Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sósíalistar loga: Sólveig Anna rokin út

Yfir­gefur „yfir­gengi­lega bil­aða stemn­ingu“.

Sósíalistar loga: Sólveig Anna rokin út

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur sagt sig úr Sós­í­alista­flokki Íslands eftir harða orð­ræðu um boð­skap hennar gegn woke-hug­mynda­fræði. Sólveig birtir stöðu­færslu frá Maríu Pét­urs­dóttur, sem var áður odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem gagn­rýnir hana fyrir að „tala beint inn í öfga­hægrið og fas­is­mann“.

Þetta segir Sólveig Anna jafn­gilda því að henni sé líkt við fas­ista. Hún segir sig því úr flokknum og und­ir­strikar nýjan klofn­ing hjá vinstri flokknum.

„Við að lesa sví­virð­ing­arnar, þar sem að ein af for­ystu­konum flokks­ins líkir mér við fas­ista og segir mig tala gegn mann­rétt­indum er mér ljóst að ég á ekki lengur heima í Sós­í­alista­flokknum,“ segir Sólveig í kveðju­færslu á Rauða þræð­inum, spjall­svæði Sós­í­alista­flokks­ins. „Það þykir mér leitt en við því er ekk­ert að gera. Nema að hætta í flokknum sem ég geri hér með. Ég get ekki til­heyrt hópi þar sem að stemmn­ingin er orðin svona yfir­gengi­lega biluð.“

Gagnrýndi woke-herferð

Ummælin sem fylltu mæl­inn hjá Sólveigu Önnu voru gagn­rýni Maríu þess efnis að hún klyfi Sós­í­alista með því að fara í veg­ferð gegn woke-hug­mynda­fræði, sem hún sagði nýlega að væri „ömur­legt“. Hún tal­aði til Sól­veigar Önnu og Viðars Þor­steins­sonar, fram­kvæmda­stjóra Eflingar. „Þið eruð ekki sam­herjar í vinstr­inu. Þið eruð ein­angr­un­ar­sinnar sem talið gegn mann­rétt­indum og inn í jað­ar­inn og yfir til hægri og inn í fas­is­mann. Þið raun­veru­lega trúið þeirri vit­leysu að félags­hyggja sé fyrir stétta­bar­átt­unni.“

Nýlega setti fram­kvæmda­stjórn Sós­íalasta­flokks­ins þær reglur að eng­inn mætti setja meira en ein ummæli á hverri klukku­stund. Þeirri tak­mörkun hefur nú verið aflétt og er uppi fótur og fit.

Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar og Hreyf­ing­ar­innar, seg­ist „láta sem hann sjái ekki“ úrsögn Sól­veigar Önnu og biður Maríu að biðj­ast afsök­unar. „Ég tala bara til hennar á sama hátt og hún talar til ann­arra nema ég sagði henni ekki að hún væri geð­veik eða neitt slíkt,“ svarar María.

Einn þáttak­andi í umræð­unni skorar á Maríu Pét­urs­dóttur að „segja af sér“.

„Ég er ekki í neinu emb­ætti,“ svarar hún.

Klofningur skekur efstu sæti

Sólveig Anna var í þriðja sæti fram­boðs­lista Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. María Pét­urs­dóttir var í öðru sæti í Reykja­vík norður, á eftir Gunnari Smára Egils­syni.

Sós­í­alista­flokkur Íslands er nú þegar klof­inn vegna deilna ung­liða og fleiri gagn­vart for­manni fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, Gunnari Smára Egils­syni. Deil­urnar hófust þegar Karl Héðinn Krist­jáns­son, starfs­maður Eflingar, sak­aði Gunnar Smára um and­legt ofbeldi og fleira. Karl var sjálfur í öðru sæti í Reykja­vík suður.

Fylgi Sós­í­alista­flokks­ins mæld­ist 5,4% í síð­ustu könnun Gallups, litlu minna en Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum