Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Söngkona All Saints opinberar dekkri hlið poppheimsins á tíunda áratugnum

„Það var engin gleði eða ham­ingja yfir þessu, frekar var litið á þetta með skelf­ingu og áhyggjum“

Söngkona All Saints opinberar dekkri hlið poppheimsins á tíunda áratugnum
Melanie Blatt All Saints var ein heitasta stelpu­sveitin í denn Mynd: Instagram-skjáskot

Melanie Blatt, söng­kona hljóm­sveit­ar­innar All Saints, hefur sagt opin­skátt frá því hvernig tón­list­ar­stjórar tóku því þegar hún varð ófrísk á ferli sínum með sveit­inni. Melanie, sem er 50 ára í dag, opnar sig í nýrri heim­ild­ar­mynd og lýsir raun­veru­leika frægð­ar­innar á níunda ára­tugnum.

Hún kemur fram í heim­ild­ar­mynd­inni Girl­Bands Forever, þar sem hún segir frá því þegar hún og Nicole Appleton, með­limur All Saints, sögðu stjórn­endum frá þungun sinni. Melanie heldur því fram að þeim hafi verið sagt að eyða fóstr­unum og ein­beita sér að vel­gengni sveit­ar­innar.

„Ég hafði ekki verið lengi með kærast­anum mínum og þetta kom okkur klár­lega á óvart,“ segir Melanie í þætt­inum. „Það var engin gleði eða ham­ingja yfir þessu, frekar var litið á þetta með skelf­ingu og áhyggjum, með­vitað um að nú myndi allt breyt­ast.“

Í mynd­broti sem The Sun birti segir Melanie að þeim hafi verið sagt að þær væru „að eyði­leggja allt“ og að þetta væri „endir sveit­ar­innar“.

Melanie eign­að­ist sitt barn með þáver­andi kærasta sínum, Stuart Zender, sem var bassa­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Jamiroquai. Nicole, sem var ólétt eftir þáver­andi kærasta sinn Robbie Williams, átti ekki barnið.

Melanie við­ur­kennir að óléttan hafi sett mikið álag á sam­band hennar og Nicole, þrátt fyrir að þær hefðu verið bestu vin­konur frá ell­efu ára aldri. Þær tóku jafn­vel óléttu­próf saman og ræddu um að ala upp börn hlið við hlið.

„Það er í raun ekki mitt að tala um það,“ segir Melanie, „en því miður… þetta var mjög óþægi­leg staða vegna þess að ég ákvað að halda mínu barni og hún ekki.“ Hún segir þetta hafa verið „mjög erfitt tíma­bil“ í þeirra vin­áttu.

All Saints, sem skipuð var Melanie, systr­unum Nicole og Natalie Appleton og Shaznay Lewis, hætti árið 2001 eftir tvær plötur. Þegar sveitin leyst­ist upp voru sam­skiptin orðin svo stirð að Melanie segir þær hafa „hatað hver aðra“.

Heim­ild­ar­myndin, sem er sýnd á BBC Two, fjallar einnig um aðrar þekktar stúlkna­sveitir á borð við Atomic Kitten, Eternal, Suga­babes, Mis-teeq og Little Mix. Þar segir söng­konan Kéllé Bryan úr Eternal frá því hvernig útlits­kröfur voru óraun­hæfar.

„Fólk hafði alltaf áhyggjur af því hvað við værum þungar,“ segir hún og lýsir tísku­stefnu þar sem stærð núll var við­mið. „Við vorum sendar út í sveit þar sem var fylgst með því hvað við borð­uðum, í dag finnst mér þetta fárán­legt, en svona var þetta gert.“

Kéllé var aðeins 15 ára þegar hún skrif­aði undir sinn fyrsta plötu­samn­ing ásamt Louise Redknapp. Fljót­lega voru þær paraðar saman í Eternal með systr­unum Easther og Vernie Bennett.

Girl­Bands Forever er fram­leidd af Louis Theroux og fylgir í kjöl­far vel­gengni Boybands Forever. Auk við­tala við með­limi stúlkna­sveita koma meðal ann­ars Clara Amfo, Lucie Cave, MNEK, Pete Tong, Nicki Chapman, Scott Mills og Tulisa fram í mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco