Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forsetinn var að brúna kartöflur þegar að-merkið hvarf

Hádeg­is­verður leiddi til fárs. „Ég er með ykkur í liði,“ segir for­set­inn.

Forsetinn var að brúna kartöflur þegar að-merkið hvarf

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, hefur nú útskýrt hvað fór afvega þegar hún ávarp­aði nýlát­inn páfa „Pope Francis“ í umdeildri sam­fé­lags­miðla­færslu. Hún var að elda lamba­hrygg fyrir hádeg­is­mat­inn annan í páskum þegar henni „brást boga­listin“.

„Ég var að brúna kart­öflur með páska­lamb­inu um leið og ég var að skrifa þessa frægu sam­fé­lags­miðla­færslu. Ætlun mín var að tengja við opin­bera síðu Frans páfa á Instagram svo ég sló inn Pope Francis og fékk upp @franciscus,“ segir Halla. „Ég bað eig­in­mann­inn (sem var að taka út hrygg­inn) að kanna hvort um rétta síðu væri að ræða á meðan ég kláraði kart­öfl­urnar og færsl­una í nokkrum flýti áður en mamma kom í mat.“

„Í lát­unum fór að-merkið for­görðum og því fór sem fór.“
Halla Tóm­as­dóttir for­seti

Hún tekur fulla ábyrgð á hryggi­legu mis­tökum og harmar hvarf að-merk­is­ins. „Í lát­unum fór að-merkið (@) for­görðum og því fór sem fór. Á því axla ég fulla ábyrgð og breytti færsl­unni að loknum hádeg­is­verði þegar mér hafði verið bent á mín mis­tök.“

Halla þakkar þjóð­inni fyrir að fylgj­ast með mál­færi hennar. „Ég þakka ykkur sem standið vakt­ina og minnið okkur öll á mik­il­vægi þess að við stöndum saman vörð um okkar ein­stöku tungu. Ég er með ykkur í liði. Ég get ekki lofað ykkur því að ég geri ekki fleiri mis­tök, ég er mann­leg og vil vera það því ég trúi að af mis­tök­unum lærum við mest og minnst lærum við þegar við teljum sjálfum okkur og öðrum trú um að við vitum allt best.“

Hún segir kjarn­ann í skila­boðum páfa vera að: „Við þekkjum sjaldn­ast allar hliðar mála og fátt er að mínu mati mik­il­væg­ara en að við séum börnum okkar góð fyr­ir­mynd og vöndum orð okkar og gjörðir og sýnum þannig að við búum yfir þroska til að skipt­ast á skoð­unum og ræða mál af virð­ingu, umhyggju og kær­leik.“

Um helg­ina mun Halla sækja útför Frans páfa og nú þegar hefur hún sótt minn­ing­ar­stund um hann. „Áhuga­samir geta lesið ákall hans um að við sinnum betur okkar sam­eig­in­lega heimi(li) í bréfi hans „Laudato si”“. Þá vísar hún til orða Frans páfa um að „það þurfi ein­ungis einn ein­stak­ling til að vonin lifi og að hvert okkar geti verið sá ein­stak­lingur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una