Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Prettyboitjokkó opnar sig um áföllin

„Maður vill ekki að fólk gleymi and­lit­inu á honum“

Prettyboitjokkó opnar sig um áföllin
Patrik Snær Atlason Patrik opnar sig í nýju við­tali Mynd: Instagram-skjáskot

Tón­list­ar­mað­ur­inn Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem prett­yboitjokkó, hefur gengið í gegnum mikla lífs­reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Í við­tali við RÚV rifjar hann upp tvö áföll sem höfðu djúp­stæð áhrif á hann og fjöl­skyld­una, morð á móð­ur­bróður hans og frá­fall ömmu hans skömmu síðar.

Árið 2010 skók það alla þjóð­ina þegar móð­ur­bróðir hans, Hannes Þór Helgason, var myrtur á heim­ili sínu. Að sögn Patrik hafði morðið gríð­ar­leg áhrif á fjöl­skyld­una. „ Hannes var ákveðið lím í fjöl­skyld­unni. Hann var slakur og skemmti­legi frænd­inn og gaman af líf­inu.“

Áfallinu fylgdi annað stuttu síðar. „Svo missi ég ömmu ári síðar úr krabba­meini. Hún hafði verið með brjóstakrabba­mein og lækn­ast af því en þetta áfall spækaði það upp.“ Bætir hann við að þessi áföll hafi gert fjöl­skyld­una nán­ari.

„Maður vill ekki að fólk gleymi andlitinu á honum“

Morð­málið vakti mikla athygli á sínum tíma og Patrik seg­ist í raun þakk­látur fyrir að fjöl­miðlar fjöll­uðu ítar­lega um það. „Maður vill ekki að fólk gleymi and­lit­inu á Gunnari sem myrti Hannes. Okkur finnst gott að fólk viti nákvæm­lega hver hann er og þekki hann,“ segir hann og bætir við: „Við búum í litlu sam­fé­lagi og þegar þau sjá hann í búð og hann er labbandi með kerruna, bara að vita þetta er gæinn sem myrti Hannes.“

Hann rifjar upp óvæntan fund við bana­mann frænda síns í Bónus. „Maður fékk ákveðið sjokk og mín við­brögð voru að taka upp sím­ann og blasta því á inter­netið að hann gengi laus, í Bónus úti á Granda að versla í mat­inn. Hvað þetta kerfi er gallað. Það er eng­inn dómur hér heima sem þú færð fyrir að myrða mann. Ég vildi minna fólk á að þessi gæi myrti frænda minn og er að versla í búð­inni eins og ekk­ert sé. Þetta fjöl­miðla­fár er bara jákvætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur