Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Verjendur Stefáns og Lúkasar krefjast sýknu í Þorlákshafnarmálinu

„Af hverju klár­uðu menn ekki mann­drápið og földu líkið?

Verjendur Stefáns og Lúkasar krefjast sýknu í Þorlákshafnarmálinu
Stefán Blackburn Verjandi Stefáns krefst sýknu af mann­drápi Mynd: Víkingur

Í aðal­með­ferð Þor­láks­hafn­ar­máls­ins, þar sem Hjör­leifur Haukur Guð­munds­son lést eftir að hafa verið num­inn á brott af heim­ili sínu 10. mars, hafa verj­endur tveggja sak­born­inga kraf­ist sýknu af ákæru um mann­dráp. Réttað er yfir þeim Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingv­ars­syni, ásamt hinum þriðja, Matth­í­asi Birni Erlings­syni, sem einnig er ákærður í mál­inu.

Verjandi Stefáns, Páll Krist­jáns­son, lagði áherslu á að umbjóð­andi hans hefði geng­ist við grófu ofbeld­is­broti en væri sak­laus af mann­drápi. Hann sagði að ætlun Stefáns hefði fyrst og fremst verið að afla fjár með „giggi“ og hefði talið Hjörleif vera barn­a­níð­ing, þó engan veg­inn væri ætl­unin að ráða honum bana. Páll benti á ýmsa van­kanta í rann­sókn lög­reglu, þar á meðal á fingrafara­at­hugun, sem og rann­sókn á hvort og hvaða áhöldum hefði verið beitt í árásinni og hvernig þau pössuðu við áverka. Hann sagði að rann­sóknin væri „reist á sandi“ og að rann­sókn­ar­að­ferðir hefðu ekki skilað full­nægj­andi nið­ur­stöðum.

Páll lýsti per­sónu­legum högum Stefáns, hann hafi verið edrú í átta ár, fjöl­skyldu­maður í fastri vinnu og án tengsla við brota­þola. Hann sagði umbjóð­anda sinn og Lúkas trú­verð­uga, en að fram­burður Matth­í­asar væri hins­vear óáreið­an­legur.

„Hafi átt að valda bana - afhverju var þá vopnum ekki beitt? Hvaða til­gangi þjón­aði það að taka nið­ur­lægj­andi mynd­band af Hjör­leifi? Það er vegna þess að til­gang­ur­inn var að fá hjá honum fé, ekk­ert annað.“ Páll hélt áfram að svara eigin spurn­ingum

„Af hverju klár­uðu menn ekki mann­drápið og földu líkið? Af hverju skildu þeir það eftir? Af hverju hringdu þeir ekki á bráðalið eða lög­reglu? Það er vegna þess að þeir töldu hann ekki í lífs­hættu.“

Tekur í sama streng

Verjandi Lúkasar, Stefán Karl Krist­jáns­son, tók í sama streng og sagði að áverk­arnir sem Lúkas er tal­inn hafa valdið hefðu ekki leitt til and­láts Hjör­leifs. Hann sagði að til­gangur Lúkasar hefði fyrst og fremst verið fjár­öflun með kúg­unum, meðal ann­ars með því að plata Hjörleif með því að þykj­ast vera stúlka á Snapchat. Stefán Karl benti á að þau hefðu yfir­gefið Hjörleif á fjöl­förnum stað innan borg­ar­innar, ekki úti í óbyggðum, sem benti til þess að þau ætl­uðu honum ekki bana. Hann sagði einnig að bráðaliðar hefðu ekki verið látnir gefa skýrslu, og að lækn­is­með­ferð á spít­ala hefði mögu­lega haft áhrif á áverk­ana sem leiddu til dauða Hjör­leifs.

Bæði Páll Krist­jáns­son og Stefán Karl kröfð­ust væg­ustu mögu­legu refs­ingar fyrir skjól­stæð­inga sína í öðrum ákæru­liðum, sem varða frels­is­svipt­ingu, fjár­kúgun og rán. Þeir báðu einnig um lækkun einka­rétt­ar­krafna sem ekkja og sonur Hjör­leifs gera á hendur sak­born­ing­unum.

Stefán Karl lagði áherslu á að Lúkas hafi aðeins notað „and­leg kverk­stök“ til að ná fjár­munum, ekki til að valda dauða.

Aðal­með­ferð máls­ins lauk að hluta í dag og verj­endur ætla að flytja mál sitt áður en dóm­ari kveður upp úrskurð um refs­ingar og sýknu.

RÚV fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag