Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hæstiréttur Ísraels úrskurðar: Palestínskum föngum vísvitandi haldið í svelti

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herra lands­ins er æfur vegna dóms­ins

Hæstiréttur Ísraels úrskurðar: Palestínskum föngum vísvitandi haldið í svelti
Itamar Ben-Gvir Ráð­herr­ann heilsar stuðn­ings­mönnum sínum Mynd: AHMAD GHARABLI / AFP

Hæsti­réttur Ísraels hefur í sjald­gæfum úrskurði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völd í land­inu hafi vís­vit­andi neitað þús­undum palest­ínskra fanga um lág­marks­fæði til að lifa af í skugga þjóð­ar­morðs­stríðs­ins gegn Gaza.

Þriggja dóm­ara nefnd rétt­ar­ins, sem hingað til hefur lítið gripið inn í ákvarð­anir rík­is­stjórnar og hers­ins á þeim 23 mán­uðum sem stríðið á Gaza hefur staðið yfir, tók málið fyrir að beiðni tveggja mann­rétt­inda­sam­taka í Ísrael.

Rétt­ur­inn úrskurð­aði ein­róma á sunnu­dag að stjórn­völd bæru laga­lega skyldu til að tryggja palest­ínskum föngum þrjár mál­tíðir á dag til að full­nægja „grund­vall­ar­skil­yrðum til­veru“ og skip­aði yfir­völdum að upp­fylla þá skyldu.

Tveir á móti einum dóm­ar­anna féllust jafn­framt á kæru sam­tak­anna Association for Civil Rights in Israel (ACRI) og Gisha. Var þar tekið undir ásak­anir um að mark­viss skortur á mat í fang­elsum Ísraels hefði valdið vannær­ingu og sulti meðal palest­ínskra fanga.

Á sama tíma glíma Palest­ínu­menn á Gaza við hung­ursneyð af manna­völdum, þar sem fólk deyr dag­lega úr vannær­ingu.

„Við erum ekki að tala um þæg­indi eða munað, heldur um grunn­skil­yrði til að lifa af eins og lögin kveða á um,“ sagði í dóms­orði. „Við skulum ekki feta í fót­spor versta óvinar okkar.“

Ísra­elski her­inn hefur hand­tekið þús­undir Palest­ínu­manna frá Gaza og hernumda Vest­ur­bakk­anum frá upp­hafi nær tveggja ára stríðs­ins og stór­lega aukið handa­hófs­kenndar hand­tökur á þeim sem grun­aðir eru um „hryðju­verk“.

Fjöldi fanga sem sleppt hefur verið hefur lýst hrika­legum aðstæðum í ísra­elskum fanga­búðum, þar sem þeir urðu fyrir pynd­ingum, ofbeldi, hungri, skorti á heil­brigð­is­þjón­ustu, ofþrengslum og sjúk­dómum.

ACRI, sem ásamt Gisha lagði fram kæruna, greindi frá því að starfs­fólk sitt hefði orðið fyrir „árásum, munn­legu ofbeldi og hót­unum“ frá ráð­herrum og þing­mönnum íhalds­afla í Ísrael á meðan á með­ferð máls­ins stóð í Hæsta­rétti.

„Upp­hlaupin fóru að minna sífellt minna á vald­beit­ingu og meira á örvænt­ingu,“ sagði í yfir­lýs­ingu í lok júlí þegar rétt­ar­höldin hófust.

Einn helsti málsvari rík­is­stjórn­ar­innar í mál­inu var Itamar Ben-Gvir, þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herra úr flokki Benjamin Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra. Hann leiðir öfga­hægri, trú­ar­legan flokk og fer með yfir­stjórn lög­reglu og ann­arra vopn­aðra sveita.

Ben-Gvir réð­ist á Hæsta­rétt eftir úrskurð­inn og sak­aði dóm­ar­ana um að vinna gegn eigin landi.

„Gísl­arnir okkar á Gaza hafa engan Hæsta­rétt sem ver þá,“ skrif­aði hann á X og hélt því fram að Palest­ínu­menn hefðu nú dóm­stól sér til verndar, sem væri rangt.

„Við munum áfram sjá föng­unum sem sitja inni fyrir hryðju­verk fyrir lág­marks­þjón­ustu sem lög gera ráð fyrir,“ bætti hann við.

Í síð­asta mán­uði heim­sótti Ben-Gvir fanga­klefa Marwan Barghouti, leið­toga Fatah, sem hefur setið lengi í fang­elsi, og lét taka upp mynd­band þar sem hann stríddi honum opin­ber­lega. Atvikið vakti harða for­dæm­ingu frá Palest­ínu­mönnum og mann­rétt­inda­sam­tökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco