Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Klofningshópur Sósíalista hallar sér að Kína

Fulltrúi Sós­í­alista ræddi við kín­verska sendi­herr­ann um hrað­lest kringum Ísland og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur. Uppgjör verður um helg­ina hjá Sós­í­alistum.

Klofningshópur Sósíalista hallar sér að Kína
Með sendi­herra Kína Sæþór Benjamín Randals­son hittir hér kín­verska sendi­herr­ann, He Rulong, í kín­verska sendi­ráð­inu. Mynd: Facebook / Sæþór Benjamín

„Ég hafði þann ótrú­lega heiður að vera boðið í kín­verska sendi­ráðið á Íslandi í dag og eyða tíma með sendi­herr­anum, He Rulong,“ sagði Sæþór Benjamín Randals­son, með­limur í Sós­í­alista­flokki Íslands, í færslu á Facebook í síð­ustu viku.

Sæþór er hluti af þeim hópi sem staðið hefur gegn núver­andi for­manni fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, Gunnari Smára Egils­syni. Framundan er upp­gjör á aðal­fundi Sós­í­alista­flokks­ins á laug­ar­dag þar sem kallað er eftir for­manns­skiptum.

Gunnar Smári vekur máls á því í dag að með­lim­ur­inn sem upp­haf­lega reisti ágrein­ing­inn við hann, deilir færslu Sæþórs undir þeim for­merkjum að þar fari næsti for­maður. „Verðandi for­maður Sós­í­alista­flokks­ins hitti sendi­herra Kína (allir mæta á aðal­fund­inn 24. maí og kjósa),“ sagði Karl Héðinn.

„Það skrítna er að Karl Héðinn Krist­jáns­son, and­ófs­maður í Sós­í­alista­flokknum, dreifði þessum status inn á spjall­þráð þeirra sem stefna á yfir­töku á Sós­í­alista­flokknum með þessum orðum,“ sagði Gunnar Smári í skila­boðum til félags­manna í morgun.

Ræddu Sólveigu Önnu

Færslu Sæþórs var vel tekið af þeim hópi sem helst hefur gagn­rýnt Gunnar Smára og hans nán­asta fylg­is­fólk. Þar á meðal eru Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, þar sem Sæþór starfar, og Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son.

„Ég er mjög þakk­lát fyrir þessa reynslu. Kína og afrek þess undir for­ystu flokks­ins hafa verið inn­blásandi að fylgj­ast með og erlendir sendi­herrar þeirra, allir með­limir flokks­ins, eru mjög fag­mann­legir í starfi sínu. Ísland gæti lært margt af því hvernig á að beisla fram­leiðslu­afl þjóð­ar­innar til að nota til að bæta hag allra borg­ara,“ segir Sæþór.

Hann ræddi sam­skipti Íslands og Kína, og svo for­mann Eflingar, Sólveigu Önnu Jóns­dóttur.

„Mér var boðið upp á ljúf­fengt kín­verskt te og ég fékk að tala við sendi­herr­ann um Eflingar og for­mann okkar, Sólveigu Önnu, sem hann var mjög for­vit­inn um. Við töl­uðum um sam­skipti Íslands og Kína og ég fékk að spyrja um Kín­verska utan­rík­is­mála­há­skól­ann.“

Þá kynnti Sæþór kín­verska sendi­herr­anum hug­myndir um inn­viða­upp­bygg­ingu. „Ég kynnti hug­mynd­ina um að fá hrað­lest umhverfis eyj­una og þór­íumofn til að knýja hana, ásamt því að hjálpa okkur að þjálfa verk­fræð­inga við háskól­ann okkar til að þjón­usta hana, en ég held að ég gæti þurft aðeins meira póli­tískt vald til að klára samn­ing­inn.“

Sæþór til­kynnti í dag fram­boð sitt í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, eins og síð­ustu tvö ár, og hefur lagt fram stefnu­skrá sem horfir til starfs­að­ferða Eflingar.

„Efling hefur verið frá­bært dæmi um hvernig hægt er að end­ur­vekja virka stétta­bar­áttu hér á Íslandi og við ættum að afrita ferlið inn í stjórn­mála­flokk­inn okkar,“ segir hann þar.

Unnið að formannskiptum

Karl Héðinn Krist­jáns­son svarar Gunnari Smára í umræðum á Rauða þræð­inum, spjall­svæði Sós­í­alista­flokks­ins, með því að end­ur­taka ásak­anir á hendur honum og kalla eftir for­manns­skiptum.

„Þú sviptir fólk launum, beitir and­legu ofbeldi og ferð með félögin eins og þinn einka­klúbb,“ segir Karl. „Þú hefur barist gegn vald­dreif­ingu, gegn svæð­is­fé­lögum og gegn því að félags­menn fái reglu­lega upp­lýs­ingar og rödd í eigin hreyf­ingu. Ég vona að flokks­menn sjái í gegnum þetta leik­rit og kjósi nýja for­ystu. Þá getum við farið í þá nauð­syn­legu upp­bygg­ing­ar­vinnu sem þú hefur staðið í vegi fyrir.“

Sögulega séð hafa íslenskir sós­í­alistar reynt að rækta tengslin við Kína. Viðhorf íslenskra vinstri­manna til Kína þró­að­ist þó yfir í aukna gagn­rýni á vald­beit­ingu Komm­ún­ista­flokks Íslands. Síðustu ára­tugi hafa sam­skipti Íslands við Kína, bæði frá hægri og vinstri, almennt lit­ast af við­skipta­hags­munum. Þannig var það rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem und­ir­rit­aði frí­versl­un­ar­samn­ing við Kína, þann fyrsta sinnar teg­undar við evr­ópska þjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum