Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margvísleg námskeið á vegum Dáleiðsluskóla Íslands

Margvísleg námskeið á vegum Dáleiðsluskóla Íslands

Sífellt fleiri Íslendingar nýta sér klíníska dáleiðslu til að vinna bug á ýmsum kvillum og sjúkdómum. Fram undan eru spennandi námskeið hjá Dáleiðsluskóla Íslands.

Und­an­farin ár hafa sífellt fleiri Íslend­ingar nýtt sér klíníska dáleiðslu til að vinna bug á ýmsum and­legum kvillum og geð­vefrænum sjúk­dómum. Að sögn Ingi­bergs Þor­kels­sonar, skóla­stjóra Dáleiðslu­skóla Íslands og klínísks dáleið­ara, er hægt að nýta dáleiðslu til að kom­ast fram hjá eins konar „eld­vegg“ sem venju­lega ver und­ir­vit­und­ina. „Klínísk með­ferð­ar­dá­leiðsla snýst um að finna orsök vand­ans í und­ir­vit­und­inni og fjar­lægja hana þannig að ein­kennin hverfa. Allar minn­ingar okkar eru geymdar í und­ir­vit­und­inni ásamt öllum venjum, við­brögðum og skoð­unum. Með þró­uðum aðferðum er hægt að end­ur­for­rita þessar venjur og leysa upp til­finn­ingar sem fylgdu áföllum og sem eru fastar.“

Ingi­bergur Þor­kels­son Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Námskeið í með­ferð­ar­dá­leiðslu hefst 7. febr­úar

Aðsókn í nám við Dáleiðslu­skóla Íslands hefur auk­ist jafnt og þétt und­an­farin ár enda býður skól­inn upp á mjög áhuga­verð nám­skeið sem hafa gert fjölda fólks kleift að vinna úr eigin vanda­málum auk þess að hjálpa öðrum.

Árið 2020 verður með­ferð­ar­dá­leiðsla kennd í tveimur hlutum að sögn Ingi­bergs. Fyrst er boðið upp á grunn­nám sem hefst 7. febr­úar og síðan hefst fram­halds­nám í októ­ber. „Á grunn­nám­skeið­inu er kennt skv. bók Roy Hunter, Listin að dáleiða. Nemendur læra að dáleiða og dýpka ástandið og skipt­ist á bein kennsla og æfingar. Kennd er sjálfs­dá­leiðsla og fjöl­breyttar aðferðir til að ná árangri fyrir dáleiðslu­þeg­ann. Útskrift­ar­nemar geta nýtt sér námið strax eftir útskrift.“

Kennarar grunn­náms­ins eru Axel Braga, sjúkra­þjálf­ari, fim­leika­þjálf­ari og klínískur dáleið­ari, Álf­heiður Eva Óla­dóttir sem hefur BA-gráðu í sál­fræði, er klínískur dáleið­ari og rekur eigin stofu og Michal Cieslakowski, heims­þekktur dáleið­ari sem kennir sjálfs­dá­leiðslu, auk skóla­stjór­ans, Ingi­bergs Þor­kels­sonar.

Í fram­halds­nám­inu er kennd Hugræn end­ur­for­ritun sem einnig kall­ast Djúp­með­ferð. Hún byggir á Yager-með­ferð, per­sónu­þátta­með­ferð og end­ur­lits­dá­leiðslu. Höfundar með­ferð­anna eru þekktir banda­rískir og ástr­alskir sál­fræð­ingar og nýjasta með­ferðin var fyrst kynnt árið 2012. Ingi­bergur Þor­kels­son hefur sam­einað þessar með­ferðir í afar áhrifa­ríka með­ferð. „Á fram­halds­nám­skeið­inu er enn fremur kennt EMDR fyrir dáleið­endur sem nýt­ist við úrvinnslu áfalla. Eftir próf útskrif­ast nem­endur sem klínískir dáleið­endur (e. Certified Clincal Hypnother­ap­ist).“

Ótrúlega margt hægt að bæta með með­ferð­ar­dá­leiðslu

Með dáleiðslu er hægt að upp­ræta afleið­ingar ýmissa áfalla sem oft birt­ast sem kvíði, fíkn, sorg, þung­lyndi og vefja­gigt segir Ingi­bergur. Hægt sé að leysa dáleiðslu­þega úr „álögum“ sem eru afleið­ing inn­ræt­ingar og mót­unar í upp­vexti. „Oft er hægt að vinna bug á berkju­astma, ofnæmi og mígreni og auð­velda þungun þegar ekki finn­ast lík­am­legar orsakir. Hægt er að und­ir­búa þá sem eru að fara í aðgerðir þannig að þær heppn­ist betur og sár grói hraðar. Að lokum má nefna að hægt er að auka færni í íþróttum og losna við fælni á borð við þá að tala opin­ber­lega, próf­kvíða, flug­hræðslu, geit­unga­fælni, inni­lok­un­ar­kennd og margt fleira. Auk þess getur dáleiðslan minnkað króníska verki.“

Hlýtur að verða hluti af heil­brigð­is­kerf­inu á næstu árum

„Það hefur orðið mjög mikil breyt­ing á afstöðu fólks til með­ferð­ar­dá­leiðslu á und­an­förnum árum,“ segir Ingi­bergur. Það verður sífellt aug­ljós­ara að árangur af með­ferð­inni er bæði mik­ill og skjótur segir hann. „Með­ferð­ar­dá­leiðsla hlýtur að verða hluti af heil­brigð­is­kerf­inu áður en langt um líður.“

Sjálfs­dá­leiðsla og skír­dreymi fyrir almenn­ing

Dagana 9. og 10. maí heldur Dáleiðslu­skóli Íslands nám­skeið í sjálfs­dá­leiðslu og skír­dreymi (e. lucid dream­ing). „Í sjálfs­dá­leiðslu­hlut­anum verða kenndar afar öfl­ugar aðferðir til að ná stjórn á eigin huga og í skír­dreym­is­hlut­anum er kennt hvernig hægt er að ná stjórn á draumum sínum. Allt er hægt í draumi og ein­ungis ímynd­un­ar­aflið sem tak­markar hvað er hægt að gera.“

Mælir heils hugar með Dáleiðslu­skóla Íslands

Auður Árna­dóttir lauk fram­halds­námi við Dáleiðslu­skóla Íslands í maí 2018 og hefur starfað síðan sem klínískur dáleið­ari. Síðasta haust sat hún nám­skeiðið EMDR­fyrir dáleið­ara. „Námið við Dáleiðslu­skóla Íslands hefur nýst mér mjög vel og skapað mér atvinnu sem er bæði krefj­andi en líka mjög gef­andi. Mér finnst stór­kost­legt að sjá hvernig hægt er að finna rót allskyns vanda­mála og leysa upp gamla til­finn­inga­hnúta í dáleiðslu, jafn­vel að vinna með þunga sorg og sjá fólk fara frá mér glað­ara en þegar það kom inn.“

Auður Árna­dóttir Mynd / Aðsend

Hvernig breytti með­ferð­ar­dá­leiðslan þér per­sónu­lega?
„Með­ferð­ar­dá­leiðslan hefur gefið mér meira sjálfs­traust og meðal ann­ars losað mig við
sviðs­skrekk sem hefti mig veru­lega. Eftir dáleiðsl­una held ég betur ró minni og líð­anin er allt önnur.“
Getur þú mælt með námi í Dáleiðslu­skóla Íslands?
„Já það geri ég heils hugar. Við lærum að nálg­ast okkar innri huga á þann hátt að við gerum hið ómeð­vit­aða með­vitað og höfum stjórn á eigin lífi.“

Nánari upp­lýs­ingar og skrán­ing á dáleiðsla.is.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Dáleiðslu­skóla Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur