Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áramótabjórinn hennar Dóru sprakk í 30 stiga frosti

„Við dóum ekki ráða­laus“

Áramótabjórinn hennar Dóru sprakk í 30 stiga frosti
Dóra Björg Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Ætlar að halda sig heima þessi ára­mót.

Nú stytt­ist óðum í ára­mótin og ákvað Mannlíf að heyra í nokkrum frá­bærum ein­stak­lingum um upp­á­halds­ára­mót þeirra, hvort við­kom­andi ætli að strengja ára­móta­heit og margt fleira.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, er ein þeirra sem hefur upp­lifað ára­mót við frekar óvenju­legar aðstæður, svo vægt sé til orða tekið.

Hver eru þín eftirminnilegustu áramót?

Eft­ir­minni­leg­ustu ára­mótin eru ára­mót sem ég varði í Karasjok allra nyrðst í Noregi við finnsku landa­mærin. Í Karasjok búa samar og ég dvaldi hjá fjöl­skyldu norsks vinar míns sem er af sama­ættum. Eftir tveggja tíma snjó­sleða­ferð á frosnu fljóti í 30 stiga frosti upp­götv­uðum við á leið­ar­enda, þar sem við hugð­umst fagna ára­mótum í litlum raf­magns­lausum kofa lengst frá manna­byggðum, að allur bjór­inn sem við höfðum með­ferðis hafði sprungið og vorum við því að óbreyttu orðin vín­laus, sem ég ætla að við­ur­kenna að voru ákveðin von­brigði. En við dóum ekki ráða­laus. Á meðan ég eld­aði ham­borg­ar­hrygg, syk­ur­brún­aðar kart­öflur og det hele með mjög ein­földum eld­un­ar­tækjum, fóru ferða­fé­lagar mínir á stúf­ana á snjó­sleð­unum og hug­ul­samir nágrannar á sveitabæ í um hálf­tíma fjar­lægð sáu sjálf­sagt aumur á þeim og gáfu sitt­hvað til ára­mótafagn­að­ar­ins okkar. Maturinn heppn­að­ist stór­kost­lega, en mér tókst reyndar að kveikja örlítið í borð­plötu einni á meðan elda­mennsk­unni stóð en það bless­að­ist sem betur fer. Við spil­uðum heil­mikið það kvöld, kjöft­uðum út í eitt og vorum meira að segja með ein­hverja flug­elda með í för.

Ætlar þú að strengja áramótaheit?

Við mað­ur­inn minn hyggj­umst taka upp svo­kall­aðan ham­ingju­sátt­mála á ný sem við inn­leiddum eftir ára­mótin síð­ustu en sem fór svo­lítið for­görðum vegna flutn­inga og fram­kvæmda í sumar og haust. Hann gengur út á betri rútínu sem er jú eins og við vitum öll grunn­ur­inn að ham­ingj­unni, eins sexí og það hljómar. Að fara að jafn­aði snemma upp í rúm og helst fyrir klukkan tíu því þá gefst góður tími til að lesa og spjalla og ná samt góðum og löngum svefni. Sér­stak­lega í ljósi þess að einn þriggja ára er ansi dug­legur að koma sér á ról ansi árla morg­uns. Hluti af þessu er líka að hreyfa sig mark­viss­ara, enda gefur það góða orku inn í eril­sama dag­skrá og heldur stjórn á streit­unni, sem getur verið nóg af. Einnig að afmarka ákveð­inn tíma viku­lega fyrir fjöl­skyldu­stundir. Nokkrar svona reglur sem skapa góðan ramma fyrir hvers­dag­inn. Við vitum jú að það er hvers­dag­ur­inn sem leggur grunn að púslu­spili lífs­ins en ekki ein­hverjar flug­elda­sýn­ingar og til­fallandi húll­umhæ – þó það sé gaman að brjóta upp hvers­dag­inn líka.

Hefur þú gert það áður?

Ég hef margoft ákveðið ein­hverjar lífstílsúr­bætur og tek­ist vel upp með það, tekið þátt í vegan­úar nokkrum sinnum sem hefur átt það til að ílengj­ast fram á vor. Mér tekst yfir­leitt vel upp með mark­mið sem ég set mér ef hug­ur­inn er heils­hugar með í því.

Hvað ætlar þú að gera um áramótin?

Planið er að vera með fjöl­skyld­unni allri heima í Graf­ar­vog­inum góða og fagna fyrstu ára­mót­unum okkar þar. Við ætlum að verja þeim með systur minni og hennar fjöl­skyldu og mömmu og pabba. Það er alltaf gott ára­mótap­artí þar sem þessi hópur kemur saman, mikið glimmer, góður matur og trallað fram á nótt. Hver veit nema við skellum okkur á brennu en ég er alin upp við þá hefð. Áramótin eru tæki­færi til að sleppa tökum á því gamla sem þjónar okkur ekki lengur og opna faðm­inn fyrir nýju sem þjónar okkur betur. Þess vegna er þetta alltaf gef­andi stund, nýtt og skemmti­legt upp­haf. Og það er það sann­ar­lega hjá mér – enda komin í Sam­fylk­ing­una og framundan er próf­kjör og kosn­inga­bar­átta. Spenn­andi tímar í nýjum ham.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una