Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir Guðrúnu vilja reka Hildi Sverrisdóttur sem þingsflokksformann

„Næsti bær við það að þing­flokk­ur­inn standi í björtu báli.“

Segir Guðrúnu vilja reka Hildi Sverrisdóttur sem þingsflokksformann
Guðrún Haf­steins­dóttir Formaður Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sagður vilja reka þing­flokks­for­mann­inn Mynd: Reynir Traustason

Össur Skarp­héð­ins­son spyr í nýrri Facebook-færlu, hvenær það muni sjóða upp úr hjá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Stjórn­mála­ref­ur­inn og fyrrum ráð­herr­ann Össur Skarp­héð­ins­sons skrif­aði færslu á Facebook rétt í þessu þar sem hann veltir fyrir sér stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Hvenær sýður upp úr?
Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur nýlokið hreins­un­ar­að­gerðum í Valhöll, sópað burt starfs­mönnum sem höfðu stýrt vinnu flokks­ins og kosn­ingum í ára­tug, á miklu nið­ur­læg­ing­ar­skeiði þar sem flokk­ur­inn hefur fallið niður um margar deildir. Í stað­inn hefur hún sett „sitt“ fólk.
Þetta er full­kom­lega eðli­legt og rök­rétt. Nýr for­maður á það skilið að fá að byrja með hreint borð. Bæði á flokks­kontórnum, en ekki síst í stjórn þing­flokks. Þetta er hins vegar mjög erfitt, einkum í stofn­ana­væddum flokki einsog Sjálf­stæð­is­flokknum, þar sem smá­kóngar og valda­klíkur hafa hreiðrað um sig.“

Össur segir að utan frá hafi hinum nýja for­manni tek­ist vel til en að miðað við Facebook-færslu fyrr­ver­andi þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem birt­ist um helg­ina, sé sann­leik­ur­inn þó allt annar:

„Utan frá virt­ist þetta takast nýjum for­manni þokka­lega. Það var engu lík­ara en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem eftir lands­fund­inn og heift­ar­leg átök um for­mennsku er a.m.k. tví­klof­inn ofan í rót, hefði ákveðið að fylkja sér að baki for­mann­inum og gefa henni ráð­rúm til að sýna hvað í henni býr.
En hafi mér, eða öðrum orðið á sú skyssa að halda að friður sé brost­inn á í Sjálf­stæð­is­flokknum var okkur kippt ræki­lega inn í veru­leik­ann á sunnu­dags­kvöldið. Gamall og virtur þing­skör­ungur, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, fyrrum for­maður þing­flokks­ins, sýndi þá ofan í bull­sjóð­andi djúp flokks­ins með eft­ir­far­andi texta á facebook:
“Ef það reyn­ist rétt að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilji skipa nýjan for­mann þing­flokks­ins en sitj­andi þing­menn komi í veg fyrir það, þá er illa komið fyrir Sjálf­stæð­is­flokknum, en ég ætla rétt að vona að þetta sé orðið á göt­unni en ekki sann­leik­anum sam­kvæmt”.“

Segir Össur að Ragn­heiður virð­ist hafa heim­ild­irnar á hreinu en hún studdu Guðrúnu í for­manns­kjör­inu opin­ber­lega.

„Að sönnu er Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir byssa af því tagi sem bæði miðar og skýtur sjálf. En hún virð­ist hafa heim­ildir fyrir því að Guðrún Haf­steins­dóttir – sem hún studdi dyggi­lega opin­ber­lega – vilji reka Hildi Sverr­is­dóttur úr emb­ætti þing­flokks­for­manns, en þing­flokk­ur­inn komi í veg fyrir það. Samkvæmt því kemur nýr for­maður ekki áformum sínum fram af því meiri­hluti þing­flokks­ins er henni andsnú­inn.“

Að lokum segir Sam­fylk­ing­ar­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi að kjós­endur eigi rétt á að fjöl­miðlar fái svör við ýmsum spurn­ingum varð­andi stöð­una í Sjálf­stæð­is­flokknum. Kemur hann með nokkrar spurn­ingar, til að hjálpa fjöl­miðlum:

„Kjós­endur eiga vita­skuld rétt á að fjöl­miðlar upp­lýsi um stöð­una í stærsta flokki stjórn­ar­and­stöð­unnar. Er það rétt að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ekki lengur traust á Hildi sem þing­flokks­for­manni? Er rétt að Hildur þrá­ist við að fara? Er rétt að nýkjör­inn for­maður sé í slíkum minni­hluta í eigin þing­flokki að hún nái ekki fram þeim breyt­ingum á stjórn þing­flokks­ins sem hún telur nauð­syn­legar til að koma flokknum aftur á kjöl?
Þetta er nátt­úr­lega næsti bær við það að þing­flokk­ur­inn standi í björtu báli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum