Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Umdeildasta stjarna íslenska knatt­spyrnu­lands­liðsins

Nauðg­un­ar­á­kæra og ásak­anir um lélegt hug­ar­far hafa sett svip sinn á stór­kost­lega knatt­spyrnu­hæfi­leika Alberts Guð­munds­sonar

Umdeildasta stjarna íslenska knatt­spyrnu­lands­liðsins
Albert Guð­munds­son í leik með íslenska lands­lið­inu Miklir hæfi­leikar en hefur verið umdeildur í gegnum árin. Mynd: Víkingur

Albert Guð­munds­son er án nokk­urs vafa einn af hæfi­leik­a­rík­ustu knatt­spyrnu­mönnum Íslands á þess­ari öld. Þrátt fyrir aug­ljósa knatt­spyrnu­snilli hafa önnur mál í kringum Albert vakið mikla athygli hér­lendis og erlendis. Hann var meðal ann­ars ákærður fyrir nauðgun og hafa reynslu­miklir knatt­spyrnu­menn sett út á hug­ar­far hans.

Með fótbolta í blóðinu

Albert Guð­munds­son fædd­ist í Reykja­vík 15. júní árið 1997. For­eldrar Alberts eru Guð­mundur Bene­dikts­son og Krist­björg Inga­dóttir og eru þau bæði fyrr­ver­andi lands­liðs­menn í knatt­spyrnu. Þá er afi Alberts, hann Ingi Björg Alberts­son, einn besti sókn­ar­maður sem hefur spilað á Íslandi. Langafi Alberts er svo Albert Guð­munds­son en hann spil­aði meðal ann­ars fyrir stór­liðin Arsenal og AC Milan og varð síðar fjár­mála­ráð­herra Íslands.

Frábært gengi með félagsliðum

Snemma í yngri flokkum var ljóst að Albert væri hæfi­leik­a­ríkur knatt­spyrnu­maður en hann spil­aði með KR þar til hann gekk til liðs við hol­lenska liðið Heerenveen aðeins 16 ára gam­all. Hann hafði á undan því farið tvisvar sinnum í reynslu til enska stór­liðs­ins Arsenal, rétt eins og langafi hans.

Ungur Albert Guð­munds­son (til vinstri) hjá HeerenveenVar tal­inn gíf­ur­lega efni­legur.
„Hann getur lært heil­mikið hér. Ef hann hefur sömu hæfi­leika og hugsun og pabbi sinn þá á hann alla mögu­leika á að ná langt.“
Albert Finn­boga­son, þáver­andi leik­maður Heerenveen og Íslands.

Árið 2015 gekk hann svo til liðs við hol­lenska stór­liðið PSV. Albert varð fljótt einn af mik­il­væg­ustu leik­mönnum vara­liðs PSV en náði aldrei að festa sig í sessi í aðal­liði PSV. Árið 2018 skipti Albert svo í hol­lenska liðið AZ Alkmaar þar sem hann blómstr­aði og var snöggur að kom­ast í byrj­un­ar­liðið. 

En þó að Alberti hafi gengið vel með félags­liði sínu þá átti hann sína gagn­rýnendur. Ronald de Boer, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður Hollands, gagn­rýndi hann harð­lega eftir að Albert mætti í við­tal eftir leik með dem­ants eyrna­lokka. „Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því en hann var búinn að setja á sig tvo dem­ants eyrna­lokka. Hann fór inn í bún­ings­klefa til að setja á sig eyrna­lokka án þess að fara í sturtu,“ sagði De Boer sem var einnig ósáttur að Albert, sem hann hafði þá búið í Hollandi i tæpan ára­tug, hafi talað ensku í við­tal­inu.

„Hann talar ekki hol­lensku eftir sjö ár. Það segir sitt um hug­ar­farið í þessum strák. Ég hef það á til­finn­ing­unni að hann sé upp­tek­inn af öðrum hlutum. Ég fór sjálfur í við­tal á spænsku eftir fjóra mán­uði hjá Barcelona.“
Ronald de Boer, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður Hollands.
Albert í leik með AZ AlkmaarVar í miklu upp­á­haldi hjá stuðn­ings­mönnum félags­ins.

Albert var svona keyptur til ítalska liðs­ins Genoa, sem féll úr efstu deild stuttu síðar, í jan­úar 2022. Albert varð fljótt einn af bestu leik­mönnum liðs­ins og fór að vekja athygli stór­liða bæði á Ítalíu og Englandi. Lið á borð við Inter Milan, Totten­ham og Napoli íhug­uðu öll að kaupa Albert en það var svo Fior­ent­ina sem fékk hann á láns­samn­ingi sum­arið 2024. Liðið keypti svo Albert að lokum eftir miklar vanga­veltur en Everton á Englandi og Inter Milan á Ítalíu höfðu einnig áhuga á að kaupa hann þegar því tíma­bili lauk.

Albert færði sig aftur um set á Ítalíu í sept­em­ber 2026 og gekk til liðs við Lazio á láns­samn­ingi og skor­aði skalla­mark í fyrsta leik sínum.

„Sparileikmaður“ með landsliðinu

Góður árangur Alberts með félags­liðum og sýni­legir hæfi­leikar hans hafa þó ekki náð að skila sér í íslenska lands­liðið en flestir eru á því að Albert hafi aldrei náð að skína með því á sama hátt og hann hefur gert með félags­liðum þrátt fyrir að hafa fengið ótal tæki­færi en hann spil­aði sinn fyrsta leik árið 2017 og fór með Íslandi á HM í Rúss­landi árið 2018. Þá hefur hug­ar­far hans og metn­aður með lands­lið­inu verið gagn­rýnt og stundum verið kall­aður „spari­leik­maður“ af stuðn­ings­mönnum Íslands.

Albert komst svo heldur betur í frétt­irnar árið 2022 þegar hann var ekki val­inn í lands­liðið af Arnari Þór Við­ars­syni, þáver­andi lands­liðs­þjálf­ara.

„Ég var mjög óánægður og svekktur með hug­ar­far Alberts.”
Arnar Þór Við­ars­son, þáver­andi lands­liðs­þjálf­ari.

Albert var aldrei val­inn aftur í lands­liðið meðan Arnar var lands­liðs­þjálf­ari. Hann snéri aftur í hóp­inn þegar hinn norski Åge Hareide tók við starf­inu sem lands­liðs­þjálf­ari. Þá náði hann loks­ins að sýna hæfi­leika sína þegar Ísland náði næstum að tryggja sér sæti á EM í knatt­spyrnu en Albert skor­aði í fjögur mörk í leikjum gegn Úkraínu og Ísrael.

Ísland með Albert inn­an­borðsHefur spilað 41 lands­leik fyrir hönd Íslands.

Ákærður fyrir nauðgun

Einkalíf Alberts varð svo að einu heitasta umræðu­efni Íslands þegar hann var kærður fyrir nauðgun í ágúst 2023. Vegna reglna KSÍ mátti Albert ekki keppa fyrir hönd Íslands þar til mál­inu lauk. Það hafði þó ekki nein áhrif á stöðu hans hjá Genoa á Ítalíu en félagið stóð þétt við bak Alberts.

Málið var látið niður falla og nýtti KSÍ tæki­færi og valdi Albert í lands­liðs­hóp­inn sem mætti Ísrael og Úkraínu. Nið­ur­fell­ing­unni var hins vegar áfrýjað en KSÍ ákvað að halda Alberti í hópnum þrátt fyrir að slíkt væri brot á reglum sam­bands­ins. KSÍ bar fyrir sig óskýru orða­lagi í eigin reglum og sagði að Albert hafi ekki sætt rann­sókn á þeim tíma­punkti sem hann var val­inn í hóp­inn.

„Ég er sann­færður um að rétt­lætnu verði full­nægt, því ég er sak­laus.“
Albert Guð­munds­son

Eftir að mál­inu var áfrýjað var ákveðið að lands­liðs­mað­ur­inn yrði ákærður fyrir nauðgun. Hann var að lokum sýkn­aður í októ­ber 2024 en dóm­ar­inn mat fram­burð Alberts trú­verð­ugri en fram­burð kon­unnar. Þá er hún sögð hafa verið marg­saga í fram­burði sínum en Albert neit­aði ávallt sök í mál­inu.

Albert var á end­anum naum­lega sýkn­aður í Lands­rétti en einn af þremur dóm­urum vildi dæma Albert í fang­elsi.

Stuttu eftir að Albert var ákærður greindu fjöl­miðlar frá því að þau Guðlaug Elísa Jóhanns­dóttir, barns­móðir hans, væru hætt saman.

Albert og Guðlaug saman á góðri stunduHættu saman eftir að Albert var ákærður.

Uppfært 8. sept­em­ber 2026

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega