Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Mér þykir leiðinlegt að fundarstjórn mín sé túlkuð sem tilraun til valdaráns“

Uppnám varð á Alþingi er Hild­ur Sverr­is­dóttir sleit þing­fundi í gær og hef­ur ákvörðun henn­ar valdið gremju á meðal þing­manna meiri­hlut­ans og mennta- og barna­mála­ráð­herra sak­aði hana um vald­arán

„Mér þykir leiðinlegt að fundarstjórn mín sé túlkuð sem tilraun til valdaráns“
Hildur Sverr­is­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins Baðst vel­virð­ingar á því upp­þoti sem fund­ar­stjórn hennar olli Mynd: Golli

Þingkona Sjalfstæð­is­flokks­ins, Hildur Sverr­is­dóttir, sendir frá sér afsök­un­ar­beiðni vegna þing­starfa sinna.

Uppnám varð á Alþingi er Hild­ur sleit þing­fundi í gær, laust fyr­ir mið­nætti. Hef­ur ákvörðun henn­ar valdið mik­illi gremju á meðal þing­manna meiri­hlut­ans og Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son mennta- og barna­mála­ráð­herra sak­aði hana um vald­arán.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son.

Hún seg­ist vera afar leið yfir hvernig hlut­irnir atvik­uð­ust og þá ekki síður yfir því að ein­hver eða ein­hverjir töldu störf hennar vera eins­konar valda­ránstil­raun:

„Mér þykir inni­lega leið­in­legt að fund­ar­stjórn mín sem vara­for­seti í gær­kvöldi sé túlkuð sem til­raun til valda­ráns eða hvað það er sem ég heyri víða þennan morg­un­inn“ segir Hildur og bætir því við að þetta hafi ekki verið valda­ránstil­raun og „var það að sjàlf­sögðu alls ekki ætlun mín.“

Hildur beinir orðum sínum til þeirra sem eru áhuga­samir „um þetta fyr­ir­komu­lag þá eru langir þing­fundir almennt til mið­nættis“ og að vara­for­seti eigi að gefa „ræðu­manni orðið heldur slíta fundi þegar fullur ræðu­tími hans með andsvörum myndi ekki nást fyrir þann tíma.“

Hildur færir einnig í tal að „for­sætis­nefnd hefur ekki verið kölluð saman í vik­unni og for­seti hefur ekki haft sam­ráð við vara­for­seta um lengd þing­funda“ og bendir á að hvorki „for­seti né nokkur annar hafði tjáð mér í gær að til stæði að halda fund lengur en til mið­nættis“ og því taldi Hildur sig vera að „fylgja réttu fyr­ir­komu­lagi með því að slíta fundi í stað þess að gefa ræðu­manni orðið sem hefði verið lengra en til mið­nættis.“

Hún taldi sig „sumsé að vera að fylgja venjum þar sem næt­ur­fundir eru algjör und­an­tekn­ing“ og segir Hildur að hún hafi ekki haft „neinar upp­lýs­ingar eða fyr­ir­mæli for­seta um annað. En ég hefði eftir á að hyggja að spyrj­ast fyrir í ljósi aðstæðna og þykir leitt að hafa ollið öllu þessu upp­námi.“

Bergþór Ólason.

Hildur færir í tal að „Bergþór Ólason ku hafa rétt mér blað með fyr­ir­mælum þessa efnis“ og til að útskýra það segir Hildur að á blað­inu hafi verið „dag­skrár­til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar um óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir svo stjórn­ar­and­staðan geti sinnt eft­ir­lits­hlut­verki sínu.“

Hún segir svo þetta að lokum:

„Ég ótrú­legt en satt tek ekki við fyr­ir­mælum frá Bergþóri Ólasyni, eins ágætur og hann er, heldur tek mínar ákvarð­anir sjálf - sem eru svo mis­far­sælar eins og gengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum