Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dagur B. Egg­erts­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Spáir í fjár­lögin með sínum hætti Mynd: Víkingur

„Því er ekki að leyna að það er töluvert aðhald í frumvarpinu“

Dagur B. Egg­erts­son segir að „fjár­lög eru eitt stærsta laga­frum­varp sem lagt er fyrir Alþingi á hverju ári. Í því er ákveðið í hvað pen­ingar úr sam­eig­in­legum sjóðum eiga að fara, til dæmis heil­brigð­is­mál, mennta­mál og allt annað“

Fyrrum borg­ar­stjóri, núver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, Dagur B. Egg­erts­son, segir að „fjár­lög eru eitt stærsta laga­frum­varp sem lagt er fyrir Alþingi á hverju ári. Í því er ákveðið í hvað pen­ingar úr sam­eig­in­legum sjóðum eiga að fara, til dæmis heil­brigð­is­mál, mennta­mál og allt annað.“

Bætir þessu við:

„Í tengdum frum­vörpum eru heim­ildir til að inn­heimta skatta og gjöld til að eiga fyrir þessu öllu saman. Und­an­farin ár hafa útgjöldin verið mun hærri en tekj­urnar. Það hefur búið til gat, sem taka þarf lán fyrir, og við köllum þetta gat fjár­laga­halla. Halli hefur verið á fjár­lögum á hverju ári síðan árið 2019.“

Dagur B. segir að mörg hund­ruð millj­arðar hafi verið teknir að láni til að fjár­magna það og það þurfi ein­fald­lega að end­ur­greiða:

„Hallinn í til­lögu fjár­mála­ráð­herra að fjár­lögum fyrir næsta ár er 15 millj­arðar, sem er langtum minna en á und­an­förnum árum“ segir Dagur B. og segir einnig að í fyrra hafi verið áætlað að hall­inn yrði 62 millj­arðar og gert var ráð fyrir því að hann yrði 39 millj­arðar 2026 af fyrri rík­is­stjórn.“

Hann færir einnig í tal að skuldir rík­is­sjóðs lækki úr 59,3% af lands­fram­leiðslu í fyrra í 50,9% á því næsta og vill meina að þessi þróun sé góð og að nú sé stefnt að því að skila fjár­lögum án halla næsta haust, fyrir árið 2027:

„Þetta er mik­il­vægt því nið­ur­staða rík­is­sjóðs hefur áhrif á hvort vextir og verð­bólga hald­ist há. Flestir vita að vextir hafa verið að lækka en þyrftu að lækka meira.“

Hann tekur dæmi:

„Sú lækkun vaxta sem hefur orðið frá síð­asta hausti er um 1,5% og þýðir að með­al­heim­ili með með­al­skuldir þarf að borga um 520 þús­und krónum minna í vexti á ári. Rík­is­stjórnin og ráð­herrar hennar hafa kynnt margt sem meiri fjár­munir fara í sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Framlög eru til fjölg­unar lög­reglu­manna, og til auk­innar með­ferðar við fíkn, geð­heil­brigði og heil­brigð­is­þjón­usta um landið er hluti af því. Öryrkjar fá kjara­bætur. Það er verið að auka fjár­magn í við­hald á vega­kerf­inu og aðrar fjár­fest­ingar og þannig mætti áfram telja.“

Dagur B.telur þetta vera mik­il­vægt vegna þess að fjár­fest­ingar hafi að hans mati verið of litlar:

„Fjár­fest­ingar verða 114 millj­arðar á næsta ári en voru 95 millj­arðar sam­kvæmt frum­varpi fyrir 2025. Þótt þessar við­bætur séu oft taldar upp þá er því ekki að leyna að það er tölu­vert aðhald í frum­varp­inu. Hver ráð­herra fyrir sig leggur til hvernig fjár­munum er for­gangs­raðað innan við­kom­andi mála­flokks og ein­staka til­lögur um sparnað eða nið­ur­skurð hafa strax vakið athygli.“

Hann nefnir einnig að það sé hlut­verk Alþingis að fara yfir hvort for­gangs­röð­unin sé skyn­sam­leg og hvort ástæða sé til að gera ein­hverjar breyt­ingar:

„Alþingi hefur síð­asta orðið um end­an­lega nið­ur­stöðu fjár­laga. Það er kallað að þingið hafi fjár­stjórn­ar­valdið. Hvorki má verja fjár­munum né leggja á skatta og gjöld nema með sam­þykki Alþingis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum