Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Þegar barn er skotið í höfuðið á eftirlitsstöð, er það líka sjálfsvörn?“

Karen Kjart­ans­dóttir bendir á glæpi Ísraela á Vest­ur­bakka Palest­ínu

„Þegar barn er skotið í höfuðið á eftirlitsstöð, er það líka sjálfsvörn?“
Karen Kjart­ans­dóttir Karen kemur fram með stað­reyndir um ástandið á Vest­ur­bakk­anum Mynd: Facebook

Fyrr­ver­andi fjöl­miðla­konan og almanna­teng­ill­inn Karen Kjart­ans­dóttir gagn­rýnir harð­lega fram­ferði Ísraels á Vest­ur­bakk­anum í nýrri færslu á Facebook, og beinir spurn­ingum sínum sér­stak­lega að þeim sem verja aðgerðir Ísra­els­manna í Palest­ínu.

„Ég veit að sumum ykkar er tamt að verja ofbeldi Ísra­els­manna, sama hversu stjórn­laust það er,“ skrifar hún. „Yfir­leitt með þeim rökum að Hamas séu ill sam­tök og því megi ísra­elski her­inn beita hvaða grimmd sem er, eða vegna þess að múslímar séu „vondir“ í eðli sínu. En hvernig útskýrið þið þá það sem ger­ist á Vest­ur­bakk­anum?“

Karen bendir á að þegar Ísrael sprengi sjúkra­hús eða barna­skóla á Gaza, segi sumir „með yfir­læt­is­svip hins upp­lýsta manns: „Þetta er sjálfs­vörn“.“ Hún spyr síðan:

„En þegar her­menn og land­ræn­ingjar ráð­ast á óvopn­aða Palest­ínu­menn í Jenin, Nablus eða Taybeh, hvað kallið þið það? Þegar barn er skotið í höf­uðið á eft­ir­lits­stöð, er það líka sjálfs­vörn? Þegar kirkja er brennd í kristnu þorpi, eða bóndi missir lífs­við­ur­væri sitt vegna árása land­ræn­ingja er það þá líka bar­átta gegn Hamas?“

Karen vísar í tölur sem sýna alvar­leika stöð­unnar á Vest­ur­bakk­anum.

„1.001 Palest­ínu­maður hefur verið drep­inn af ísra­elskum her eða land­ræn­ingjum á Vest­ur­bakk­anum frá 7. októ­ber 2023. Um 10.000 hafa særst. 213 börn hafa verið drepin (eitt af hverjum fimm fórn­ar­lömbum) og 7 fatl­aðir ein­stak­lingar eru meðal hinna myrtu,“ skrifar hún og bætir við að meira en þriðj­ungur fórn­ar­lamba hafi verið „skot­inn í höfuð eða efri hluta lík­am­ans, oft í árásum sem gerðar eru að næt­ur­þeli eða við eft­ir­lits­stöðvar.“

Hún bendir einnig á að „dauðs­föll 44 krist­inna Palest­ínu­manna hafa verið stað­fest frá októ­ber 2023“ og að kristnir íbúar í Taybeh, Betlehem og Ramallah hafi orðið fyrir „kerf­is­bundnum árásum land­ræn­ingja“ þar sem „hefur verið kveikt í kirkjum, heim­ilum og bílum.“

Karen vitnar í skýrslu Norwegian Refugee Council frá júlí 2024 þar sem fram kemur að á Vest­ur­bakk­anum hafi aldr­aðir og fatl­aðir verið sér­stak­lega við­kvæmir hópar þegar kemur að árásum:

„… eng­inn maður og eng­inn heim­ili eru örugg, ekki einu sinni þeir eldri, fatl­aðir, eða börn.“

Að lokum bendir hún á að Vest­ur­bakk­inn sé ekki undir stjórn Hamas heldur Palest­ínsku heima­stjórn­ar­innar, sem hafi í raun oft unnið með Ísrael í örygg­is­málum.

„Samt eru borg­arar þar karl­menn, konur og börn, drepin, hand­tekin og hrakin af landi sínu dag­lega. Þar er engin „hern­að­arógn“ sem hægt er að fela sig á bak við heldur bara her­nám, aðskiln­að­ar­stefna, land­rán og refsi­leysi við lát­lausum brotum á alþjóða­lögum,“ skrifar Karen að lokum.

Karen lætur langan lista af heim­ildum fylgja færslu sinni, máli sínu til stuðn­ings en hægt er að sjá þær hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vesturbakkinn

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina