Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Stefán telur öruggt að hundsbitum muni fjölga

Segir það ekki vera neitt gam­an­mál

Stefán telur öruggt að hundsbitum muni fjölga
Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur Hefur áhyggjur af nýju frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar Mynd: YouTube/Skjáskot

Nýtt frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um dýra­hald í fjöl­býl­is­húsum hefur vakið mikla athygli, sér­stak­lega hjá gælu­dýra­eig­endum, en nái það í gegn þurfa gælu­dýra­eig­endur ekki að fá sam­þykki hjá nágrönnum sínum í fjöl­býli vilji þeir fá sér hund eða kött. Stefán Pálsson, sagn­fræð­ingur og vara­borg­ar­full­trúi, telur að frum­varpið gæti verið tals­vert betra.

„Það eru skiptar skoð­anir á frum­varpi félags­mála­ráð­herra um hunda og ketti í fjöl­eign­ar­húsum og ein­hvern veg­inn finnst manni blasa við að því verði ýtt útaf borð­inu í þing­loka­samn­ingum,“ skrifar Stefán á Facebook. „En ef það verður afgreitt eða end­ur­flutt í haust þætti mér eðli­legt að bæta inn klausu sem tekur skýrt fram að þessir hundar verði að vera skráðir.“

Að sögn Stefáns eru aðeins um fjórð­ungur hunda í Reykja­vík skráður lög­lega en skrán­ing­unni fylgir árlegt gjald, en inni­falið í því er trygg­ing fyrir slysum sem hund­ur­inn kynni að valda.

„Vissu­lega kaupa margir eig­endur óskráðra hunda gælu­dýra­trygg­ingu sem getur inni­haldið ábyrgð­ar­trygg­ingu - en þessi töl­fræði bendir samt til þess að mjög hátt hlut­fall hunda, vænt­an­lega meira en helm­ingur, sé ótryggður.“

Gjaldþrota hundaeigendur

Þetta segir Stefán að sé ekk­ert gam­an­mál og auk­inn þétt­leiki byggðar og vax­andi hunda­eign muni óhjá­kvæmi­lega leiða til þess að atvikum þar sem hundar bíta fólk eða valda skaða hlýtur að fjölga.

„Það er bara ein­falt reikn­ings­dæmi og hefur ekk­ert að gera með það hvort fólk sé hlynnt eða andsnúið hunda­haldi. Ótryggður hundur sem veldur slysi getur hæg­lega leitt til gjald­þrots eig­and­ans sem þar með er per­sónu­lega skaða­bóta­skyldur - að ekki sé talað um hversu erfitt kann að reyn­ast fyrir fórn­ar­lambið að sækja bætur.

Ef stór hluti bíla­flot­ans reynd­ist vera ótryggður myndu stjórn­völd sam­stundis grípa til aðgerða, þegar kemur að óskráðum og/eða ótryggðum hundum er hins vegar ekk­ert kerfi sem hægt er að grípa til. Sá sem er grip­inn á nagla­dekkjum um hásumar getur fengið tug­þús­unda sekt á hvert dekk, en það að eiga óskráðan hund hefur engar afleið­ingar. Það er ekki gott fyrir neinn - allra síst hunda­vini.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag