Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir Helga Seljan hafa rassskellt Guðlaug Þór

„Sjaldan hefur stjórn­mála­maður verið ham­flettur jafn ræki­lega og Guð­laugur Þór í við­tali við morg­un­út­varp Rásar 2.“

Segir Helga Seljan hafa rassskellt Guðlaug Þór
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Guð­laugur Þór mætti í við­tal á Rás 2 í morgun. Mynd: Víkingur

Össur Skarp­héð­ins­son segir Helga Seljan hafa rass­skellt Guðlaug Þór Þórð­ar­son í beinni útsend­ingu á Rás 2 í morgun.

Össur, sem er ann­ál­aður Evr­ópu­sam­bands­sinni, segir Guðlaug Þór, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hafa farið afar illa út úr við­tali í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun þar sem Helgi Seljan spurði hann meðal ann­ars út í Evr­ópu­sam­bands­að­ild­ar­um­sókn­ina sem sett var í skúffu á sínum tíma.

„Guð­laugur Þór rass­skelltur í beinni
Sjaldan hefur stjórn­mála­maður verið ham­flettur jafn ræki­lega og Guð­laugur Þór í við­tali við morg­un­út­varp Rásar 2 vegna ítrek­aðra stað­hæf­inga hans um að umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hafi verið aft­ur­kölluð af rík­is­stjórnum, sem hann átti sæti í.“ Þannig hefst færsla Össurar sem hann birti á Facebook fyrr í dag en hún hefur vakið þónokkra athygli en yfir 120 manns hefur líkað við hana þegar frétt þessi er skrifuð.

Og Össur heldur áfram:

„Guð­laugur Þór hefur sömu­leiðis stað­hæft að það hafi komið sér á óvart í heim­sókn Úrsúlu von Leyen fyrir skömmu að Evr­ópu­sam­bandið líti svo á að umsóknin hafi aldrei verið kölluð aftur. Hann hefur gengið svo langt að segja að þess­ari afstöðu ESB hafi verið haldið leyndri fyrir sér og Íslend­ingum.“

Segir hann að Guð­laugur Þór hafi soðið upp nýlega sam­sær­is­kenn­ingu um heim­sókn Ursulu til Íslands á dög­unum.

„Út úr þessu sauð hann nýlega þá sam­sær­is­kenn­ingu að heim­sókn Úrsúlu hafi verið úthugsað plott af hálfu hennar, Kristrúnar Frosta­dóttur og Þor­gerðar Katrínar til að skapa far­veg fyrir hrað­ferð Íslands í ESB í krafti þess að umsóknin frá 2009 sé form­lega í gildi. Í öllum þessum efnum talar Guð­laugur Þór gegn betri vit­und.“

Össur, sem er þekktur fyrir að hafa munn­inn fyrir neðan nefið, segir að mál­flutn­ingur Guðlaugs Þórs hafi verið „skrældur í tætlur eins og hýði“ í við­tal­inu:

„Það kom skýrt í ljós Í við­tal­inu í morgun þar sem mál­flutn­ingur hans var bók­staf­lega skrældur í tætlur einsog hýði af gam­alli kart­öflu og ráð­herr­ann rass­skelltur með nið­ur­stöðum skýrslu sem hann lét sjálfur skrifa árið 2018.
Meg­in­nið­ur­staða skýrsl­unnar er í stuttu máli að umsókn Íslands um aðild að ESB hafi aldrei verið aft­ur­kölluð. Um þetta er kom­ist fast að orði en einn kafl­inn heitir bein­línis: „Aðild­ar­við­ræð­unum var ekki form­lega slitið.“ Þarmeð er það í gadda slegið og þarf ekki frek­ari umræðu.“

Segir Össur að í skýrsl­unni komi fram að ESB hafi komið því skýrt og greini­lega á fram­færi að aðeins hafi verið gert hlé á umsókn að sam­band­inu.

„Skýrslan segir líka að ESB hafi ræki­lega komið því á fram­færi í svari við hinu fræga kjána­bréfi Gunnars Braga að í því fælist ekki form­leg aft­ur­köllun, enda talað þar um „hlé“ en hvorki aft­ur­köllun né stöðvun umsóknar. Þessum nið­ur­stöðum reynds sendi­herra, sem feng­inn var til að skrifa skýrsl­una, stakk ráð­herr­ann undir stól og lét engan vita. Skýrslan stað­festir hins vegar að skiln­ingur ESB lá fyrir frá upp­hafi kjána­bréfs­ins.“

Össur var þvert á móti hættur að pönk­ast á Guðlaugi Þór, sem hann segir hafa minni á við fíl en beri nú við minnis­leysi.

„Varnir ráð­herr­ans í morg­un­út­varp­inu gegn upp­lýs­ingum úr hans eigin skýrslu voru í senn dæma­lausar og sér­lega ótrú­verð­ugar. Guð­laugur Þór, sem þekktur er fyrir minni fíls­ins, bar nú við minnis­leysi og sagð­ist ekk­ert muna eftir skýrsl­unni, og alls ekki eftir for­mál­anum þar sem hann stað­festi þó skýrsl­una með form­legri und­ir­skrift sinni. Orð hans var ekki hægt að skilja öðru vísi en svo að vammi firrtir for­ystu­menn ráðu­neyt­is­ins hefðu tekið und­ir­skrift hans ófrjálsri hendi – og í reynd skellt henni undir án þess að spyrja hann!
Kommon, Guð­laugur Þór hefur aldrei verið tusku­dúkka emb­ætt­is­manna einsog sumir ráð­herrar heldur einn af umsvifa­mestu stjórn­mála­mönnum um langa hríð. Er það trú­verð­ugt að hann hafi verið slík létta­vigt í sínu eigin ráðu­neyti að emb­ætt­is­menn þar hafi valsað um með und­ir­skrift hans, og sett án leyfis undir loka­drög texta sem birta átti í hans eigin nafni? Þetta stenst ein­fald­lega ekki skoðun.“

Hér fyrir neðan má sjá færsl­una í heild sinni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum