„Þetta er pabbi,“ segir Jørgen Boassen og bendir á málverk af Donald Trump klæddum sem inúíta, og lýsir andlegri tengingu við hann, jafnvel þótt Bandaríkjaforsetinn gæti kæft draum hans um sjálfstætt Grænland.
Undanfarna mánuði hefur þessi 50 ára múrari öðlast frægð sem ákafasti stuðningsmaður Trumps á Grænlandi, þessu sjálfstjórnarsvæði Dana sem leitast við að losna frá fyrrum nýlenduveldinu og þar sem heimsvaldastefnu Trumps hafa ekki verið vel teknar.
Áberandi og stundum mótsagnakenndar pólitískar skoðanir Boassens hafa áunnið honum viðurnefnið „grænlenski sonur Trumps“, en hann er einnig hafður að háði og spotti á samfélagsmiðlum, auk þess að hafa fengið líflátshótanir.
Trump er „hinn fullkomni maður fyrir mína heimssýn,“ sagði Boassen í viðtali við AFP í Menningarmiðstöðinni í Nuuk, höfuðborg þessarar risastóru eyju við norðurskautið.
Bolurinn hans tekur af allan vafa: Bandaríski fáninn efst á hægri erminni, slagorðið MAGA á þeirri vinstri, og að framan prýddur …






















Athugasemdir