Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Illugi segir ljósmynd Kristrúnar vera „hallærislegan tilbúning“

„Með þann aug­ljósa til­gang að sýna okkur hvað Kristrún er reffi­leg.“

Illugi segir ljósmynd Kristrúnar vera „hallærislegan tilbúning“
Kristrún Frosta­dóttir Ljós­myndin sem Illugi talar um Mynd: Forsætisráðuneytið

Illugi Jök­uls­son, rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður, gagn­rýnir harð­lega birt­ingu upp­stilltra mynda frá stjórn­mála­mönnum í frétta­miðlum og segir slíka notkun grafa undan sjálf­stæði blaða­manna og trú­verð­ug­leika frétta­ljós­mynda. Tilefnið var mynd af Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í meintu sím­tali við Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, sem birt var á Vísi í vik­unni.

Illugi segir, í Facebook-hópnum Fjöl­miðlanördar, mynd­ina, sem fylgdi opin­berri Facebook-færslu for­sæt­is­ráð­herr­ans, ekki telj­ast alvöru frétta­ljós­mynd þar sem hún hafi verið tekin af aðstoð­ar­manni, ekki sjálf­stæðum blaða­ljós­mynd­ara.

„Ef þessi mynd væri tekin af alvöru frétta­ljós­mynd­ara eins og GVA, þá væri þetta mjög góð mynd sem sýndi dug­mik­inn for­sæt­is­ráð­herra í axjón,“ skrifar Illugi. „En gall­inn er sá að hún var ekki tekin af alvöru frétta­ljós­mynd­ara. Hún var tekin af ein­hverjum aðstoð­ar­manni og fylgdi opin­berri Facebook-færslu.“ Bætir hann við:

„Nú er þetta upp­stilltur til­bún­ingur – meira að segja frekar hall­æris­legur – með þann aug­ljósa til­gang að sýna okkur hvað Kristrún er reffi­leg.“

Illugi segir að um leið og slíkt sé upp­lýst, missi myndin gildi sitt sem frétta­ljós­mynd. Hann segir furðu­legt að fjöl­mið­ill eins og Vísir birti hana sem frétta­mynd, jafn­vel þótt hún sé merkt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Þá tengir Illugi málið við umræður sem hann hlust­aði á í Sam­stöð­inni, þar sem blaða­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son ræddi við ljós­myndar­ann Gunnar V. Andr­és­son og Sigmund Erni Rún­ars­son um versn­andi aðgengi blaða­ljós­mynd­ara að stjórn­mála­mönnum og öðrum opin­berum aðilum. Þeir lýstu áhyggjum af því að sjálf­stætt, óháð frétta­safn efnis væri á und­an­haldi og að frétta­miðlar tækju í stað­inn við til­búnum frétta­til­kynn­ingum og stýrðu myndefni frá stjórn­völdum og stofn­unum.

„Frétta­miðlar birta nú þegar allt of mikið af frétta­til­kynn­ingum sem fréttir,“ skrifar Illugi. „En ég hygg að það sé nýlunda að þeir birti líka svona upp­stilltar ‘frétta­myndir’. Ég vona að þeir fari ekki lengra út á þessa braut.“

Hér má lesa færsl­una í heild sinni:

Ég var að hlusta á spjall Björns Þor­láks­sonar við Gunnar V. Andr­és­son og Sigmund Erni Rún­ars­son á Sam­stöð­inni um blaða­ljós­myndir fyrr og nú þar sem þeir spjöll­uðu meðal ann­ars um hvernig alvöru blaða­ljós­mynd­arar (og frétta­menn almennt) hafa nú miklu tak­mark­aðra og verra aðgengi að stjórn­mála­mönnum (og emb­ætt­is­mönnum alls­konar) en áður – sem er mjög til vansa.

En örskömmu síðar sá ég frétt á Vísir um sam­tal Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við Ursulu Von der Leyen um tolla­mál og EES. Fréttina prýðir með­fylgj­andi mynd af Kristrúnu og á vænt­an­lega að sýna hana í sím­anum við Ursulu.

Nú er það svo að ef þessi mynd væri tekin af alvöru frétta­ljós­mynd­ara eins og GVA, þá væri þetta mjög góð mynd sem sýndi dug­mik­inn for­sæt­is­ráð­herra í axjón. En gall­inn er sá að þessi mynd var ekki tekin af alvöru frétta­ljós­mynd­ara. Hún var tekin af ein­hverjum aðstoð­ar­manni Kristrúnar og fylgdi opin­berri Facebook-færslu hennar um sím­talið við Ursulu. Og strax og við vitum það, þá er þetta ekki lengur góð frétta­ljós­mynd.

Nú er þetta upp­stilltur til­bún­ingur – meira að segja frekar hall­æris­legur – með þann aug­ljósa til­gang að sýna okkur hvað Kristrún er reffi­leg.

Vissu­lega er Kristrún reffi­leg. Og kannski var myndin vissu­lega tekin rétt á meðan á sím­tal­inu stóð og sýnir í alvöru for­sæt­is­ráð­herra tala í sím­ann við Ursulu nú í morgun.

En gall­inn er sá að við vitum það ekki. Þar með er myndin sjálf­krafa einskis virði og furðu­legt að Vísir birti hana eins og frétta­mynd (þótt vissu­lega sé hún merkt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu).

Og þessi mynd verður einmitt gott dæmi um það sem Björn, GVA og Sig­mundur voru að lýsa áhyggjum af, að frétta­menn hefðu ekki lengur sjálf­stæðan aðgang að frétta­efn­inu. Frétta­miðlar birta nú þegar allt of mikið af „frétta­til­kynn­ingum“ frá opin­berum aðilum sem „fréttir“ en ég hygg að það sé nýlunda að þeir birti líka svona upp­stilltar „frétta­myndir“. Ég vona að þeir fari ekki lengra út á þessa braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum