Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Rífa í sig hugmyndir Trump um framtíð Gaza

„Þegar helsti fjár­mögn­un­ar­að­ili þjóð­ar­morðs­ins stendur við hlið ger­and­ans og kynnir frið­ar­til­lögur til að stöðva þjóð­ar­morðið, þá er engin von til þess að hér búi heil­indi að baki“

Rífa í sig hugmyndir Trump um framtíð Gaza
Trump og Net­anyahu Félag­arnir á góðri stund

Félagið Ísland–Palest­ína gagn­rýnir harð­lega þá áætlun sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynnti ásamt Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, í gær og segir hana „blekk­ingu og nýlendu­hyggju í dul­ar­gervi friðar“.

Í yfir­lýs­ingu félags­ins segir að óraun­hæft sé að helsti „fjár­mögn­un­ar­að­ili þjóð­ar­morðs­ins“ standi hlið við hlið ger­and­ans og kynni frið­ar­til­lögur. Samkvæmt félag­inu byggi áætl­unin alfarið á for­sendum Banda­ríkj­anna og Ísraels og minni þannig á Balfour-yfir­lýs­ing­una frá 1917. „Það eru Palest­ínu­menn sem eiga að laga sig að veru­leika sem aðrir stjórna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Bent er á að samn­ing­ur­inn geri ráð fyrir sak­ar­upp­gjöfi Ham­asliða og ann­arra and­spyrnu­manna, án þess að nokkuð sé minnst á glæpi Ísra­els­ríkis gegn Palest­ínu­mönnum. „Hvergi
er minnst á glæpi síon­ist­anna sem hafa stjórnað ofsóknum, land­stuldi og drápum gegn Palest­ínu­mönnum í ára­tugi. Þeir skulu vera frið­helgir sem fyrr.“ Þá sé ekk­ert fjallað um Vest­ur­bakk­ann þar sem þjóð­ern­is­hreins­anir séu í gangi. Í yfir­lýs­ing­unni segir jafn­framt að samn­ing­ur­inn kalli eftir „afra­dikaliser­ingu“ Palest­ínu­manna, sem félagið túlkar sem bann við því að þeir berj­ist fyrir rétt­indum sínum.

Samkvæmt áætl­un­inni á svokölluð „Frið­ar­nefnd“ að stjórna bráða­birgða­að­gerðum. Ísland–Palest­ína bendir á að Trump sjálfur eigi að leiða nefnd­ina, með Tony Blair, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sér við hlið. Blair ásamt þáver­andi Banda­ríkja­for­senda séu sak­aðir um að bera ábyrgð á alþjóð­legum hörm­ungum, meðal ann­ars í Írak.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að lofað sé litlum umbótum á lífs­skil­yrðum íbúa Gaza, svo sem aðgangi að mat, vatni og lyfjum í gegnum Sam­ein­uðu þjóð­irnar. Ísrael muni þó áfram reyna að hindra slíka aðstoð. Þá sé ljóst að Net­anyahu hafi engan hug á því að sam­þykkja sjálf­stætt ríki Palest­ínu eða draga her­lið sitt til baka.

„Stjórn­völd í Ísrael segja beinum orðum í ísra­elskum fjöl­miðlum að þessi samn­ingur sé blekk­ing,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Félagið krefst þess að íslensk stjórn­völd gefi áætl­un­inni ekki lög­mæti, heldur standi með Palest­ínu­mönnum. „Eina lausnin er að þjóð­ar­morð Ísraels verði stöðvað, ráða­menn í Ísrael og þátt­tak­endur í þjóð­ar­morð­inu verði sóttir til saka og að Palest­ína verði frjáls,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

YFIRLÝSING FÉLAGSINS ÍSLAND - PALESTÍNA

Trump Banda­ríkja­for­seti kynnti þ. 29. sept­em­ber á blaða­manna­fundi með Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, áætlun sem skv. yfir­lýs­ingu Trumps á að leiða til friðar á Gaza.

Augljóst er, að þegar helsti fjár­mögn­un­ar­að­ili þjóð­ar­morðs­ins stendur við hlið ger­and­ans og kynnir frið­ar­til­lögur til að stöðva þjóð­ar­morðið,
þá er engin von til þess að hér búi heil­indi að baki.

Samn­ing­ur­inn felur í sér að aðkoma Palest­ínu­manna er öll á for­sendum Ísraels og Banda­ríkj­anna og þannig end­ur­tekn­ing á sömu sögu allt frá árinu 1917 þegar Breska rík­is­stjórnin lagði fram hina alræmdu Balfouryfirlýsingu. Það er nýlendu­hyggjan sem ræður gerð þessa samn­ings.
Það eru Palest­ínu­menn sem eiga að laga sig að veru­leika sem aðrir stjórna. Samkvæmt samn­ingnum á að veita Ham­asliðum og öðrum
and­spyrnu­mönnum „sak­ar­upp­gjöf“ fyrir að berj­ast fyrir þjóð sína. Hvergi er minnst á glæpi síon­ist­anna sem hafa stjórnað ofsóknum, land­stuldi og drápum gegn Palest­ínu­mönnum í ára­tugi. Þeir skulu vera frið­helgir sem fyrr.

Samn­ing­ur­inn inni­heldur engin orð um Vest­ur­bakk­ann þar sem þjóð­ern­is­hreins­anir eru í fullum gangi. Samkvæmt samn­ingnum á að
„afra­dikalisera“ Palest­ínu­menn. Á manna­máli þýðir það að þeir mega ekki berj­ast fyrir rétti sínum. Yfir­gangur og árásir Ísraela munu halda áfram
sam­kvæmt stefnu rík­is­stjórnar Net­anyahu og flestra stjórn­mála­flokka í Ísrael. Það er lagt til í samn­ingnum að svokölluð „Frið­ar­nefnd“ stjórni
aðgerðum tíma­bund­innar bráða­birgða­stjórnar. Það er eng­inn annar er Trump sjálfur, mað­ur­inn sem er að rústa því sem eftir stendur af lýð­ræði í eigin landi og hefur fjár­magnað þjóð­ar­morðið, sem verður þar í for­sæti.

Honum til aðstoðar verður Tony Blair fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Maðurinn sem ásamt þáver­andi Banda­ríkja­for­seta ber ábyrgð á dauða
milljón Íraka.

Samn­ing­ur­inn felur í sér örlitla von um að aðgerðir sem gætu bætt hag Gazabúa. Því er lofað að lífs­nauð­syn­legar birgðir af mat, vatni og lyfjum verði fluttar til Gaza í gegnum stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Viðbúið er að Ísrael, sem hefur skil­greint flótta­manna­hjálp SÞ, UNRWA, sem hryðju­verka­sam­tök, muni áfram reyna að hindra slíka flutn­inga því Net­anyahu hefur lýst því yfir að her Ísraels fari hvergi.

Ísrael hefur ætíð brotið alla samn­inga sem þeir skrifa undir þegar þeir telja það sér í hag - enda frið­helgir fram að þessu. For­sæt­is­ráð­herra Ísraels hefur engan hug á öðru í þetta skiptið, enda sagði hann beinum orðum að loknum fundi sínum með Trump að Ísrael hygð­ist ekki fall­ast á sjálf­stætt ríki Palest­ínu, eða að draga her­lið sitt til baka frá Gaza.

Palest­ínu­menn standa frammi fyrir afar­kostum. Fallist Hamas ekki á samn­ing­ana eða reyni að fá fram breyt­ingar, þá heldur þjóð­ar­morðið áfram
af meiri krafti. Trump gaf Net­anyahu grænt ljós á blaða­manna­fund­inum líkt og rík­is­stjórnir Vest­ur­landa gerðu eftir 7. októ­ber 2023. Enn­fremur
munu rík­is­stjórnir Vest­ur­landa, sem hafa ekk­ert gert til þess að afstýra þjóð­ar­morð­inu, lýsa því yfir að Hamas beri sök­ina á áfram­hald­andi þjóð­ar­morði.

Stjórn­völd í Ísrael segja beinum orðum í ísra­elskum fjöl­miðlum að þessi samn­ingur sé blekk­ing. Íslensk stjórn­völd mega undir engum kring­um­stæðum
gefa þessum áformum lög­mæti. Eina lausnin er að þjóð­ar­morð Ísraels verði stöðvað, ráða­menn í Ísrael og þátt­tak­endur í þjóð­ar­morð­inu verði sóttir
til saka og að Palest­ína verði frjáls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag