Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Amma og afi Víglundar minnast hans með hlýju

„Því að þrátt fyrir að þér hafi aðeins verið gefin tíu ár, þá skilur þú eftir hlýjar minn­ingar í hjörtum allra sem þér kynnt­ust.“

Amma og afi Víglundar minnast hans með hlýju
Víglundur Þor­steins­son Mynd: Facebook

Amma Víg­lundar Þor­steins­sonar, sem lést af slys­förum 28. maí síð­ast­lið­inn, aðeins 10 ára að aldri, Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir, birtir fal­leg minn­ing­ar­orð sem hún og afi Víg­lundar skrif­uðu á Facebook.

Rifja þau upp hversu fljótt bænda­genin hafi komið í ljós hjá Víglundi í upp­hafi færsl­unnar:

„Elsku Víglundur okkar. Eða Lundi eins og við köll­uðum þig lengi vel eða allt þar til þú komst því skýrt á fram­færi við okkur að þér lík­aði ekki það við­ur­nefni. Það var nokkuð ljóst þegar við sáum þig fyrst að þú hefðir fengið bænda­genin frá föður þínum. Þínar stóru hendur voru strax mun hent­ugri til að halda utan um girð­ing­ar­staura heldur en að sinna skrif­stofu­vinnu. Enda þurfti ekki að kalla til Íslenska erfða­grein­ingu til að gera frek­ari DNA grein­ingu á þér.“

Aðal­björg segir að Víglundur hafi ekki verið orð­inn hár í loft­inu þegar hann vildi taka út sprett­una heima hjá afa sínum og ömmu:

„Þín sam­setn­ing erfða­mengis sem bóndi varð ljós mjög snemma. Þú hefur sjálf­sagt ekki verið eldri en 3ja ára þegar þú komst í gist­ingu til okkar og það fyrsta sem þú gerðir var að fara út á lóð­ina okkar til að taka út sprett­una. Þér leist ekk­ert á þessa órækt sem blasti við þér á blett­inum okkar og sagðir að þarna væri nú aldeilis verk að vinna. Þetta þyrfti að herfa og plægja þannig að næst þegar þú kæmir myndir þú taka með þér tæki til þess að vinna á þessu. Þér fannst þó afi þinn ekki vera nægi­lega áhuga­samur um nauð­syn þess að ráð­ast sem fyrst í þessa vinnu.“

Næst þegar Víglundur litli kom í heim­sókn var hann til­bú­inn að taka til hend­inni á lóð­inni:

„Þegar þú komst svo næst í gist­ingu þá varstu búinn að taka til ýmis­konar tæki og tól sem þú taldir lík­leg til þess að gagn­ast við að koma rækt í órækt­ina. Þú vildir svo hefj­ast handa um leið og við stigum inn fyrir þrösk­uld­inn en við töldum ráð­legra að bíða til morg­uns. „Klukkan hvað á ég að byrja á morgun?“ spurðir þú þá en afi þinn sagði að þú gætir byrjað um leið og þú vakn­aðir dag­inn eftir. Síðan vakn­aðir þú auð­vitað kl. 7 morg­un­inn eftir og vildir hefj­ast handa. Okkur tókst að fá þig til að borða fyrst morg­un­mat og horfa aðeins á barna­efnið með Lofti áður en þú dreifst þig út í garð með þínar stór­virku vinnu­vélar til að vinna á órækt­inni. Það sem eftir lifði helg­ar­innar slóst þú ekki slöku við að plægja, herfa og bera á blett­inn.“

Að lokum segja amma og afi Víg­lundar þessa minn­ingu lýsa mann­kostum Víg­lundar vel og birtir síðan fal­legt ljóð eftir Friðrik Guðna Þor­leifs­son.

„Þessi litla minn­ing lýsir mann­kostum þínum vel; að sjá hvað mætti betur fara, finna leiðir til að takast á við það, ráð­ast fum­laust í verkið og ljúka því af var­kárni og með sóma. Jafn­ósann­gjarnt og það er að þér hafi ekki verið gef­inn tími til að láta alla draumana þína ræt­ast, þá er huggun harmi gegn að þú nýttir vel hverja stund. Því að þrátt fyrir að þér hafi aðeins verið gefin tíu ár, þá skilur þú eftir hlýjar minn­ingar í hjörtum allra sem þér kynnt­ust.

Þau ljós sem skær­ast lýsa,
þau ljós sem skína glað­ast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hrað­ast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauð­ans dómur fellur
og dóm þann eng­inn skilur.

En skinið loga skæra
um skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þór­leifs­son)

Sofðu rótt, elsku dreng­ur­inn okkar.
Afi og Adda amma.“

Útför Víg­lundar fór fram í gær í Skál­holts­dóm­kirkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá