Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Sorglegt hvað lítið hefur gerst í þessum efnum í Reykjanesbæ“

Uppeldis- og mennt­un­ar­fræð­ingur segir að und­an­farna daga hafi leik­skóla­málin í Reykja­nesbæ kom­ist í kast­ljósið og það ekki að ástæðu­lausu

„Sorglegt hvað lítið hefur gerst í þessum efnum í Reykjanesbæ“
Gígja Sigríður Guð­jóns­dóttir er upp­eldis- og mennt­un­ar­fræð­ingur Segir leik­skóla­mál í Reykja­nesbæ í ólestri Mynd: Aðsend.

Gígja Sigríður Guð­jóns­dóttir, upp­eldis- og mennt­un­ar­fræð­ingur, hefur miklar áhyggjur af stöðu leik­skóla­mála í Reykja­nesbæ. Hún skrifar grein sem ber yfir­skrift­ina Svikin lof­orð í leik­skóla­málum Reykja­nes­bæjar.

Gígja segir að und­an­farna daga hafi leik­skóla­málin í Reykja­nesbæ kom­ist í kast­ljósið og ekki að ástæðu­lausu:

„Umræðan hefur blossað upp af krafti og óhætt er að segja að margar barna­fjöl­skyldur hafi beðið lengi eftir að þessi mik­il­vægi mála­flokkur fengi verð­skuld­aða athygli.“

Gígja segir frá því að hún hafi fyrir fjórum árum verið í „þeirri stöðu að bíða eftir leik­skóla­plássi og þótti staðan ein­fald­lega ólíð­andi að þurfa bíða 6-12 mán­uðum lengur eftir plássi heldur en vin­konur mínar í öðrum sveit­ar­fé­lögum.“

Hún nefnir að það var einmitt af „þeirri ástæðu að ég bauð mig fram í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þar sem upp kom ákveðið lof­orða­kapp­hlaup um bæt­ingar í leik­skóla­málum.“

Sam­fylk­ingin stóð uppi sem sig­ur­veg­ar­inn „með lof­orði um dag­vistun barna við 18 mán­aða aldur. Að ákveðnu leiti er ánægju­legt að sjá umræð­una um leik­skóla­mál blossa upp aftur, því öfl­ugir leik­skólar gera grunn­inn að góðum og barn­vænum sam­fé­lögum.“

Hún segir einnig að „á sama tíma er sorg­legt að sjá hvað lítið hefur gerst í þessum efnum hjá okkur í Reykja­nesbæ. Með­al­aldur barna sem hefja leik­skóla­göngu í Reykja­nesbæ er nú allt að ári hærri en í sam­bæri­legum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar.“

Gígja færir í tal að í Garðabæ, Hafn­ar­firði, Akureyri, Kópavogi og Mos­fellsbæ hefji börn leik­skóla­dvöl að jafn­aði á aldr­inum 15 til 19 mán­aða:

„Í Reykja­nesbæ er þetta bil hins vegar 24 til 29 mán­aða og í verstu til­fellum er börnum ekki boðin leik­skóla­dvöl fyrr en þau eru eldri en 30 mán­aða. Í Reykja­nesbæ starfar þó öfl­ugur hópur dag­for­eldra, sem eru ekki á vegum bæj­ar­ins. Því er ekk­ert tryggt fram­boð af þeim og stöðug umræða um inn­ritun barna í leik­skóla við 12 mán­aða aldur heldur aftur af nýliðun og fjölgun í þeirri starfs­stétt.“

Hún nefnir einnig að miðað við skráða dag­for­eldra í Reykja­nesbæ gætu þeir tekið á móti 135 börnum, en í Reykja­nesbæ eru yfir 700 börn á aldr­inum 0 – 2 ára:

„Þegar þetta er staðan þurfa margir for­eldrar að skipt­ast á að taka launa­laust leyfi, fresta því að fara aftur inn á vinnu­markað og leyta úrlausna sem hafa áhrif á fjár­haf fjöl­skyld­unnar og getur valdið miklu álagi.“

Að mati Gígju snú­ast leik­skóla­málin ekki bara um dag­vistun – þau snú­ist um örvun, félags­skap og fram­tíð barn­anna, mögu­leika for­eldr­anna og það hvort sveit­ar­fé­lagið hafi raun­veru­legan metnað til þess að skara fram úr í þjón­ustu við barna­fjöl­skyldur:

„Þegar þessi grunn­þjón­usta sveit­ar­fé­lags­ins er ekki að batna er verið að grafa undan sam­keppn­is­stöðu bæj­ar­ins. Barna­fjöl­skyldur leita ein­fald­lega annað, þangað sem þjón­ustan er í lagi og þar sem stjórn­endur taka ábyrgð. Með þessum orðum er ég að vekja athygli á að skamm­tíma­ráð­staf­anir meiri­hlut­ans hafa ekki virkað, það þarf að spíta í lóf­ana og gera Reykja­nesbæ að eina besta sveita­fé­lagi lands­ins fyrir barna­fjöl­skyldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag