Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Illugi og Hannes Hólmsteinn ósammála um ágæti Ben Shapiro

„Meira að segja margir Gyðingar hafa ógeð á honum“

Illugi og Hannes Hólmsteinn ósammála um ágæti Ben Shapiro
Ben Shapiro Shapiro er afar umdeildur. Mynd: Gage Skidmore/ flickr.com

Illugi Jök­uls­son bendir fylgj­endum sínum á Facebook á þá stað­reynd að hinn umdeildi Ben Shapiro hafi verið feng­inn til að kveikja á kyndli á þjóð­há­tíð­ar­degi Ísraels. Lætur hann þung orð falla um Shapiro og eru flestir honum sam­mála í athuga­semdum. Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son upp­gjafa­pró­fessor er þó ekki einn af þeim.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann minn­ist á þá stað­reynd að Ben Shapiro hafi verið val­inn til að heiðra Ísrael með því að kveikja á kyndli á þjóð­há­tíð­ar­degi lands­ins.. Segir Illugi Shapiro vera „ofsa­feng­inn ill­yrmis­maður“ sem bæði fagni drápum á Palest­ínu­mönnum og „froðu­felli yfir hvers konar vóki, trans fólk, hinsegin fólki“ og fleirum.

Hér má lesa færsl­una:

„Banda­ríski öfga­mað­ur­inn Ben Shapiro hefur verið val­inn til að kveikja á kyndli á þjóð­há­tíð­ar­degi Ísraels, en það er tákn­rænn heiður. Shapiro er ofsa­feng­inn ill­yrmis­maður sem fagnar ekki aðeins drápum á Palest­ínu­mönnum heldur gefur sér líka tíma til að froðu­fella í podcasti sínu gegn hvers konar vóki, trans fólki, hinsegin fólki og "góða fólk­inu" almennt. Að hann, sem er slíkur öfga­maður að meira að segja margir Gyðingar hafa ógeð á honum, sé feng­inn til þess arna sýnir hve Ísra­els­ríki er komið víðs­fjarri sið­uðu sam­fé­lagi. Segðu mér hverjir eru vinir þínir og ég skal segja þér hver þú ert.“

Nokkrir tjáðu sig um Shapiro í athuga­semdum við færslu Illuga og voru lang flestir sam­mála Illuga en Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son tók upp hansk­ann fyrir hinum afar umdeilda Shapiro. „Ég hef horft á marga þætti með honum, og hann er ágætur, eit­ur­skarpur og snjall. Hann stóð sig til dæmis mjög vel í kapp­ræðum við málsvara hryðju­verka­mann­anna í mál­funda­fé­lagi Oxford-háskóla.“

Þó nokkrir svara Hannesi en einn þeirra bendir á að Shapiro hafi greini­lega ekki gengið vel í þessum kapp­ræðum þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu í lok þeirra að Ísrael væri aðskiln­að­ar­ríki sem bæri ábyrgð á þjóð­ar­morði.

„Besta ræða sem ég hef séð flutta í mál­funda­fé­lagi Oxford-háskóla var ræða Susan Abulhawa í kapp­ræðum við málsvara morð­óðu land­ránsný­lend­unnar. Enda sam­þykkti fund­ur­inn afdrátt­ar­laust að ísr­ael væri aðskiln­að­ar­ríki ábyrgt fyrir þjóð­ar­morði.

https://youtu.be/2ZCWCGebAuU?si=MOBoTVzds9z07XO5“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur