Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Annaðhvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum“

Magga Stína skrifar þing­konu opið bréf og lætur hana heyra það

„Annaðhvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum“
Magga Stína lætur Rósu þing­konu heyra það hressi­lega Segir eðli­legt að mót­mæla á 17. júní. Mynd: Aðsend

Margrét Kristín Blöndal er betur þekkt sem Magga Stína. Hún hefur tekið sér margt fyrir hendur og gert það vel. Er frið­ar­sinni. Og aðgerð­ar­sinni. Skrifar opið bréf til þing­kon­unnar Rósu Guð­bjarts­dóttur sem áður en hún hélt á þing sat á stóli bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði.

Magga Stína var gagn­rýnd af Rósu fyrir að mót­mæla hel­för­inni á Gaza á lýð­veld­is­dag­inn 17. júní, en það þótti Rósu ekki vera til­hlýði­legt en Mögga Stína er ekki á sama máli:

„Sæl Rósa. Ég heyrði utan af mér að eitt­hvað hafði skyggt á gleði þína á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn nýlið­inn. Svo mjög, að þú sást ástæðu til að skrifa um óánægju þína á inter­netið. Þar skrifar þú: ,,Í gær fögn­uðum við 81 árs afmæli íslenska lýð­veld­is­ins og eins og jafnan á þessum hátíð­is­degi komum við saman og gleðj­umst yfir merkum og mik­il­vægum áfanga. Á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn klæðum við okkur upp og fögnum frels­inu, lýð­ræð­inu, mann­rétt­ind­unum, sjálf­stæði og sér­stöðu þjóð­ar­innar. Þá fögnum við sér­stak­lega gild­unum okkar, við leggjum áherslu á hvað sam­einar okkur, hvað það er að vera Íslend­ingur og að búa á Íslandi.” og svo frv…

Við lest­ur­inn vökn­uðu upp hjá mér spurn­ingar eins og þessi: Hver erum þessi við, sem þú talar um, við, sem klæðum okkur upp og um hvaða frelsi ert þú að tala? Er það hið marg­fræga, frelsi til athafna? Getur verið, að þú eigir einkum og sér í lagi við þitt eigið frelsi? Frelsi Rósu Guð­bjarts­dóttur? Er það, það frelsi, sem er til umfjöll­unar hjá þér?“

Magga Stína heldur áfram og seg­ist vel skilja ef Rósa vilji fá að „fagna frelsi þínu. Kona í þinni stöðu, sem þiggur laun af almenn­ingi. Það er aldeilis ástæða til að fagna. Því jafn­vel þótt þú standir fyrir það gild­is­mat sem þing­maður, um að hvetja til auk­innar mis­skipt­ingar þá skil ég fögnuð þinn á ein­hvern hátt. Til ham­ingju með frelsið Rósa. Til aðeins minni ham­ingju með frelsið, þú sem skúrar kló­settið á alþingi en stendur eins og klettur undir launa­seðl­inum hennar Rósu. Rósa, þú vilt fá að fagna mann­rétt­indum á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn, en samt bara aðeins að þagga niður í nokkrum óþol­andi ein­stak­lingum sem trufla þig í þjóð­há­tíð­ar­stemn­ing­unni. Ein­stak­lingum sem kunna ekki að halda kjafti í "mann­rétt­inda­land­inu þínu” í “jafn­réttisparadís­inni” þar sem þú nýtur lífs­ins og smjör drýpur af hverju strái, eitt­hvað lið, sem hefur ekki einu sinni lyst á þjóð­há­tíð­ar­köku þegar verið er að svelta fólk í hel og brenna það lif­andi í leið­inni. Fólk, sem er fyrir þér, á 17. júní, þegar þú loks­ins ætlar slaka aðeins á og leggja stjórn­málin og “deil­urnar” á hill­una og gúffa bara í þig kandíflos­inu. Fella kannski virð­ing­ar­fyllst tár, yfir nýjasta afbrigð­inu af ras­ista­fána okkar Íslend­inga.“

Heldur áfram og segir að „þá fögnum við sér­stak­lega gild­unum okkar”, segir þú, Rósa, “við leggjum áherslu á hvað sam­einar okkur, hvað það er að vera Íslend­ingur og að búa á Íslandi.” Fátt veit ég útvatn­aðra en hug­takið “gildi”, sér­stak­lega úr munni ykkar Sjálf­stæð­iskvenna, en gott og vel. Þú vilt fagna sjálfs­mynd þinni sem Íslend­ings og ekki nóg með það, þú vill fá frið til þess. Frið til að fagna, frið, til að ná að „leggja áherslu á hvað það er að búa á Íslandi.“ Komdu þar, Rósa, segðu okkur frá því hvað það er að vera Íslend­ingur - segðu okkur hvað það er, að búa á Íslandi! Deildu þekk­ingu þinni með okkur, þekk­ingu þinni á íslenskum hefðum, íslenskri sér­stöðu, menn­ingu, íslenskum upp­runa. Ást þín á íslenska fán­anum fer ekki fram hjá neinum sem les pistil þinn. Þú sakar reyndar annað fólk rang­lega um að sýna íslenska fán­anum óvirð­ingu en ég skil vel til­finn­ingar þínar þegar ég rýni í afstöðu þína í inn­flytj­enda­málum sem ríma einmitt vel, við hið nýja en sorg­lega merk­ing­ar­hlut­verk þjóð­fána lands­ins.“

Segir einnig:

„Nú er til máls að taka athuga­semdir þínar Rósa um óæski­legar hópa­mynd­anir fólks á þjóð­há­tið­ar­dag­inn, sem aldrei skyldu verið hafa, leyfðar, því þær eru þér, ekki að skapi. „Að hópar fólks skuli koma saman á þessum degi og það við hátíð­ar­höld við Alþing­is­húsið veif­andi fána ann­ars lands og hrópa ókvæð­is­orð að ráða­mönnum og öðrum við­stöddum, er óboð­legt.” En þarna hleypur þú á þig Rósa! Ég var einmitt þarna stödd og til­heyrði „hópnum“ sem þú talar um. Ann­að­hvort segir þú vilj­andi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum. Kannski léstu þér nægja að lesa lygi­mál Andrésar Magn­ús­sonar „blaða­manns“ á Morg­un­blað­inu en lýs­ingar hans á atvikum voru eins fjarri sann­leik­anum og annað sem stendur í því sorp­riti.

Stað­reyndin er sú, að eng­inn úr þessum hópi hróp­aði eitt ein­asta ókvæð­is­orð að nokk­urri mann­eskju. Hópurinn stóð prúður og kurt­eis, hlust­aði með for­vitni og í nokk­urri andakt á ræðu for­seta Íslands sem var prýði­leg, hlýddi svo á Fjall­kon­una fara með ljóð Þórdísar Helga­dóttur og ynd­is­legan söng kórs­ins Graduale Nobili. Sér­stak­lega var eft­ir­minni­legur flutn­ingur þeirra á ætt­jarð­ar­ljóði Huldu, Hver á sér fegra föð­ur­land við lag Emils Thorodd­sen, ljóð og lag sem mér fynd­ist Alþingi ætti að setja á fón­inn í upp­hafi hvers vinnu­dags til upp­rifj­unar á sam­eig­in­legum „gildum.“

Þegar ráða­fólk þjóð­ar­innar stóð svo upp úr sér­stökum sætum sem komið hafði verið fyrir handa því og hélt gang­andi af Aust­ur­velli kom þessi hluti áhorf­enda sem þú kallar „hóp­inn“ skila­boðum sínum á fram­færi við elít­una eins og vera ber. Ekki, með einu ein­asta ókvæð­is­orði. Þarna voru frétta­miðlar sem tóku lif­andi mynd­skeið af því sem fram fór og eru þessu til sönn­unar.“

Magga Stína bendir Rósu á að „erlendi fán­inn sem þú tal­aðir um í pistli þínum Rósa, er fáni Palest­ínu. Þannig er mál með vexti, að verið er að fremja þjóð­ar­morð á palest­ínsku þjóð­inni og við vorum þarna eins og okkur ber skylda til, bæði til að vekja athygli á því og mót­mæla þeirri stað­reynd að íslensk stjórn­völd hafa með afstöðu sinni og aðgerð­ar­leysi, gerst brot­leg við Alþjóða­lög. Þau bera ábyrgð á því að Ísland er sam­sekt um þjóð­ar­morð sam­kvæmt Alþjóða­lögum, þau bera ábyrgð á því að fara vilj­andi gegn vilja almenn­ings. Þið, berið ábyrgð. Þessu mót­mæltum við á afar hæverskan hátt með tveimur skiltum. Þegar ráða­fólk gekk hjá hróp­aði ég vissu­lega „Lifi frjáls Palest­ína.“ Það verður aldrei hægt að túlka það sem ókvæð­is­orð. Það er upp­hrópun mín á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum þar sem ég fagna til­von­andi frelsi kúg­aðrar þjóðar sem verið er að murrka lífið úr. Þú fagnar þínu frelsi, og þínu frelsi, einu. Síðan hvöttum við við­stadda til að nota rödd sína, til að nýta vald sitt og stöður hvers konar, til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur, til að stöðva þjóð­ar­morð.

Þetta var okkar grund­vall­ar­skylda þennan dag og henni sinntum við. Það var okkar skylda. Það var okkar réttur. Þjóð­há­tíð­ar­dagur Íslend­inga er sann­ar­lega rétti vett­vang­ur­inn til þess að vekja athygli á svikum íslenskra stjórn­valda við Palest­ínu, þjóð sem við við­ur­kenns­dum með stolti sem sjálf­stætt ríki árið 2011. Og 17. júní, afmæl­is­dagur Jón Sig­urðs­sonar, hvers líf snérist um sjálf­stæð­is­bar­áttu þjóðar, er einmitt hár­rétti dag­ur­inn til að mót­mæla. „Vér mót­mælum allir“! Rósa, manstu! Aust­ur­völlur, er almenn­ings­eign og hann er vett­vang­ur­inn, til að minna á svik stjórn­valda við sjálf­stæð­is­bar­áttu Jóns Sig­urðs­sonar og hans hug­sjóna. Það mætti segja mér að hann bærði all­hressi­lega á sér þar sem hann er því sjálf­stæðið, sem honum var svo umhugað um og hann barð­ist fyrir, hefur verið selt og marg­selt, af yfir­völdum, á kostnað almenn­ings auð­vitað.“

Bætir við að „í Palest­ínu hefur vald­níðslan og við­ur­styggðin hins vegar náð að svifta heims­byggð­ina alger­lega trúnni á að okkar sam­eig­in­legu sið­ferð­is­legu grunn­gildi séu yfir höfuð fyrir hendi og við mót­mælum því. Allur heim­ur­inn mót­mælir því. Allur heim­ur­inn gargar í örvænt­ingu, Rósa. Alla daga. Á öllum tímum. ...OG ÞÚ, VILT FÁ FRIÐ FYRIR FÓLKI MEÐ „ERLENDAN FÁNA“ TIL AÐ ÞÚ GETIR FAGNAÐ ÍSLENSKUM GILDUM Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN. Hver er skyni skropp­inn hér? Ég mæli með því Rósa, að þú kynnir þér lög­boðnar skyldur þínar sam­kvæmt Alþjóða­lögum þegar þú verður vitni að þjóð­ar­morði. Þú ert kos­inn á þing til þjón­ustu við almenn­ing, ekki til að kvaka smá­borg­ara­lega eins og kjáni um ekki neitt, heldur ber þér og öðrum kjörnum full­trúum að fara að vilja þjóð­ar­innar sem krefst þess að þið beitið ykkur raun­veru­lega með öllum til­tækum ráðum eins og Alþjóða­lög segja til um fyrir því að þetta þjóð­ar­morð verði stöðvað. Fyrr færðu ekki frí frá hópi fólks með „erlendan fána“ Rósa. LIFI FRJÁLS PALESTÍNA!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð