Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eiríkur flúði skotárás í fjallahéraði í Mexíkó

„Var í sam­felldu kvíða­kasti fyrstu dag­ana”

Eiríkur flúði skotárás í fjallahéraði í Mexíkó
Eiríkur Viljar Ferð­að­ist um Ameríku á mót­or­hjóli í þrettán mán­uði. Mynd: YouTube-skjáskot

Eiríkur Viljar Hall­gríms­son seg­ist hafa fengið kvíða­kast fyrstu dag­ana á 13 mán­aða ferða­lagi sínu á mót­or­hjóli yfir alla Ameríku. Eiríkur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist breyttur eftir ferð­ina, þar sem hann meðal ann­ars þurfti að flýja skotárás í Mexíkó:

„Ég var búinn að ákveða að þefa uppi aðeins erf­ið­ari leið, til þess að vera sem mest úr alfara­leið. Ég hef lík­lega bara verið um 5% af tím­anum í Banda­ríkj­unum á mal­biki. Ég hélt að ég væri mjög vel und­ir­bú­inn og var búinn að sjá þetta allt vel fyrir mér. En ég komst fljótt að því að ég hafði ekki hugsað hlut­ina nógu vel og ég held að ég hafi aldrei verið jafn nálægt því á ævinni að fá tauga­á­fall eins og fyrstu dag­ana í þess­ari ferð. Ég var búinn að plana þetta svo lengi, en svo þegar ég var kom­inn í aðstæð­urnar varð þetta bara yfir­þyrm­andi og stórt og allt virk­aði erfitt. Ég átti að vera að upp­lifa draum­inn, en fannst þetta bara allt glatað fyrstu dag­ana. Ég fékk eig­in­lega bara kvíða­kast í fyrsta sinn á ævinni. Þetta virk­aði allt í einu allt saman heimsku­legt, stórt og óvið­ráð­an­legt. Ef ég hefði fengið ein­hvers konar „way out” þarna, þá hefði ég örugg­lega bara tekið því og farið aftur heim,” segir Eiríkur, sem segir að eftir að hann hafi heyrt í vinum sínum og fjöl­skyldu hafi hann náð að end­urstilla á sér haus­inn:

„Eftir að hafa rætt almenni­lega við vini og fjöl­skyldu náði ég að skipta um takt og hætta að stressa mig svona mikið á að halda full­kom­lega plani. Ferða­lagið byrj­aði eig­in­lega fyrir alvöru eftir að ég sleppti tök­unum og náði að slaka á og hætta að ofhugsa. Það tók smá tíma, en smátt og smátt fór ég að leyfa þessu að vera í flæði og hætta að reyna að stýra útkom­unni of mikið.”

Tjaldað í Banda­ríkj­unum

Eiríkur gisti mest í tjaldi þegar hann var á ferða­lag­inu yfir Banda­ríkin. Hann segir að það hafi verið skrýtið þegar hann sá fyrst skilti þar sem stóð að eig­andi lands­ins ætti byssu og skóflu:

„Ég reyndi alltaf að finna næt­ur­stað sem var fyrir utan alfara­leið og helst við á eða vatn. Oft var þetta „pri­vate property” og maður hefur heyrt sögur af Banda­ríkj­unum og að það sé ekki vel séð að vera að vafra á land­ar­eignum óboð­inn. Ég man eftir því þegar ég vakn­aði einn morg­un­inn eftir að hafa fundið mér gisti­stað eftir myrkur í skógi í Vestur- Virginíu. Morg­un­inn eftir þegar ég fór í göngutúr um svæðið átt­aði ég mig á því að ég var ekki jafn­mikið úr alfara­leið og ég hélt. Það voru skilti með reglu­legu milli­bili sem gáfu til kynna að óvið­kom­andi aðgangur væri strang­lega bann­aður. Ég átt­aði mig á því að ég ætti lík­lega að drífa mig í burtu þegar ég sá fyrstu skiltin sem stóð á: „I have a gun and a shovel.“. Ég átt­aði mig ekki alveg strax á því hvað ætti væri við með skófl­unni, en um leið og ég fatt­aði það dreif ég mig í burtu!”

Guð sprengdi dekkið

Eiríkur seg­ist hafa kynnst Banda­ríkj­unum á algjör­lega nýjan hátt með því að hjóla í gegnum allt landið og velja fáfarna vegi:

„Það fyrsta sem ég fatt­aði var hvað Banda­ríkin eru stór. Það er allt stórt í Banda­ríkj­unum. Þegar maður er svo kom­inn niður í Bibl­íu­beltið fer maður að sjá hluti sem eru bara eins og beint úr bíó­myndum. Bæði fólkið, stemmn­ingin og umhverfið,” segir Eiríkur, sem fer í þætt­inum yfir eitt eft­ir­minni­leg­asta kvöldið á þessum slóðum:

„Það sprakk dekk á hjól­inu mínu í Miss­issippi, rétt hjá stórum búgarði. Það var að koma myrkur og því ekk­ert annað að gera en að banka upp á hjá fólk­inu á búgarð­inum og biðja um ljós til að geta skipt um dekk. En það end­aði með því að ég borð­aði hjá þeim og gisti yfir nótt­ina. Í kvöld­mat­inn var þvotta­bjarna­kjöt, sem þau sögðu að væri eftir „roa­d­k­ill”. Hvort sem það er satt eða ekki var sest niður og hald­ist í hendur og farið með borð­bæn fyrir mat­inn og ég fékk alvöru „Southern hospita­lity”. Gisti þarna yfir nótt­ina og var með þeim allan næsta dag og fékk sýn inn í lífið þeirra. Þau vildu meina að það hefði verið ætlun guðs að sprengja dekkið á hjól­inu mínu og að það væri ekki til­viljun að ég hefði bankað upp á og sögð­ust ætla að biðja fyrir mér og ferða­lag­inu mínu þegar ég kvaddi þau og þau eru enn í sam­bandi við mig.

Lífs­hætta í Mexíkó

Í Mexíkó lenti Eiríkur í atviki sem hann segir vera eina skipti á ölllu þessu langa ferða­lagi þar sem hann raun­veru­lega varð hræddur um líf sitt:

„Ég hafði verið á flakki með öðrum strák sem var líka að ferð­ast um á mót­or­hjóli og við höfðum verið að kanna alls konar svæði í Mexíkó og vorum kannski orðnir full öruggir með okkur, þó að við vissum að það væru þarna svæði sem hefði kannski verið sniðug­ast að láta eiga sig. En þarna vorum við í Sierra Gorda fjalla­hér­að­inu eftir myrkur og vorum að gera okkur klára fyrir að gista í tjaldi yfir nótt­ina. Það var komið algjört niða­myrkur en allt í einu sjáum við höf­uð­ljós í fjarska og átt­uðum okkur á því að það væri best að stoppa öll hljóð og slökkva á ljós­unum okkar. En þá höfðu þessir aðilar þegar séð okkur og áður en við vissum af var byrjað að skjóta úr byssum allt í kringum okkur. Ég hef sjaldan orðið jafn­hræddur og adrena­línið skaust út í lík­amann. Við hentum því sem við gátum af dót­inu okkar á hjólin og brun­uðum af stað. En af því að það var niða­myrkur var erfitt að rata og ég held að ég hafi dottið fimm sinnum af mót­or­hjól­inu á leið­inni upp á aðal­veg­inn,” segir Eiríkur, sem segir að ef þessir aðilar hefðu viljað drepa þá félag­ana hefðu þeir lík­lega gert það.

Eiríkur hafði áður heyrt af því að ein­stak­lingar á vegum glæpa­gengja eiga reglu­lega leið um svæðið, í þeim erindum að smygla fíkni­efnum á milli Mexíkó og Banda­ríkj­anna.

„Við vissum af því að það gætu verið menn úr glæpa­gengjum þarna sem eru að vinna með og smygla fíkni­efnum. Þegar við fórum að skoða þetta betur dag­inn eftir komumst við að því að þetta hafa lík­lega verið við­vör­un­ar­skot til að fæla okkur í burtu. Það var verið að láta okkur vita að við mættum ekki tjalda þarna. En það að láta skjóta úr byssum allt í kringum sig er lífs­reynsla sem ég held að flestir vilji sleppa við að upp­lifa.”

Ástríða

Ferðalög eru ástríða hjá Eiríki og hann á og rekur Two Wheels Travel, sem er ferða­skrif­stofa sem sér­hæfir sig í mót­or­hjóla- og reið­hjóla­ferðum. Hann segir þetta ferða­lag hafa verið ótrú­lega lífs­reynslu sem hafi breytt sér og að mörgu leyti mótað sig á nýjan hátt:

„Ég veit enn betur núna að ég get verið öfl­ugur í krefj­andi aðstæðum og kann að eiga við alls kyns aðstæður. Það er ekki margt sem kemur mér úr jafn­vægi eftir að hafa farið í gegnum alls konar aðstæður og til­finn­ingar og ég horfi öðrum augum á hvers­dags­lífið hérna heima og er þakk­látur fyrir það sem ég hef. Maður á ekki að vera að pirra sig á ómerki­legum og smá­vægi­legum hlutum. Ég sé mig sem algjöran for­rétt­indapésa að hafa fæðst á Íslandi og hafa fengið tæki­færi til að gera allt það sem ég hef gert.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur