Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sonur Ásthildar Lóu rýfur þögnina og gagnrýnir umræðuna

Ást­hildur Lóa sagði af sér ráð­herraamb­ætti vegna þess að hún eign­að­ist barn með 16 ára pilti. Nú stígur son­ur­inn fram og ber til baka umfjall­anir og umræðu.

Sonur Ásthildar Lóu rýfur þögnina og gagnrýnir umræðuna
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir Sagði af sér ráð­herra­emb­ætti þegar ljóst var að fjalla ætti um að hún varð ólétt eftir 16 ára pilt. Sonurinn sem varð til af sam­band­inu hefur nú tjáð sig.

Sonur Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur og barns­föður hennar, sem fjallað var fyrst um í fréttum RÚV á fimmtu­dag, vill leið­rétta hluta umfjöll­unar um sam­band for­eldra þeirra. Hann seg­ist stoltur af móður sinni og furðar sig á yfir­lýs­ingum blóð­föður síns um tálmun.

„Full­yrð­ingar um að mamma mín hafi verið leið­togi eða leið­bein­andi innan safn­að­irns voru rangar. Aldur blóð­föð­urs míns var einnig námund­aðar niður í ald­ur­inn þegar þau hitt­ust fyrst en ekki þegar þau áttu í „sam­bandi“ og sér­stak­lega var tekið fram að ef þetta sam­ræði hefði átt sér stað í dag væri það ólög­legt,“ segir hann, Þór Símon Haf­þórs­son, í færslu á Facebook í dag.

Þá segir Þór Símon að blóð­faðir hans hafi sýnt tak­mark­aðan áhuga á að nýta sér umgengni við hann og að hann hafi ekki liðið fyrir að umgang­ast hann ekki, enda átt frá­bæran stjúp­föður frá tveggja ára aldri.

„Hvað meinta tálmun varðar þá finnst mér þær full­yrð­ingar í besta falli hlægi­legar,“ segir hann.

Síðast hitti hann blóð­föður sinn fyrir fimmtán árum. Var það vegna til­vilj­unar. „Það er einnig vert að taka sér­stak­lega fram að þessi hitt­ingur kom til vegna ótrú­legrar til­vilj­unar en ekki vegna þess að hann leit­að­ist eftir því af fyrra bragði að hitta mig. En síðan þá hefur ekk­ert stoppað hann nema hann sjálfur að hafa sam­band,“ segir Þór Símon.

„Skortur á sam­bandi við blóð­föður minn hefur því aldrei hvílt á mér að neinu leyti þangað til á fimmtu­dag­inn og þá því miður vegna til­vistar hans frekar en fjar­veru.“

Færsla sonar Ásthildar í heild sinni

„Áður en ég byrja vil ég þakka öllum þeim sem hafa sent mér skila­boð, hringt eða bara hugsað til mín og fjöl­skyldu minnar síð­ustu daga. Það hefur verið ómet­an­legt að finna fyrir þeim stuðn­ingi á erf­iðum tímum.

Ég er ótrú­lega stoltur af því hvernig mamma hefur tek­ist á við þessar aðstæður, eins og ég hef alltaf verið stoltur af henni. Hvernig hún barð­ist með kjafti og klóm fyrir mig og mína vellíðan þegar ég lenti í ein­elti í grunn­skóla. Hvernig hún barð­ist fyrir hús­inu okkar og aleigu eftir hrun gegn ofurefli og gafst aldrei upp. Hvernig hún hlífði mér og bróðir mínum fyrir öllu gríð­ar­legu stress­inu sem fylgdi á þeim tíma. Hvernig sú bar­átta leiddi hana í að berj­ast fyrir aðra sem höfðu lent í sömu klóm og hún í gegnum Hags­muna­sam­tök heim­il­anna og að lokum hvernig sú bar­átta leiddi hana á þing og að lokum í ráð­herra­stól fjórum árum síðar. Hún hefur alltaf verið frá­bær mamma, staðið sig mjög vel sem þing­maður og síðan ráð­herra þótt í því emb­ætti hafi hún fengið alltof stuttan tíma til að sanna sig.

Ég er ákaf­lega stoltur af því hvernig hún bar sig í sjón­varps­við­tal­inu þar sem hún sagði af sér á fimmtu­dag. Sjálfur var ég hrein og bein til­finn­inga­hrúga og hefði vafa­laust ekki komið út úr mér einu orði í sjón­varps­við­tali án þess að brotna niður. Í mínum huga er hún algjör ofur­hetja. Ég er, og mun alltaf vera, stoltur af því að vera sonur hennar.

En vegna frétta­flutn­ings á fimmtu­dag og þá sér­stak­lega vegna þess hvernig þær fréttir voru fram­settar er búið að gera þetta stolt mitt tor­tryggi­legt í augum almenn­ings. Dóm­harkan sem ég hef orðið var við þrátt fyrir að hafa forð­ast eftir bestu getu alla frétta- og sam­fé­lags­miðla frá því á fimmtu­dag var við­búin en er engu að síður sorg­leg. Af því sögðu er ég hins vegar gríð­ar­lega þakk­látur fyrir allan þann stuðn­ing sem hún og ég og aðrir í fjöl­skyld­unni höfum fengið.

En stað­reyndir eru mik­il­vægar í málum sem þessum og að þeirra sé gætt í jafn við­kvæmum per­sónu­legum málum í fréttum. Að mínu mati hefur það ekki verið gert þar til yfir­lýs­ing mömmu minnar var birt. En skað­inn var þá þegar skeður. Fyrstu fréttir af þessu máli voru fullar af rang­færslum sem voru til þess fallnar að mála mömmu mína upp sem eitt­hvað skrímsli. Rang­færslur sem hefði auð­veld­lega verið hægt að kom­ast hjá ef mamma mín hefði fengið færi á að benda á þær fyrir birt­ingu frétt­ar­innar. Ég er ekki að fara fram á að þessi frétt hefði ekki verið birt yfir höfuð heldur ein­ungis vand­aðra vinnu­bragða þar sem gætt var hennar hliðar á mál­inu. Áherslur í fyrstu fréttum báru þess merki að það var ekki gert og í þeim fólst því for­dæm­ing og dómur byggður á ein­hliða upp­lýs­ingum.

„Full­yrð­ingar um að mamma mín hafi verið leið­togi eða leið­bein­andi innan safn­að­irns voru rangar.“

Full­yrð­ingar um að mamma mín hafi verið leið­togi eða leið­bein­andi innan safn­að­irns voru rangar. Aldur blóð­föð­urs míns var einnig námund­aðar niður í ald­ur­inn þegar þau hitt­ust fyrst en ekki þegar þau áttu í „sam­bandi“ og sér­stak­lega var tekið fram að ef þetta sam­ræði hefði átt sér stað í dag væri það ólög­legt. Aldur mömmu hefur að sama skapi verið námund­aður upp í ald­ur­inn þegar hún eign­að­ist mig, þegar “sam­bandið” var fyrir löngu búið. Þess var einnig ekki gætt eða lögð á það nein sér­stök áhersla að sam­kvæmt lögum lands­ins fyrir 36 árum þegar þetta sam­band átti sér stað var blóð­faðir minn lög­lega orð­inn full­orðin og að sams konar sam­bönd voru ekki óal­geng þá og ekki álitin hneyksl­an­leg eins og þau eru í dag.

Við getum auð­veld­lega hrisst haus­inn í dag, 36 árum síðar, og spurt „hvað var hún að spá?“ En veru­leiki hennar og blóð­föður míns var allt annar þá en hann er í dag. Mér finnst það vera gríð­ar­lega mik­il­vægt í öllu sam­hengi mál­anna. Fram til 1996 hafði sjá­fl­ræð­is­ald­ur­inn á Íslandi verið sá sami í um 700 ár. Sam­fé­lagið og gild­is­mat okkar hefur þannig tekið stökk­breyt­ingum á síð­ustu ára­tugum. Að mínu mati er ósann­gjarnt að ætla að styðj­ast við nútíma við­horf og lög yfir atburði sem gerð­ust fyrir bráðum fjöru­tíu árum.

Hvað meinta tálmun varðar þá finnst mér þær full­yrð­ingar í besta falli hlægi­legar. Það er ekki við mömmu mína að sakast að ég hafi ekki átt sam­band við blóð­föður minn á bernsku­ár­unum og hvað þá núna þegar ég er full­orð­inn maður. Það var aldrei neinn felu­leikur í kringum fað­erni mitt. Mamma sagði mér frá honum þegar ég var pínu­lít­ill.

Ég man eftir að hafa hitt hann einu sinni þegar ég var sirka 8 ára og sýndi honum Fifa 98 leik­inn minn. Í stað þess að slá því fram að hann hafi „ein­ungis“ fengið tvær klst á mán­uði með mér sem, eins og marg ítrekað var í frétt­inni frétt­inn að sam­svari 24 klukku­stundum á ári hefði kannski verið vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukku­stundum hann nýtti til sam­veru með mér? Þau skipti er hægt að telja á fingrum ann­arar handar. Einnig vil ég benda á að mamma mín hefur aldrei, ekki í eitt ein­asta skipti, talað illa um eða niður til blóð­föð­urs míns í mín eyru. Hvorki þegar ég var lít­ill eða þegar ég tjáði henni að ég væri að fara að hitta hann þegar ég var orð­inn full­orð­inn.

Ég og blóð­faðir minn hitt­umst fyrir til­viljun sum­arið 2009 þegar hann kom á þáver­andi vinnu­stað minn til að setja upp fiska­búr. Hann kynnti sig, við mæltum okkur mót og áttum eina góða kvöld­stund saman þar sem ég hitti konu hans og hálf-systk­ini mín og er það góð minn­ing. Hann lagði inn á mig pen­ing ein­hverjum mán­uðum síðar til að styrkja mig á meðan ég var í námi erlendis og ég þakk­aði honum fyrir það með skila­boðum á Facebook. Það voru síð­ustu sam­skipti okkar, það er að segja fyrir fimmtán árum.

Það er einnig vert að taka sér­stak­lega fram að þessi hitt­ingur kom til vegna ótrú­legrar til­vilj­unar en ekki vegna þess að hann leit­að­ist eftir því af fyrra bragði að hitta mig. En síðan þá hefur ekk­ert stoppað hann nema hann sjálfur að hafa sam­band, hafi hann raun­veru­legan vilja til að eiga frek­ari sam­skipti við mig. Og ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn þá hef ég aldrei haldið því gegn honum eða pælt neitt mikið í því fyrr en ég las um að mamma mín hefði sam­kvæmt honum tálmað hann og haldið mér frá honum.

„Með því að benda á þetta vil ég ekki mála blóð­föður minn upp sem vonda mann­eskju.“

Með því að benda á þetta vil ég ekki mála blóð­föður minn upp sem vonda mann­eskju. Ég hitti fjöl­skyldu hans fyrir 16 árum og þau voru ynd­is­leg. Það var, að minnsta kosti þangað til á fimmtu­dag, ein­ungis góð minn­ing. Staðan er hins vegar þannig núna að búið er að draga mig, fjöl­skyldu mína og blóð­föður minn inn í fjöl­miðla­storm. Og það vill því miður svo til að hann er af því er virð­ist, ef svo má að orði kom­ast, í hinu lið­inu.

Ég eign­að­ist minn pabba, Hafþór Ólafsson, í kringum eins árs ald­ur­inn. Ef ein­hver spyr mig hver pabbi minn er þá er það hann og eng­inn annar. Ég gæti ekki hafa óskað mér betri pabba en hann. Skortur á sam­bandi við blóð­föður minn hefur því aldrei hvílt á mér að neinu leyti þangað til á fimmtu­dag­inn og þá því miður vegna til­vistar hans frekar en fjar­veru.

Ef ein­hverjir fjöl­miðlar eru að velta fyrir sér að óska eftir við­tölum við mig um mín einka­mál geta þeir alger­lega sleppt því. Ég er, var og verð ánægður með sam­band mitt við for­eldra mína Ástu Lóu og Hafþór og hef engu við það að bæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum