Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rob opnaði sig um djúpstæðan ótta rétt fyrir morðin

Sonur Rob Reiner sýndi af sér and­fé­lags­lega hegðun í jóla­boði Conan O´brien.

Rob opnaði sig um djúpstæðan ótta rétt fyrir morðin
Michele, Rob og Nick Reiner Nokkrum klukku­stundum eftir rifr­ildið voru Michele og Rob látin Mynd: MICHAEL BUCKNER / GETTY IMAGES VIA AFP

Aðeins nokkrum klukku­stundum áður en hann og eig­in­kona hans, Michele Singer Reiner, voru myrt á hrotta­legan hátt á heim­ili sínu í Brentwood, ræddi hinn goð­sagna­kenndi kvik­mynda­leik­stjóri Rob Reiner við vini sína um sáran og djúpan ótta sem nag­aði hann.

Reiner, sem var ein helsta stór­stjarna Hollywood, naut mik­illar hylli um allan heim fyrir leik­stjórn á kvik­mynda­klassíkum á borð við When Harry Met Sally, Stand By Me og The Princess Bride. Andlát hins 78 ára Reiner, hefur vakið mikla sorg meðal kvik­myndaunn­enda víða um heim.

Lík Robs og eig­in­konu hans, ljós­mynd­ar­ans Michele Singer Reiner, 68 ára, fund­ust á heim­ili þeirra í Brentwood sunnu­dag­inn 14. des­em­ber 2025. Það var dóttir þeirra, Romy, sem fann þau við hræði­legar aðstæður. Bæði höfðu þau hlotið marg­vís­leg stungu­sár. Daginn eftir var til­kynnt að mið­sonur hjón­anna, Nick, hefði verið hand­tek­inn grun­aður um tvö­földu morðin á for­eldrum sínum.

Rann­sak­endur lög­regl­unnar í Los Angeles segja að nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar sé sú að hjónin hafi verið myrt og að Nick beri ábyrgð á dauða þeirra. Gert er ráð fyrir að hinn 32 ára gamli Nick, sem hefur glímt við fíkni­efna­vanda frá ung­lings­aldri, komi fyrir dóm síðar í dag klukkan 8:30 að stað­ar­tíma í Los Angeles.

Á sama tíma hafa vinir og kunn­ingjar Robs og Michele varpað ljósi á áhyggjur þeirra síð­ustu klukku­stund­irnar áður en þau lét­ust. Þau höfðu eytt laug­ar­dags­kvöld­inu í jóla­boði sem sjón­varps­mað­ur­inn Conan O’Brien hélt, þar sem fjöldi þekktra gesta var við­staddur.

Rob og Michele mættu í boðið ásamt syni sínum Nick, sem vakti óþægi­lega athygli, sam­kvæmt heim­ildum People. Heim­ild­ar­maður segir: „Nick var að fæla fólk frá sér, hegð­aði sér und­ar­lega og spurði fólk ítrekað hvort það væri frægt.“ For­eldr­arnir og son­ur­inn munu hafa lent í „mjög háværum rifr­ildum“, að sögn, sem sner­ust meðal ann­ars um vímu­efna­neyslu Nicks og tregðu hans til að leita sér frek­ari með­ferðar.

Nick fór fyrst í með­ferð aðeins 15 ára gam­all og sú með­ferð var sú fyrsta af sautján. Hegðun hans þetta kvöld vakti miklar áhyggjur for­eldra hans. Vinur fjöl­skyld­unnar, sem býr nærri heim­ili þeirra, sagði við New York Post: „Þau höfðu rif­ist í jóla­boði Conans og Rob var að segja fólki að þau væru hrædd um Nick og ótt­uð­ust að and­legt ástand hans væri að versna.“

Þrátt fyrir að Nick hafi að sögn reynt að hætta neyslu, er talið að hann hafi ekki verið allur þar sem hann átti að sér að vera, og það hafi komið upp í jóla­boð­inu. Annar vinur fjöl­skyld­unnar segir: „Ég veit að for­eldr­arnir vildu að hann færi í með­ferð, á stofnun, en hann vildi fá hjálp heima hjá sér. Þetta hafa þau deilt um í mörg ár.“

NBC greinir frá því að Nick hafi orðið „óró­legur og æstur“ þegar for­eldrar hans ræddu áhyggjur sínar af heilsu hans í jóla­boð­inu. Heim­ildir Rolling Stone segja að hann hafi sýnt af sér and­fé­lags­lega hegðun, meðal ann­ars með því að stara á fólk. Talið er að Rob hafi tekið Nick með sér í boðið til að „hafa auga með honum“. Eftir rifr­ildið yfir­gáfu hjónin boðið. Nokkrum klukku­stundum síðar voru þau látin.

Nick inn­rit­aði sig síðar á Pierside-hót­elið í Santa Monica þar sem starfs­fólk fann sturtu „fulla af blóði“ og blóðslóð sem lá frá rúmi her­berg­is­ins. Gluggi hafði verið hul­inn með rúm­fötum. Nick var síðar hand­tek­inn á neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöð í Exposition Park, nærri háskóla­svæði Uni­versity of Southern California, um 15 kíló­metrum frá heim­ili for­eldra hans.

Nær ára­tug áður en Nick var hand­tek­inn vegna morð­anna á Rob og Michele hafði hann greint frá því í hlað­varpi árið 2018 að hann hefði rústað gesta­húsi for­eldra sinna undir áhrifum metam­fetamíns. „Ég var gjör­sam­lega á yfir­snún­ingi á örvandi efnum, ég held að það hafi verið kókaín og eitt­hvað annað, og var vak­andi dögum saman,“ sagði hann. „Ég byrj­aði á sjón­varp­inu, síðan lamp­anum, og að lokum var allt í gesta­hús­inu eyði­lagt.“

Þegar hann var spurður hvort ein­hver rök­vísi hefði verið að baki hegð­un­inni svar­aði hann að hann hefði verið í „galnu ástandi“. Hann sagði einnig að for­eldrar hans hefðu áður sagt honum að hann „yrði að fara“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco