Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Logi Ein­ars­son menn­ingar,- nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra Ávarpaði gesti og færði þjóð­leik­hús­stjóra vilja­yf­ir­lýs­ingu í til­efni stóraf­mæl­is­ins Mynd: Samfylkingin.

„Erum hreinlega í skýjunum eftir þessar frábæru fréttir“

Samþykkt var að reisa nýtt sýn­inga- og æfinga­rými við Þjóð­leik­húsið og segir leik­hús­stjóri alla í leik­hús­inu vera í skýj­unum yfir kom­andi fram­kvæmdum

Menn­ing­arnótt var sett með form­legum hætti á þrepum Þjóð­leik­húss­ins í gær en leik­húsið fagnar 75 ára afmæli í ár.

Logi Ein­ars­son menn­ingar,- nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra ávarp­aði gesti og færði þjóð­leik­hús­stjóra Magnúsi Geiri Þórð­ar­syni vilja­yf­ir­lýs­ingu í til­efni stóraf­mæl­is­ins.

Yfir­lýs­ingin kunn­gerir vilja rík­is­stjórn­ar­innar til þess að ráð­ast í gerð við­bygg­ingar við Þjóð­leik­húsið sem mun styrkja starf­semi þess svo um munar og leysa úr fjöl­mörgum, ára­tuga­gömlum úrlausn­ar­efnum með full­nægj­andi hætti.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni að rík­is­stjórnin skuli vera ein­huga um þessa skyn­sam­legu og löngu tíma­bæru fjár­fest­ingu. Með þess­ari ákvörðun er Þjóð­leik­hús­inu gef­inn kostur á að vaxa og dafna, auka sér­tekjur sínar og gera rekst­ur­inn hag­kvæm­ari. Þetta er við­eig­andi gjöf til þjóð­ar­innar á þessu tíma­móta­ári lyk­il­stofn­unar í íslensku menn­ing­ar­lífi,“ sagði Logi Ein­ars­son menn­ingar,- nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra.

Frá opnun Þjóð­leik­húss­ins árið 1950 hefur íbúa­fjöldi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þre­fald­ast en á sama tíma hefur aðstaða leik­húss­ins lítið breyst.

Í hart­nær 40 ár hefur verið kallað eftir því að ráð­ist verði í bygg­ingu ein­faldrar og hag­kvæmrar bygg­ingar á nær­liggj­andi lóð sem gæti hýst annað leik­svið, svo­kall­aðan „svartan kassa,” sem er sveigj­an­legra en hefð­bundið leik­svið.

Gert er ráð fyrir að umrædd bygg­ing geti tekið á móti um 250-320 áhorf­endum á hverja sýn­ingu með til­heyr­andi tekjum fyrir Þjóð­leik­húsið.

Skortur á slíku rými hefur verið fyr­ir­ferð­ar­mik­ill flösku­háls í starf­semi Þjóð­leik­húss­ins sem hefur ekki getað nýtt til fulls inn­viði sína án slíkrar aðstöðu.

Með við­bygg­ing­unni er þó ekki aðeins þessi vandi úr sög­unni. Þjóð­leik­húsið hefur jafn­framt skort æfinga­að­stöðu, sem hefur haft fag­legan og fjár­hags­legan vanda í för með sér.

Við­bygg­ingin mun hýsa æfinga­að­stöðu sem og verð­mætt bún­inga- og leik­muna­safni leik­húss­ins sem liggur að óbreyttu undir skemmdum í núver­andi hús­næði.

Þá munu aðgeng­is­mál Þjóð­leik­húss­ins taka stakka­skiptum með til­komu nýja húss­ins, en þau hafa lengi þarfn­ast úrbóta.

Með við­bygg­ingu á nær­liggj­andi lóð eru því leyst þó nokkur aðkallandi mál í einu og starf­semi Þjóð­leik­húss­ins sam­einuð á einn stað.

Frum­grein­ing, sem ráðu­neytið lét gera, gerir ráð fyrir að fjár­fest­ingin muni nema um tveimur millj­örðum króna og að bygg­ingin verði um 2-3000 fer­metrar að stærð.

Næstu skref eru að fela Fram­kvæmda­sýsl­unni - Rík­is­eignir verk­efnið og óska form­lega eftir að hafin verði und­ir­bún­ings­vinna og áætl­ana­gerð á vegum stofn­un­ar­innar. Að þeirri vinnu lok­inni taka við verk­legar fram­kvæmdir með það að mark­miði að við­bygg­ingin verði tekin í notkun árið 2030, á 80 ára afmæli Þjóð­leik­húss­ins.

Magnús Geir Þórð­ar­son.

„Við hér í Þjóð­leik­hús­inu erum hrein­lega í skýj­unum með þær frá­bæru fréttir að lang­þráður draumur um nýtt leik­svið og aðrar úrbætur í hús­næð­is­málum Þjóð­leik­húss­ins verði að veru­leika. Samþykkt að reisa nýtt sýn­inga- og æfinga­rými við Þjóð­leik­húsið , því að þetta er í fyrsta sinn frá því að leik­húsið var vígt sem nýtt leik­svið er byggt. Sér­hannað leik­hús býður upp á ein­stak­lega spenn­andi ný og fjöl­breytt tæki­færi til að skapa nútíma­legar og heill­andi sýn­ingar. Bygg­ingin mun gera okkur enn betur kleift að sinna okkar hlut­verki og skapa ríku­legri verð­mæti fyrir lands­menn alla. Við þökkum ráð­herra og rík­is­stjórn­inni inni­lega fyrir stuðn­ing­inn við Þjóð­leik­húsið og leik­hús­lífið í land­inu,“ sagði Magnús Geir Þórð­ar­son, þjóð­leik­hús­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina