórs hefst svo í dag, 2. júlí og sér Við­burða­stofa Norð­ur­lands um allar skemmt­anir tengda því. „Þar eru hátt í 800 kepp­endur og gerum við ráð fyrir um 10-12.000 manns í bænum um helg­ina tengdum þessum tveimur mótum.“

Hjól­reiða­há­tíð Greifans verður haldið  24. júlí – 1. ágúst og má nefna að 28. júlí verður Íslands­mót í ólympískum fjalla­hjól­reiðum – börn og ung­lingar, 30. júlí verður bik­ar­mót í fjalla­bruni í Hlíð­ar­fjall og 31. júlí verður Íslands­mót í ólympískum fjalla­hjól­reiðum fyrir full­orðna.

Ein með öllu

Það verður sann­ar­lega líf og fjör á Akureyri um versl­un­ar­manna­helg­ina og verður mikið í boði og má þar nefna hátíð­ina Eina með öllu. Tívolí verður í bænum.

Kirkju­tröppu­hlaupið um versló er vin­sælt meðal krakka

„Ein með öllu er fjöl­skyldu­há­tíð; þetta snýst um fjöl­skyld­una og að hreyfa sig og skemmta sér. Skemmti­staðir verða auð­vitað opnir og það verður nóg í boði fyrir unga fólkið og alla fjöl­skyld­una.“

„Á hátíð­inni verður mikið um að vera á græna Hattinum um versló en þar verða til dæmis Hvann­dals­bræður, Dúnd­ur­fréttir, Hjálmar og Stjórnin. Í Sjall­anum verður einnig mikið um að vera en þar verður boðið upp á Herra Hnetu­smjör og Birnir sveita­ball með hljóm­sveit­inni Súlum og Séra Bjössi, Aron Can og Páll Óskar slútta svo helg­inni þar.“

Hjól, hlaup og para­á­skorun

Á vegum Raf­hjóla­klúbbs Akur­eyrar verður boðið upp á skemmti­legt hjóla­mót fyrir raf­hjóla­eig­endur

Paraáskorun Norður lík­ams­ræktar verður haldin um versl­un­ar­manna­helg­ina. Mótið fer fram á þremur stöðum. Á föstu­dag keppa allir í Njarð­ar­nesi og þeir sem kom­ast áfram keppa svo á laug­ar­dag í Tryggva­braut og þeir sem kom­ast áfram þar keppa svo á sunnu­dag við Hof.

24 lið kom­ast áfram í Tryggva­braut og 10 lið kom­ast áfram í Hof. Tvær æfingar verða teknar hvern dag og keppa tvær stelpur saman og tveir strákar saman.

Súlur Vertical er spenn­andi hlaupa­mót sem fer fram á Akureyri þessa helgi þar sem boðið verður upp á þrjár vega­lengdir, 18 km, 28 km og 55 km utan­vega­hlaup. „Þetta er stór­mót og jafn­vel á heims­mæli­kvarða en hlaupið verður alveg upp á Súlur og endar í miðbæ Akur­eyrar með pompi og prakt.“

Hæfi­leika­keppni og glæsi­legir tón­leikar

Ein með öllu 2019 -Gler­ár­torg

Það verður mikil og spenn­andi dag­skrá í boði í versl­un­ar­mið­stöð­inni Gler­ár­torgi um versl­un­ar­manna­helg­ina. „Þar verður til dæmis hæfi­leika­keppni krakka á laug­ar­deg­inum og margt annað fyrir alla fjöl­skyld­una,“ segir Davíð og má geta þess að sum­ar­út­sölur hefj­ast þar 14. júlí og lýkur þeim 29. júlí. Svo tekur götu­mark­aður við um tíma.

í Akur­eyr­ar­kirkju verður til dæmis boðið upp á Óska­lagatón­leika með þeim Óskari Pét­urs­syni ,Eyþóri Inga Jónssyni og Ívar Helga­syni en þeir syngja og spila óska­lög tón­leika­gesta í Akur­eyr­ar­kirkju. Þessa tón­leika hafa þeir haldið á föstu­dags­kvöldi um versl­un­ar­manna­helgi í mörg ár við frá­bærar und­ir­tektir bæj­ar­búa. Tón­leika­gestir fá laga­lista með nokkur hund­ruð lögum og biðja um óska­lög á staðnum.

Eitthvað fyrir alla

Color Run verður haldið í þriðja sinn á Akureyri og núna verður það einmitt haldið á sunnu­deg­inum um versl­un­ar­manna­helg­ina.

Paddle board-veisla verður við Hof á sunnu­deg­inum.

Kjarna­skóg­ar­dag­ur­inn verður hald­inn þennan sunnu­dag en í Kjarn­skógi verður ýmis­legt í boði fyrir gesti og gang­andi og þessi við­burður fer stækk­andi með hverju árinu enda fátt betra en að spóka sig um í einum fal­leg­ast skógi lands­ins.

„Við­burð­ur­inn Mömmur og möffins“ verður á sunnu­deg­inum en þá taka mömmur, og reyndar líka pabbar, í bænum sig til og búa til möffins og hefur þetta verið selt und­an­farin ár til styrktar mjög góðu og þörfu mál­efni.“

Mömmur og möffins 2019 -Úrvalið verður eflaust ekki síðra í ár

Söfnin í bænum verða opin um versl­un­ar­manna­helg­ina og má þar nefna Mót­or­hjóla­safnið, Lista­safnið á Akureyri, Flug­safnið, Leik­fanga­sýn­ingu Frið­bjarn­ar­hús og Iðn­að­ar­safn. Mark­aðs­setmmn­ing verður svo á Ráð­hús­torg­inu alla helg­ina.

„Það má segja að versl­un­ar­manna­helg­inni ljúki svo með svoköll­uðum spari­tón­leikum á flöt­inni fyrir neðan sam­komu­húsið þar sem fólk á að klæða sig upp á og vera huggu­legt og jafn­vel að taka með sér stóla og teppi og koma sér vel fyrir og njóta tón­listar. Kvöldið endar svo á flug­elda­sýn­ingu frá Björg­un­ar­sveit­inni Súlum á Akureyri.“

Þetta er svona brot af því sem verður í gangi á Akureyri um Versl­un­ar­manna­helg­ina og hvetjum við fólk til að kynna sér vel dag­skrána inni á ein­medollu.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur