Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ótti og eftirlit í Chicago: „ICE er að ræna fólki handahófskennt og án afleiðinga

Geð­heil­brigð­is­ráð­gjafi með teng­ingu við Ísland vaktar hverfi sitt og passar upp á skóla­börn gagn­vart ICE.

Ótti og eftirlit í Chicago: „ICE er að ræna fólki handahófskennt og án afleiðinga
Laura Smith Laura Smith bjó um tíma á Íslandi Mynd: Aðsend

Laura Smith, klínískur ráð­gjafi í geð­heil­brigð­is­málum í Chicago og fyrr­ver­andi nem­andi við Háskóla Íslands, segir sam­fé­lag inn­flytj­enda í borg­inni búa við stöðuga ógn vegna aðgerða inn­flytj­enda­eft­ir­lits­ins ICE. Hún hefur tekið þátt í svoköll­uðu ICE Watch starfi, þar sem nágrannar fylgj­ast með og skrá starf­semi eft­ir­lits­ins til að vernda fólkið í hverf­unum.

Smith býr á norð­ur­hluta Chicago með eig­in­manni sínum og tveggja ára syni. Hún starfar með full­orðnum, fjöl­skyldum og ung­lingum, en hafði áður unnið í 15 ár að stuðn­ingi og málsvörn fyrir inn­flytj­endur og flótta­fólk, meðal ann­ars á fyrsta kjör­tíma­bili Donalds Trump.

Hún segir sam­fé­lagið þar sem hún starfar að mestu byggt af fólki af mexíkóskum upp­runa, en aðeins tíu mín­útna hjól­reið frá sé hverfi með hvítri milli­stétt, þar sem hún sjálf býr. Hún er einnig sjálf­boða­liði í nágranna­skóla og tekur á móti for­eldrum og börnum á morgn­ana.

„Mér finnst mik­il­vægt að sýna sig sem hvít mann­eskja og styðja börn og for­eldra með brúnan húð­lit. Ekkert barn ætti að þurfa að ótt­ast að fara í skól­ann,“ segir hún í sam­tali við Mannlíf.

Smith bendir á að nýlegur úrskurður Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna heim­ili að fólk sé stöðvað og yfir­heyrt á grund­velli útlits eða tungu­máls. Hún segir úrskurð­inn lög­helga kyn­þátta­mis­munun og geri sam­fé­lag flótta­fólks sér­stak­lega ber­skjaldað fyrir ofbeldi og handa­hófs­kenndum aðgerðum ICE.

„Ég nota orðið mann­rán af ásetn­ingi. ICE-liðar gefa sig ekki fram og hylja and­lit sín, sem er ólög­legt. Þeir ræna fólki án afleið­inga,“ segir hún og bætir við: „ICE er að ræna fólki handa­hófs­kennt og án afleið­inga. Þeir nota tára­gas og önnur efna­vopn í hverf­unum okkar. ICE beitir líka tækni eins og and­lits­grein­ingu, njósn­a­hug­bún­aði og drónum. Njósn­a­tæknin og aðferð­irnar tengj­ast Ísrael. Í sept­em­ber myrtu ICE-liðar ein­stæðan föður tveggja ungra drengja. Þetta er fas­ismi.“

Í hverf­inu er notuð ein­föld aðferð til að gera við­vart um aðgerðir ICE: nágrannar bera flautur. Stuttar lotur flauta merkja að ICE sé á ferð, langir tónar ef verið sé að ræna ein­hverjum.

FlauturPakki með flautum og upp­lýs­ingum sem Laura útbjó með nágrönnum sínum

„Mark­miðið er að draga úr ofbeldi og skrá hvað þeir gera. Það er full­kom­lega lög­legt að taka upp það sem þeir eru að gera,“ segir hún í sam­tali við Mannlíf.

Smith lýsir atviki 21. októ­ber þegar ICE-menn birt­ust í heim­reið hennar; bryn­varðir, sumir með hulin and­lit og vopn­aðir hríð­skota­byssu. Hún hljóp ber­fætt út með sím­ann í hönd og hóf upp­töku ásamt öðrum nágrönnum.

„Ég var ekki með flaut­una mína. ICE var fylgt af fólki á reið­hjólum sem blés í flautur og einnig af bíl sem flaut­aði. Nokkrir nágrannar mínir, sem voru heima, komu út. Margir okkar byrj­uðu að taka upp á sím­ana okkar. Ég hugs­aði: „Guð minn góður, hvernig getur þetta verið að ger­ast beint fyrir framan húsið mitt?! Þessir ICE-liðar eru svo illir!“.“

Laura segir atvikið enn sitja í sér. „ICE-lið­arnir stigu út úr bílum sínum til að áreita fólkið sem elti þá. Ég man að einn þeirra sagði: „Þetta er síð­asta við­vör­unin ykkar!“ Ég hélt áfram að taka upp þótt ég væri skjálf­andi og gréti aðeins, og að lokum fóru lög­reglu­menn­irnir aftur inn í bíl­ana sína og óku á brott.“

Þrátt fyrir ótt­ann telur Laura að atvik eins og þetta hafi styrkt sam­stöðu í sam­fé­lag­inu. Nágrannar hafi tengst og skipu­lagt dreif­ingu flauta og fræðslu­efnis um rétt­indi fólks.

„Per­sónu­lega finnst mér ég hafa hertst aðeins, og ég ætla aldrei að taka flaut­una mína af!“ segir Laura að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco