Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga Vala stuðar landsbyggðina: „Bjóða uppá rússneska rúllettu“

Helga Vala stuðar landsbyggðina: „Bjóða uppá rússneska rúllettu“

Jóhann Harð­ar­son, íbúi á Egils­stöðum, er allt annað en sáttur eftir að hafa horft á Silfrið á RÚV á mánu­dag­inn, og eru margir á lands­byggð­inni sam­mála honum.

Í Silfrinu á mánu­dag­inn síð­ast­lið­inn var meðal ann­ars rætt við Guðmund Fetram Sig­ur­jóns­son, stofn­anda og og for­stjóra Kerecis, Helgu Völu Helga­dóttur, lög­mann og fyrr­ver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og Má Wolfgang Mixa, dós­ents við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Ræddu þau um sam­göngur á Íslandi en Jóhanni Harð­ar­syni, eða Jói Harðar eins og hann er yfir­leitt kall­aður, blöskr­aði það sem Helga Vala hafði um flug­völl­inn í Reykja­vík að segja en hún er fyrr­ver­andi for­maður Vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. Jói, sem er Esk­firð­ingur en býr á Egils­stöðum skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hann reifar skoð­anir sínar um Silfrið. Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Datt til hugar að kíkja á Silfur Egils í gær­kvöldi sem var áhuga­vert að sumu leyti. Þar sat maður sem heitir Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son sem hefur það á sinni fer­ils­skrá að hafa stofnað Kerecis sem er eitt mesta nýsköp­un­ara­frek Íslend­inga í seinni tíð og maður sem ég ber mikla virð­ingu fyrir.

Þar sat einnig fyrr­ver­andi for­maður Vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og umræðan barst að flug­vall­ar­mál­inu í Reykja­vík. Ummæli þess aðila voru ótrú­leg svo ekki sé fastar kveðið að orði. Meðal þess sem hún full­yrti var að “sjúkra­flug­vélin væri bara oft stödd niður við Mið­jarð­ar­haf” sem er nátt­uru­lega svo mikil þvæla að það hálfa væri hell­ingur. Þar talar hún um flug­vél Land­helg­is­gæsl­unar sem sinnir engu sjúkra­flugi hér­lendis heldur er því sinnt af eink­að­ilum á grund­velli útboða.“

Silfrið 17. febr­úar.

Jói segir síðan að Helga Vala hafi gert lítið úr áhyggjum lands­byggð­ar­fólks af sjúkra­flugi og kallað það „til­finn­inga­klám“:

„Svo klikkti hún út með því að áhyggjur okkar sem erum háð sjúkra­flug­inu þegar fólkið okkar fær t.d hjarta­á­föll, mæður sem eru í áhættu­fæð­ingu, heila­blæð­ingar, bílslys og aðrar þær hremm­ingar sem kalla á það að koma fólk­inu okkar undir lækn­is­hendur því það er spurn­ing um líf eða dauða..þetta kall­aði við­kom­andi aðili “ Til­finn­inga­klám”.

Svo tal­aði hún til þessa frum­kvöð­uls í fram­haldi af þessu og kvað við­horf hans “kjána­leg”. Ætli íslenskt sam­fé­lag þurfi ekki fleiri menn einsog og Guðmund en kannski minna af svona yfir­læti.“

Bætir Jói síðan við:

„Í alvöru talað..getur fólk ekki reynt að setja sig í spor þeirra sem þurfa á þessu neyð­ar­úræði sem sjúkra­flugið er að halda.“

Því næst rifjar Jói upp skýrslu sem birt­ist í Lækna­blað­inu árið 2022, um sjúkra­flug á Íslandi:

„Í ágætri skýrslu sem birt­ist í lækna­blað­inu árið 2022 og heitir Sjúkra­flug á Íslandi 2012 til 2020 koma fram ýmsar stað­reyndir.

Á því 8 ára tíma­bili sem þar er rætt kemur í ljós að flugin voru 6011 sem þýðir 751 flug á ári (árið 2023 voru þau rúm­lega 900). Flugin eru flokkuð í 4 flokka þ.e F1, F2, F3 og F4 eftir alvar­leika. Flokkur F1 er mesti for­gangur, F2 er mögu­leg lífsógn, F3 stöðugt ástand sem getur þó kraf­ist þess að hafa lækni um borð og F4 er flutn­ingur milli stofn­ana og þá á fólki sem ekki er hægt að flytja með áætl­un­ar­flugi en allir sem hafa notað þann ferða­máta vita að með því ferð­ast oft fólk sem varla stendur undir sér kom­andi úr allslags lækna­með­ferðum í höfð­uð­borg­inni.

Skv þess­ari skýrslu þá voru flug í flokki F1 24,8% og F2 22,1 % sem þýðir þá c.a 353 ein­stak­lingar á ári í þessum tveimur flokkum. Við það bæt­ist svo flokkur F3 c.a 16 % 120 ein­stak­lingar sem kallar stundum á nær­veru læknis en er einnig vegna nauð­synjar á því að koma fólki undir lækn­is­hendur sem fyrst. Vert er að hafa í huga að aukn­ing hefur orðið á sjúkra­flugi frá því að þessi skýrsla var gerð og voru þau t.d 903 árið 2023.“

Segir Jói að nú sé staðan þannig að verið sé að „bjóða upp á rúss­neska rúl­lettu með manns­líf“:

„Nú er staðan sú í boði Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­stjórnar Íslands að það er verið að bjóða uppá rúss­neska rúl­lettu með manns­líf. Af hverju segi ég þetta? Jú vegna þess að með lokun ann­arar flug­brautar Reykja­vík­ur­vallar eru mögu­leikar á því að koma fólki í lífs­hættu á Land­spítl­ann við Hring­braut skertir veru­lega. Hver ætlar að bera ábyrgð á því ef til þess kemur? En gæti fólk sem talar líkt og áður­nefndur aðili gerði í þessum þætti í gær­kvöldi reynt að setja sig í spor okkar sem eigum allt undir því að þessi bráð­leið sé fær? Ímyndum okkur um stund að Land­spít­al­inn væri stað­settur á Akureyri. Gæti sumt fólk þá afgreitt tölu­legar stað­reyndir um mik­il­vægi sjúkra­flugs og kallað það af yfir­læti “ Til­finn­inga­klám” ef það sner­ist um þeirra ást­vini?“

Að lokum seg­ist Jóa vera mis­boðið og hvetur „Val­kyrj­urnar“ til að standa undir nafni:

„Jú þetta skiptir mig máli og mér er mis­boðið vegna þessa sinnu og skeyt­ing­ar­leysis gagn­vart okkur. Því miður er við­bragðs­tím­inn svo langur á tíðum að fólkið okkar nær ekki að kom­ast nógu snemma undir lækn­is­hendur. Ég vona að Guð gefi það að ekki komi upp atvik þar sem snúa þurfi sjúkra­flug­vél frá Reykja­vík­ur­velli vegna trjá­gróð­urs í Öskju­hlíð­inni með aðila í krítísku ástandi. Guð­mundur Fertram sagði í gær að þetta sner­ist um náunga­kær­leika og það er rétt.

Skert aðgengi lands­byggð­ar­fólks að Land­spít­alnum sökum lok­unar flug­braut­ar­innar er dauð­ans alvara.

Nú væri kannski lag fyrir Val­kyrj­urnar að standa undir nafni og leysa þetta ekki seinna en strax.“

Margir taka undir færslu Jóa en Haraldur nokkur Gúst­afs­son skif­aði eft­ir­far­andi athuga­semd við færsl­una:

„Hafandi sjálfur verið fár­veikur far­þegi í sjúkra­flugi … farið í sjúkra­flug með óléttri eig­in­konu í miðri fæð­ingu … þá er ég svo inni­lega sam­mála þér með þessi skrif. Veru­leika­fyrr­ing vegna mik­il­vægis bæði stað­setn­ingar flug­valla­ins í nálægð við sjúkra­hús og óskerts aðgengis að vell­inum er gíf­ur­leg….minnir á flökku­sög­una úr frönsku bylt­ing­unni um skort á brauði og að fólk væri þess­vegna að deyja úr hungri..“geta þau þá ekki bara borðað köku?”.“

Ívar Karl Haf­liða­son skrif­aði einnig athuga­semd en hann átti erfitt með að horfa á Silfrið:

„Horfði aðeins á þetta og var eig­in­lega svo miður mín að ég átti erfitt með að horfa á þetta! Van­virð­ing gagn­vart íbúum lands­byggð­ar­innar er svo ótrú­legt! Virðist alveg gleym­ast að meiri­hluti af tekjum sem reka ríkið koma frá lands­byggð­inni og það er bara til­finn­ing­ar­klám að biðja um tryggt aðgengi af bráða­heil­brigð­is­þjón­ustu. Hvað á að sam­göngur og almenn heil­brigð­is­þjón­usta sé í boði út á landi! Ég þarf eig­in­lega að reyna horfa á þetta aftur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum