Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kona réðist á pítsasendil með hnefahöggum í andlitið

Ber­serkur hand­tek­inn á hót­el­her­bergi.

Kona réðist á pítsasendil með hnefahöggum í andlitið

Níu manns gista fanga­geymslu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir gær­kvöldið og nótt­ina. Alls voru 74 mál bókuð í kerfum lög­regl­unnar á þessu tíma­bili. Hér eru nokkur dæmi.

Víð­áttu­ölv­aður ein­stak­lingur dund­aði sér við að brjóta rúður á hót­eli í Reykja­vík. Þar sem hann var ekki í nokkru ástandi til þess að vera meðal almenn­ings var hann vistaður í fanga­klefa.

Þá rændi kona síma af pít­sa­sendli og þegar send­ill­inn elti hana veitt­ist hún að honum með hnefa­höggum í and­litið. Var hún í ann­ar­legu ástandi og vistuð í klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Til­kynn­ing barst einnig um eld sem reynd­ist vera í grilli mat­sölu­staðar í Reykja­vík. Gekk slökkvi­lið­inu vel að slökkva eld­inn og engar meiri­háttar skemmdir urðu í eld­hús­inu, fyrir utan eld­un­ar­tækið.

Ökumaður sem síend­ur­tekið hefur verið tek­inn án öku­rétt­inda, hélt áfram upp­teknum hætti en þegar lög­reglan stöðv­aði hann reynd­ist hann einnig vera á nagla­dekkjum. Á öku­mað­ur­inn yfir höfði sér sekt.

Þá barst lög­regl­unni til­kynn­ing um mann sem væri að ganga ber­seks­gang á hót­el­her­bergi. Hafði hann haft orð á því að ef lög­reglan mætti á svæðið myndi hann slást við hana. Rætt var við aðil­ann í her­berg­inu, sem var væg­ast sagt í ann­ar­legu ástandi vegna fíkni­efna­notk­unar og var óút­reikn­an­legur í hegðun. Æstist hann og róað­ist til skiptis. Inni í her­berg­inu mátti sjá meint fíkni­efni. Var ber­sek­ur­inn að lokum hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð­ina við Hlemm, þar sem meiri fíkni­efni fund­ust á honum. Var hann vistaður í klefa.

Og enn um hótel, en til­kynnt var um inn­brot á hót­el­her­bergi þar sem heyrn­ar­tólum, vega­bréfi og fleiru var stolið en málið er í rann­sókn. Einnig bar brot­ist inn á annað hótel þar sem hurð var spennt upp aftan við húsið og farið þar inn. Þegar lög­regl­una bar að garði var eng­inn í hús­inu en málið er í rann­sókn.

Inn­brota­til­kynn­ing­arnar voru fleiri en ein slík barst um inn­brot í hús­næði félags­sam­taka í gegnum glugga. Þá barst einnig til­kynn­ing um þrjót sem var að brjót­ast inn í hús­næði með verk­færi en sá hljóp í burtu. Málin tvö eru bæði í rann­sókn.

Lög­regl­unni sem ann­ast útköll í Hafn­ar­firði, Garðabæ og á Álfta­nesi, barst til­kynn­ing um eld í þvotta­vél á heim­ili. Búið var að slökkva eld­inn þegar lög­reglan kom á vett­vang.

Sömu lög­reglu barst til­kynn­ing um óvel­komna menn sem höfðu brotið upp lykla­box og komið sér fyrir í sam­eign fjöl­býlis. Voru þeir drukknir og vel kunn­ugir lög­regl­unni. Voru þeir vistaðir í klefa.

Kópavogs - og Breið­holtslög­regl­unni barst til­kynnig um sótölv­aðan mann sem var ber að ofan með bar­efli við hús­næði í Breið­holt­inu. Taldi hinn rok­fulli maður að það væri hans mikla köllun að vernda húsið, í sam­ræðum við lög­regl­una og sagð­ist ómögu­lega geta lofað því að halda ekki áfram upp­teknum hætti. Var hann að end­ingu hand­tek­inn og vistaður í klefa sökum ástands og brots á vopna­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag