Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorgerður Katrín fékk það óþvegið á Instagram

„Samt slítið þið ekki stjón­ar­sam­bandi við þjóð­ar­morð­ingja?“

Þorgerður Katrín fékk það óþvegið á Instagram
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Færsla utan­rík­is­ráð­herra féll í grýttan jarð­veg Mynd: Víkingur

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Íslands fékk heldur óblíðar mót­tökur við Instagram-færslu þar sem hún fer yfir stöð­una á Gaza og nú sé komið að aðgerðum.

Í athuga­semdum við færsl­una fær Þor­gerður Katrín að heyra það frá stuðn­ings­mönnum Palest­ínu, sem finnst Ísland einmitt hafa alls ekki gert nóg til að þrýsta á Ísra­els­ríki vegna þess þjóð­ar­morðs sem ríkið hefur verið að fremja á palest­ínsku þjóð­inni í meira en tvö ár. Færsla utan­rík­is­ráð­herr­ans hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Dag eftir dag ber­ast fréttir frá Gaza sem eru svo hrylli­legar að það er ólíð­andi. Tug­þús­undir látin, þar af yfir 17 þús­und börn - og yfir 30 þús­und til við­bótar særð. Saklaust fólk hefur verið svipt öryggi sínu og fram­tíð. Hungri er beitt sem vopni. Þetta er óásætt­an­legt. Eins og ég hef sagt eru þetta í mínum huga þjóð­ern­is­hreins­anir – og nú þarf alvöru aðgerðir.“

Þor­gerður Katrín segir Ísland ekki hafa setið hjá, heldur „talað skýrt á alþjóða­vett­vangi“ og kallað eftir vopna­hléi og mann­úð­ar­að­stoð

„Ísland hefur ekki setið hjá. Við höfum talað skýrt á alþjóða­vett­vangi, m.a. í mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna og kallað ítrekað eftir vopna­hléi og mann­úð­ar­að­stoð. Við höfum kraf­ist þess að Ísrael axli ábyrgð á brotum sínum, m.a. með sjálf­stæðri grein­ar­gerð Íslands til Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag. Við höfum aukið fram­lag til Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna og sótt fólk til Gaza og bjargað úr bráðri neyð, á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­inga. Við höfum átt frum­kvæði að og tekið þátt í fjölda yfir­lýs­inga um mann­úð­ar­að­stoð og vopna­hlé - en við vitum líka að þó yfir­lýs­ingar séu mik­il­vægar eru aðgerðir nauð­syn­legar.“

Þá seg­ist hún vera á leið til New York til að taka þátt í ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna um tveggja ríkja lausn­ina. Segist hún binda vonir um að alvöru skref verði tekin á ráð­stefn­unni.

„Þessu verður að linna. Annað er hrein­lega ekki í boði,“ segir Þor­gerður Katrín að lokum.

Óblíðar mót­tökur

Utan­rík­is­ráð­herra bjóst sjálf­sagt við jákvæð­ari við­brögð en raun bar vitni en fjöl­margir ein­stak­lingar skrif­uðu athuga­semdir við færsl­una og létu hana heyra það.

Einn þeirra er Pétur Eggerz sem hefur verið afar gagn­rýn­inn á við­brögð yfir­valda við þjóð­ar­morð Ísraela. Pétur skrif­aði:

„“Ísland hefur ekki setið hjá” :

Enginn stuðn­ingur við kæru Suður-Afríku fyrir Alþjóða­dóm­stólnum.

Engar við­skipta­þving­anir, þrátt fyrir sam­ræmdar aðgerðir nágranna­þjóða, sem Ísland tók ekki þátt í.

Engin stjórn­mála­sam­bands­slit.

Brott­vís­anir palest­ínsks fólks á flótta halda áfram.

Engin áköll frá Íslandi um sam­ræmdar refsi­að­gerðir eða hern­að­ar­leg inn­grip gegn Ísrael.“

Guðný Nielsen tekur í sama streng og Pétur:

„Þið talið eins og það sé bara ann­arra að fram­kvæma aðgerðir. Þið hafið ekk­ert frítt spil.
Viðreisn er með utan­rík­is­ráðu­neytið á tímum þjóð­ar­morðs og það eina sem þið bjóðið upp á eru orð. Orð sem þið vitið full­vel að eru gagns­laus.
Þjóð­ar­morð hefur aldrei verið stöðvað með orðum.
Verið litla þúfan sem veltir þungu hlassi.
Það er ykkar að fram­kvæma aðgerðir. Þið hafið úr mörgu að velja.“

Þá hneyksl­ast ein­hver sem kallar sig mswittywitch á því að Ursulu von der Leyen hafi verið boðið í heim­sókn til Íslands en hún hefur verið ein­arður stuðn­ings­maður Ísraels.

„En samt var Ursulu Von Der Leyen boðið í heim­sókn? Konan sem hefur staðið hvað mest með Ísrael? Konan sem hefur með beinum hætti staðið í veg fyrir að Evr­ópu­sam­bandið bjargi Palest­ínsku þjóð­inni?

Samt slítið þið ekki stjón­ar­sam­bandi við þjóð­ar­morð­ingja?

Samt skrifið þið ekki undir kæru Suður-Afríku?

Samt haldið þið áfram að henda fólki, sem er að flýja þessa þjóð­ern­is­hreinsun úr landi?

Samt talar eng­inn um þetta í fjöl­miðlum fyrr en núna?

Samt hafið þið ekki sagt hreint og beint út að við sem þjóð stöndum GEGN ÞJÓÐARMORÐI?

Af hverju eigum við að trúa því að þið hysjið upp um ykkur bræk­urnar núna? Næstum 2 árum eftir að þjóð­ern­is­hreins­unin og þjóð­ar­morðið hefur staðið og nú farið síversn­andi með hverjum deg­inum sem líður síð­ustu 76 ár?“

Óli Halldórs seg­ist vona að Þor­gerður Katrín standi við orð sín þar sem Ísland hefi brotið alþjóða­lög með því að bregð­ast ekki við þjóð­ar­morði.

„Ég vona að þú standir við þessi orð þín. Íslenska ríkið hefur verið að brjóta alþjóða­lög í allt of marga mán­uði með því að bregð­ast ekki við þjóð­ar­morð­inu og því verður þú að grípa til aðgerða, hvort sem þú færð fleiri ríki með eða ekki.“

Að lokum segir Silli Knudsen að íslensk yfir­völd hafi haft heila 21 mán­uði til að bregð­ast við þjóð­ar­morð­inu en ekki gert neitt nema „notað orðin tóm.“

„Í 21 mán­uði hafið þið haft tæki­færi til að bregð­ast við af fullum þunga með *við­skipta­þving­unum *stjórn­ar­slitum við Ísrael *með þát­töku Suður-Afríku í dóms­máli gegn Ísrael hjá Alþjóða Dóm­stólnum *þát­töku nágranna­ríkja okkar í beinum aðgerðum gegn Ísrael. En ekk­ert af þessu hafið þið gert nema notað orðin tóm. Orð eru ekki nóg í þjóð­ern­is­hreins­unum. Það þarf valda­miklar aðgerðir ef við eigum ekki að láta sög­una end­ur­taka sig. For­dæm­ing stóð ekki gegn útrým­ingu gyð­inga síns tíma og gengur heldur ekki gegn útrým­ingu Palest­ínu­búa okkar tíma. Látið ekki sög­una dæma ykkur fyrir aðgerða­leysi ykkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum