Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr át úldinn sviðakjamma

„Ekki besti matur sem ég hef fengið“

Jón Gnarr át úldinn sviðakjamma
Jón Gnarr Jón er hálf­gerð alæta. Mynd: Alþingi

Jón Gnarr kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að mat eins og sjá má í nýlegri Facebook-færslu þing­manns­ins. Þar seg­ist hann hafa fengið sér skerpu­kjöt, spekk og grind­ar­hval í Norræna hús­inu á dög­unum þegar haldið var upp á dag fær­eyska fán­ans. „Sann­kallað góð­gæti,“ skrif­aði Jón um þessa þjóð­legu rétti frá Færeyjum.

Segir Jón að það hafi komið mörgum á óvart að hann væri gef­inn fyrir slíkan mat og tekur fram að ákveðin teg­und af karl­mönnum hafi í gegnum tíð­ina haft „skrítnar hug­myndir um lífs­hætti“ Jóns.

„Ég fór í Norræna húsið um dag­inn á degi Færeyska fán­ans. Þar var boðið uppá skerpu­kjöt, grind og spekk með. Sann­kallað góð­gæti. Það virt­ist koma mörgum á óvart að ég væri gef­inn fyrir svona. Ákveðin teg­und af köllum sem eru 1+ kyn­slóð eldri en ég virð­ast mér oft hafa skrítnar hug­myndir um mína lífs­hætti. Fæ oft glósur frá þeim í skötu­veislum og slíku.“

Jón telur síðan upp dæmi um það sem hann hefur látið ofan í sig í gegnum tíð­ina en það verður seint kallað kræs­ingar og eru les­endur sem eru við­kvæmir eða velgju­gjarnir var­aði við að lesa lengra.

„Ég hef nú samt látið oní mig margt ókræsi­legra en þeir flestir. Mér finnst tinda­bykkja með hnoð­mör góð. Ég át einu sinni soð­inn mjólk­ur­kóp sem Ólína á Kinna­stöðum bauð mér uppá, afþakk­aði reyndar soðin júgur á Ein­ars­stöðum í Reykja­hverfi og fylgd­ist með pabba graðka í sig sviðnum sels­haus sem kall­að­ist góna og þótti herra­manns­matur. En ég át einn og einn kubb af salt­aða sel­spik­inu sem pabbi fékk í versl­un­inni Sval­barða. Ekki var það sér­stak­lega gott. Súrsaða leggi át ég einsog flest annað sem kom uppúr súrtunn­unni. Svart­baks­egg át ég af bestu lyst hvert vor en gaf pabba egg með ungum í. Rámar í súr­suð svart­baks­egg.“

Og Jón er hreint ekki búinn að telja upp hina ókræsi­legu rétti sem hann hefur borðað yfir ævina.

„Rámar líka í salt­aða grá­sleppu. Samkvæmt pabba borð­aði ég súrs­aða sels­hreyfa sem barn þótt ég muni ekki eftir því og lang­aði ekk­ert í það síðar.

Siginn og kæstur fiskur var hvers­dags­matur á mínu æsku­heim­ili. Í Svíþjóð át ég sur­strömm­ing af bestu lyst. Gaf pabba eina dós en hann kúg­að­ist svo mikið þegar hann opn­aði hana að hann gat ekki smakkað.“

Að lokum skrifar þing­mað­ur­inn fyndni frá því að hann hafi nýverið borðað úld­inn sviða­kjamma. Hér mega hug­rakkir lesa þá lýs­ingu:

„Át síð­ast úld­inn svið­skjamma á svið­inu í Sam­komu­hús­inu, augað með­talið. Þetta voru mín eigin mis­tök því ég tók ekki nýjan kjamma heldur annan sem legið hafði á borði við stofu­hita í viku. Ekki besti matur sem ég hef fengið en heldur ekk­ert alvont og mér varð ekki meint af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu