Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Lára kallar eftir úrbótum í geðheilbrigðismálum

„Hvenær verða sett á alvöru geð­heilsu­úr­ræði fyrir fólk þar sem tekið er á móti ungu fólki, já bara öllu fólki, af virð­ingu, þar sem þeim mætir alúð og skiln­ingur?“

Lára kallar eftir úrbótum í geðheilbrigðismálum
Lára Ómars­dóttir Lára vill laga geð­heil­brigð­is­kerfið á Íslandi Mynd: Facebook

Hávarður Máni Hjör­leifs­son var jarð­sung­inn í gær, föstu­dag­inn 19. sept­em­ber en hann hefði orðið 21 árs í októ­ber. Í kjöl­far frá­falls hans birti Lára Zulima Ómars­dóttir, sam­úð­ar­kveðju til fjöl­skyldu Hávarðs og áminn­ingu til sam­fé­lags­ins á Facebook, þar sem hún kallar eftir alvöru úrræðum fyrir ungt fólk í vanda. Lára, sem er fjöl­miðla­kona og leið­togi almanna­tengla hjá Pipar/TBWA, gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að fjalla um færsl­una.

„Ég sendi fjöl­skyldu hans mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur,“ segir í færsl­unni.

Lára spyr jafn­framt hvenær stjórn­völd ætli að bregð­ast við:

„Hvenær ætlar sam­fé­lagið og stjórn­völd að gera eitt­hvað til að aðstoða ungt fólk í vanda og koma upp alvöru úrræðum fyrir þau sem glíma við veik­indi? Fyr­ir­heitin eru alltaf fögur en efnd­irnar litlar.“

Hún lýsir reynslu aðstand­enda sem marg­sinnis hafi reynt „að fá aðstoð fyrir ást­vini okkar en komum að lok­uðum dyrum.“

„Hvenær verða sett á alvöru geð­heilsu­úr­ræði fyrir fólk þar sem tekið er á móti ungu fólki, já bara öllu fólki, af virð­ingu, þar sem þeim mætir alúð og skiln­ingur?“ spyr Lára enn fremur.

Í færsl­unni rifjar hún upp að hafa fyrst kynnst úrræða­leysi í geð­heil­brigð­is­málum þegar náinn vinur hennar missti dóttur sína fyrir tæpum 20 árum. „Margoft hefur verið fjallað um vand­ann í fréttum en lítið þok­ast. Nú er komið nóg,“ segir Lára.

Hún leggur áherslu á að hlustað sé á fólk í vanda og að úrræðin séu mann­úð­leg:

„Það þarf að hlusta á þau sem þurfa aðstoð­ina og vinna með þeim. Það þarf að koma fram við þau af virð­ingu og með kær­leika að leið­ar­ljósi. Yfirboð og fram­koma sem ein­kenn­ist af for­dómum og fyr­ir­litn­ingu skilar okkur engu og hefur engu skilað.“

Færsl­unni lýkur á sam­úð­ar­kveðju til fjöl­skyld­unnar: „Elsku fjöl­skylda; ég sendi ykkur mínar dýpstu sam­úð­ar­kveðjur frá mínum innstu hjartarótum. Guð geymi Hávarð Mána.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag