Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

„Héðan í frá fylgist allur heim­ur­inn með.“

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf
Christian Brueckner Brueckner verður laus úr fang­elsi í sept­em­ber ef ekk­ert breyt­ist.

Christian Brueckner, sá sem er helst grun­aður í hvarfi Madel­eine McCann, hefur skrifað óhugn­an­legt bréf úr fang­elsi þar sem hann heldur því fram að yfir­völd muni aldrei finna sann­anir gegn honum.

Brueckner, dæmdur barn­a­níð­ingur frá Þýska­landi sem nú afplánar dóm fyrir nauðgun á eldri konu, gerði lítið úr rann­sókn lög­reglu í bréf­inu og benti á að lík lít­ils stúlku­barns hafi aldrei fund­ist. Í bréf­inu skrifar hann: „Er lík? Nei, nei nei.“

Þessi óhugn­an­legu orð koma fram skömmu eftir að þýska lög­reglan hætti við nýja leit í nágrenni Praia da Luz í Portúgal, þar sem Madel­eine, þá þriggja ára, hvarf fyrir 18 árum. Brueckner, sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot, bjó sjálfur á svæð­inu á þeim tíma sem hún hvarf.

Þýsk og portú­gölsk lög­regla sam­ein­uðu krafta sína í vik­unni og leit­uðu á lóðum og fast­eignum tengdum Brueckner, þar sem fang­els­is­vist hans á að ljúka í sept­em­ber. Rann­sókn­ar­að­ilar eru sann­færðir um að hann beri ábyrgð á hvarfi Madel­eine og kepp­ast við að finna sönn­un­ar­gögn áður en hann verður lát­inn laus, en hann hefur neitað allri sök.

Í bréf­inu, sem The Sun hefur undir höndum, full­yrðir Brueckner, 48 ára, að engar sann­anir séu til gegn honum. Hann spyr hvort DNA hans hafi fund­ist á vett­vangi, eða hvort nokkur ummerki eftir Madel­eine hafi fund­ist í far­ar­tækjum hans.

Hann skrif­aði:

„Eru ein­hver önnur ummerki/DNA hennar í mínu fórum? Ljós­myndir? Og ekki má gleyma, er lík? Nei, nei nei.“

Hann hélt áfram og sagði að ákær­urnar gegn sér myndu ekki stand­ast og að málið yrði að lokum látið niður falla.

Í bréf­inu heldur Brueckner því einnig fram að málið bygg­ist á „keyptum vitnum“, en hann segir sig þekkja þýska rétt­ar­kerfið vel og heldur því fram að það sé ólík­legt að hann verði dæmdur í tengslum við hvarf Madel­eine.

„Nú er leið mín vörðuð rang­færslum, svo að segja,“ skrif­aði hann, „en héðan í frá fylgist allur heim­ur­inn með. Ekki einu sinni hér­aðs­dóm­ur­inn í Braunschweig þorir nú að gera aug­ljósa rang­færslu.“

Þessi bréfleki kom aðeins degi eftir að nýjasta leitin í mál­inu var stöðvuð, eftir að rann­sókn­arteymi virt­ist ekki hafa fundið nein hald­bær sönn­un­ar­gögn. Leitin hófst þriðju­dag­inn 3. júní og fól í sér ítar­lega yfir­ferð á meira en 20 lóðum austan við Praia da Luz, þar á meðal var sum­ar­leyf­is­staður sem Brueckner hafði dvalið í um tíma þegar Madel­eine hvarf.

Brueckner er tal­inn hafa búið í bíl eða tjaldað á meðan hann dvaldi í suð­ur­hluta Portú­gals.

Leit­arteymi fundu bein úr dýrum og fatnað full­orð­inna á þessum stöðum, sam­kvæmt fréttum í portú­gölsku sjón­varpi. Lögregla hefur hins vegar ekki gefið út neina opin­bera yfir­lýs­ingu um hvað hafi raun­veru­lega fund­ist.

Jarðýtur og sér­hæfður rat­sjár­bún­aður voru notuð við leit­ina, sem stóð yfir í þrjá daga, en ekki hefur verið gefið út hvort eitt­hvað af fund­unum verði sent til Þýska­lands til frek­ari grein­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco